Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1890, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.02.1890, Blaðsíða 17
—209- ar sér aö útvega sér trúfasta borg, ImstaS réttvísinnar. Á slíkri borg heíir hann þörf, og hvað sem þaS kostar, ætlar hann aS útvega sér hana. (Esaj. 1. kap.) því aS sá tími mun koma, þá er Síonsfjall meS Je- háva-musterinu skal veröa andlegr miSdepill og topp-punktr allrar jarSarinnar. „A hirium síöustu dögum mun fjall þaS, er drottins hús stendr á, grundvallaS verSa á fjalltindi, og gnæfa upp yfir aSrar hæSir, og þangaS munu allir heiSingjar streyma. Og margar þjúöir munu búast til ferSar þangaS og segja: KomiS, látum oss upp fara á drottins fjall, til húss Jakobs guSs, aS hann vísi oss sína vegu, svo vér megum ganga á hans stigum.“ Og þá mun orS Jehdva og lögmál Jehóva útbreiSast frá Síon um alla jörS meö allskonar blessan þar af fljótandi. Tími rétt- vísinnar og friöarins mun heiminum upprenna. þjóöirnar munu smíSa plógjárn úr sverSum sínum og kornsigSir úr spjótum sínum, og engin þjóS mun sverS reiSa aS anuarri þjóS og ekki læra hernaSaríþrótt framar. (Esaj. 2. kap.) I þessari fyrstu lýsing Esajasar á „hinum síSustu dög- um“ og dýrS þeirra er ekkert minnzt á Messías, hinn mikla konung ókominnar aldar. SpámaSrinn tekr aSeins fram þá hina gömlu von Israels, er aldrei getr dáiS svo lengi sem enn er til „Israel eftir andanum", aS blessanin muni á sínum tíma útbreiSa sig frá þessari þjóS um alla jörS, og aS þaS muni veröa á þann hátt, aS Jehóva- trúin veröi allsherjartrú heimsins. þá inuni sá tími styrj- alda, ranglætis og ofbeldis-verka, sem einmitt á hans dögum hófst meö Assúr, hinu fyrsta rnikla heimsríki, þoka fyrir gullöld friöarins og réttvísinnar, er mennirnir ávallt hafi svo sáran þráö. Eigi virSist spámanninum þá hafa komiS í hug, aS konungr ísraels ætti neitt sérstak- lega meS þaS aS sýsla, aS láta Jehóva-trúna verSa aö heims- trú eSa þaS aS endrreisa réttvísina á jörSinni. Hugsan hans hefir eflaust á þessu fyrsta skeiSi spámannsstarfsemi hans (á ríkisstjórnarárum Úsía konungs) ekki til neinna muna fest sig viS konungdóminn og þaS, sem hann kynni til leiSar aS koma, gott eða illt. AnnaS varS síSar ofan á. A cftir Úsía og Jótam, Scm

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.