Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1890, Page 28

Sameiningin - 01.02.1890, Page 28
—220- -----P RE STVÍGSL A.------------- Sunnudaginn 2. í níuviknaföstu, 9. Febr., framfór prest- ; vígsla í hinni lútersku kirkju íslenzka safnaðarins í Winni- peg í hádegisguðsþjónustunni. Guðfrœðis-kandidat Hafsteinn .Pétrsson, sem kom hingað yfir um frá Reykjavík seint í haust, var nefnilega ]iá vigðr af forseta íslenzka kirkjufé- ^ lagsins séra Jóni Bjarnasyni með aðstoð vai'aforseta séra Friðriks J. Bergmanns, sem lýsti vígslunni í upphafi guðs- þjónustunnar með stuttri prédikan út af þessum orðum í Esaj. 6, 8: „Hvern skal eg senda ? Hver vill vera vor er- indsreki ?“ Vígslan sjálf fór fram samkvæmt prestvígslu- formi, er hér verðr prentað í „Sam.“ og sem lagað er eft- ir leiðbeiningunni við þá athöfn í hinni nýju handbók að- aldeildar hinnar ensku-talandi lútersku kirkju hér í Am- eríku (General Council). Að vígslunni af lokinni prédikaði séra Jón Bjarnason, er nú talaði í fyrsta sinni opinber- lega eftir heimkomu sína frá Islandi, út af guðspjallssög- unni um ummyndan Jesú á fjallinu í Matt. 17. kap., sér í lagi út af þessum orðum Pétrs, er hann þá mælti við frels- arann: „Gott er, að vér erum hér, herra". Kirkjan var full af fólki, og einnig margt fóllc við kvöldguðsþjónust- una, en þá prédikaði hinn nývígði prestr. — Við vígsluna vann hann embættiseiðinn; en fyrir atvik varð eigi af því, að æfisaga hans væri við þetta tœkifœri upp lesin, sem þó átti að verða. En í stað þess látum vér „Sam.“ næst flytja ágrip af æfisögu hans, samið af honum sjálfum. — Sóra Hafsteinn hafði endrnýjaða köllun frá hinum íslenzku lútersku söfnuðum í Argyle-byggð hér vestr í fylkinu; fór hann þangað 2 dögum síðar, og er nú adressa hans: Grund P. 0., Manitoba, Canada. Með embættisbréfi frá forseta kirkjufélagsins er hann formlega settr þar inn í embætti sitt. í nafni allra vina kristindómsins meðal vors fólks óskum vér blessunar drottins yfir starf hans. Lexíur fyrir sunnudagsskólann; fyrsíi ársfjórSungr 1890. 9. lexía, sd. 2. Marz : Jesús í Nazaret (Lúk. 4, 16—32). 10. lexía, sd. 9. Marz : Hínn mikli læknir. (Lúk. 4, 33—44). 11. lexía, sd. 16. Marz : Fiskidráttrinn (Lúk. 5, 1—11). 12. lexía, sd. 23. Marz : Kristr veitir syndafyrirgefning (Lúk. 5. 17-—26). 13. lexía, sd. 30. Marz : Yfirlit. ,,SAMEININGIN“ kemr út mánaSarlega, 12 nr. á ári. Verð i Vestrheimi $1.00 árg.; greiðist fyrirfram.—Skrifstofa blaðsins: 199 Ross Str., Winnipeg, Manitoba, Canada. —■ LTtgáfunefnd: Jón Bjarnason (ritstj.), Páll S. Bardal (féhirðir), Magnús Pálsson, Friðrik J. Bergmann, Sigurðr J. Jóhannesson. t'KENTS.MIDJA LÖGBERGS — WINNII’EG.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.