Sameiningin - 01.03.1900, Blaðsíða 12
s
þingi var slitið laust eftir hádegi 4. Okt., og hafði það þá
"staðið yfir á 7. dag.
Um morguninn þann dag lögðum við séra Björn aftr á
stað frá Chicago, ánœgðir með að hafa fengið að sitja á þessu
þingi G. C.s. Komum við við í Milwaukee, Wis., aðallega
til þess að hitta séra Hans B. Thorgrímsen, sem er þar prestr
norsks safnaðar. Tók hann ljómandi vel á móti okkr. Er
Islendingrinn í honurn enn þá sterkastr, og kom það í ljós, að
hann kysi heldr að vera á meðal landa sinna en Norð-
manna. Viðstaðan hjá honum var of stutt, því seint um
kvöldið þurftum við á stað, séra Björn í missíónarferð til
Duluth, en eg áleiðis heim. Tók eg að vísu krók á mig og
fór til Minneota, dvaldi þar fram yfir þá helgi og embættaði
fyrir séra Björn á sunnudaginn í Minneota og Marshall. Var
mér ágætlega tekið á báðum stöðum og margt fólk saman
komið við báðar guðsþjónusturnar. Stór ánœgja var mér að
hitta góða vini og gamalt safnaðarfólk.
Leiðrétting:-—I greinarpartinum, sem stendr í Janúar-
númerinu, gat eg þess, að G. C. héldi þing vanalega annað
hvert ár ; en það hefir ekki verið nema síðan 1889. Áðr var
þing 'naldið á hverju ári, nema að eins í eitt skifti.
Missíónarfeið til Alberta.
Eftir séra Rúxói.r Marteinsson.
í ferð þessari var eg nærri tvo mánuði. Á leiðinni vestr
stóð eg við nokkra daga í Brandon og prédikaði í íslenzku
kirkjunni þar sunnudaginn 17. Des. síðastliðinn. Tóku Bran-
don-íslendingar mér mjög vel, og þykir þeim mjög vænt um,
þegar prestar kirkjufélagsins koma þangað til að prédika. Eg
hlustaði á kennslu í sunnudagssólanum þann sunnudag, og
gazt mér vel að því, sem fram fór. Börnin voruþáað búa undir
jólatrés-samkomu. þau kusu nefnd til að sjá um tréð og
prýða kirkjuna. Allt þetta fór samt fram undir umsjón for-
stöðumannsins, hr. Gunnlaugs E. Gunnlaugssonar.
Áðr hafði verið haft meira eða minna af ensku á þessum