Sameiningin - 01.06.1899, Side 8
56
anska, ólúterska, reformeraöa trúarlíf hefSi mikil og varan-
leg áhrif á menn, ekki síst þegar maöur gáir að því, hvaö trú-
arlíf þetta er öflugt, fjörugt og hrífandi. þetta haföi líka sín
áhrif. Talsveröur hluti lútersku kirkjunnar varö hrifinn af
stefnu þessari, og tók aö innleiöa sumar aðferöir Meþódista í
sínar eigin kirkjur og efa sum þau trúaratriöi, sem eru ein-
kennileg fyrir kirkju vora. Fyrir þessa orsök varö talsvert
ólúterskur blær á miklu af starfi kirkjunnar. Annar flokkur
var auðvitað til, og hann var stærri en sá sem vér nú þegar
höfum lýst. Hann hélt fast viö trú feðranna og reyndist trúr
hinni lútersku kirkju. þessir tveir flokkar voru til innan Gen-
eral Sýnódunnar þegar hún var stofnuð, og þeir hafa verið í
henni alt af síðan.
í fyrstu höfðu báðir flokkarnir mjög mikið umburðarlyndi
hver meö öðrum. Allur ágreiningur varð algjörlega að þoka
fyrir innilegum, kristilegum kærleik, sem batt menn saman og
kastaði þeim út í einbeitta baráttu fyrir velferðarmálum kirkju
sinnar. þeir voru einhuga í því að byggja upp ameríkanska
lúterska kirkju, sem gæti skipað heiðarlegt sæti meðal kirkju- i
deilda Bandaríkjanna. Nærri því öll lútersk kirkjufélög lands-
ins voru um tíma í sambandi þessu, General Sýnódunni.
þetta var gleðilegt fyrir þá sem unnu kirkju sinni heitt, og
uppörfaði þá til þess að reynast henni trúir. Sú stefna varð
því ofan á, að halda fast við játningarrit lútersku kirkjunnar.
Stefna þessi fékk sitt mesta fylgi þegar Pennsylvaníu-félagið
gekk, í annað sinn, í sambandið, árið 1853. Hin ólúterska
stefna var því, um tíma, borin ofurliði.
Hún varð um tíma að þoka; en það var langt frá því að
hún væri dauð. Sumir merkustu prestar og guðfræðingar
General Sýnódunnar höfðu opinberlega játað hina ólútersku
skoðan sína. Samskonar stefna var ríkjandi að all-miklu
leyti við prestaskóla hennar. Lítil áhersla var lögð á játn- i
ingarrit kirjunnar. Margir voru þeir sem ekki trúðu endur-
fæðing skírnarinnar, né heldur hinni virkilegu nálægð Jesú
Krists líkama og blóðs í kvöldmáltíðinni. Yfir höfuð var
Pennsylvaníu-félagið andvígt stefnu þessari; og margir hinna
yngri guðfræðinga, er þeir fóru að kynna sér betur hina lút-