Sameiningin - 01.06.1899, Blaðsíða 13
57
ersku guöfræöi þýzkalands, komust að raun um, aö stefna
þessi var bæöi röng og skaðleg fyrir velferð lútersku kirkjunn-
ar. Fremstur í flokki þeirra, er þannig litu á málin, var Dr.
Charles Porterfield Krauth, og átti hann af öllum mönnum á
þeim tíma, mestan þátt í endurreisn hinnar sönnu lútersku
trúar meðal ensku-mælandi manna í Bandaríkjunum.
Flokkarnir urðu æ andvígari hver öðrum, þar til loks kom
að því, árið 1866, að Pennsylvaníu-félagið, fyrir fult og alt,
sagði sig úr lögum við General Sýnóduna. Fleiri kirkjufélög
sögðu sig einnig úr, og varð um tíma all-mikill órói í hinu lút-
erska kirkjulífi í Ameríku.
þegar Pennsylvaníu-kirkjufélagið var þannig á ný orðið
eitt út af fyrir sig, fóru leiðtogar þess að virða fyrir sér hin
ýmsu lútersku kirkjufélög er stóðu fyrir utan General Sýnód-
una. þegar hér er komið sögunni voru þjóðverjar farnir að
flytja inn í vesturríkin og jafnvel búnir að stofua stór kirkju-
félög í Wisconsin og Iowa, en þó sérstaklega í Missouri. þar
var mjög öflugt kirkjufélag komið á fót, og var Dr. Walther
leiðandi andinn í því. Stefna félags þessa var mjög eindregin
íhaldsstefna viðvíkjandi öllu því sem var lúterskt. Dr. Walther
hafði eitt augnamið, og það var að halda fast við sextándu og
seytjándu-aldar guðfræði lútersku kirkjunnar. því augnamiði
hélt hann fram með miklum hæfileikum og frábærum dugnaði;
en félag þetta sýndi enga löngun til að samlaga sig bræðrum
sínum í austurríkjunum, né heldur hafa þeir nokkurn tíma síðan
sýnt hina minstu tilhneigingu til þess. þeir eru svo strangir
og miklir íhaldsmenn, að þeir álíta Pennsylvaníu-félagið ekki
lúterskt nema að nafninu til.
Auk þjóðverja voru einnig Norðmenn, Svíar og Danir
farnir að flytja inn í Bandaríkin og jafnvel búnir að stofna
nokkur kirkjufélög. Eitt af þeim var Augustana Sýnódan
svenska, er ávalt hefir mjög eindregið sýnt sig að hafa lúterska
íhaldsstefnu, en um leið heitan, persónulegan kristindóm.
Ennfremur var kirkjufélag eitt, sem hafði aðal stöðvar sínar í
Ohio. það var eitt af hinum elztu lútersku kirkjufélögum í
landinu. það hélt alt af svo fast við kenningar Lúters, að
það hafði aldrei samlagað sig General Sýnódunni.