Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1900, Síða 7

Sameiningin - 01.03.1900, Síða 7
3 sínum var staddr í dýpstu og sárustu niðrlæging sinni. Út af gyöinglegri fyrirmynd komst þessi föstuhaldssiðr á í forn- kristninni. Gyðingar töldu þann sið alveg sjálfsagðan, þegar allsherjar hryggðarefni var á ferðinni eða reis upp í huga þeirra frá liðnum tíðum. Og kristnaðir Gyðingar, sem ein- mitt voru frumstofn kristilegrar kirkju, fluttu sið þennan með sér inn í kirkjuna. Jesús hafði að vísu aldrei gefið lærisvein- um sínum neitt föstuhaldsboð, en hinsvegar hafði hann ekki bannað þennan helgisið. Og svo hafði hann einnig sagt það fyrir, að sú tíð myndi koma, að þeir-—rétt eins og af sjálfu sér — myndi fasta, — hin makalausa hryggðartíð, þá er brúð- guminn yrði tekinn frá brúðkaupsgestunum, meistarinn frá lærisveinunum, — og þá myndi þeir ekki geta látið vera að fasta. þar er af honum sjálfum skýrt bent til písla hans og krossdauða og út af þeim makalausu hryggðaratburðum sögð fyrir fasta í lífi lærisveinanna. Og að því, er lærisveinahóp- inn upphaflega snertir, þá er auðvitað, að spádómr þessi hefir bókstaflega rætzt. því geta má nærri, að þeir hafa í sann- leika fastað, sökum hryggðar verið ómóttœkilegir fyrir alla líkamlega nautn, tímann allan, sem leið frá því meistara þeirra var óaftrkallanlega hrundið út í píslir friðþægingarinnar þangað til hann var frá dauðum upp risinn og vissan um upp- risu hans var rótföst orðin í sálum þeirra. Föstutíðin næst á undan páskum var þá líka upphaflega í kristninni að eins fjörutíu ldukkustundir, jafn-langr tími og menn samkvæmt guðspjallasögunni hugsuðu sér að liðið hefði frá krossfesting Jesú til upprisu hans. En mjög snemma fœrðist sú hryggðartíð út í kristnum söfnuðum, fyrst út yfir vikuna alla fyrir páska, dymbilvikuna, þar næst út yfir þrjár vikur, og loks yfir það tímabil allt, sem nú langa-lengi hjá oss Islendingum hefir nefnt verið langafasta (eða sjöviknafasta). Eiginlegabyrjaði þó föstutíð þessi ekki í reyndinni hjá forfeðrum vorum fyrr en með hinum svo nefnda öskudegi, miðvikudeg- inum næsta á eftir sunnudeginum í föstuinngang. Og alla sunnudagana á þessu tímabili voru menn undanþegnir föstu- haldi í bókstaflegum skilningi. Regluleg fasta stóð þannig yfir fjörutíu daga með tilliti til föstu frelsarans í eyðimörkinni

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.