Sameiningin - 01.03.1900, Side 13
9
samkomum. í þetta skifti var ákveðiö, að láta allt fara fram
á íslenzku. Eg tók eftir, að sumum börnunum lá við að
gjöra uppreisn út af þessu ; en j?ó felldu ]?au sig við að hafa
þetta þannig. Samt tók eg eftir ]?ví, meir en víðast hvar
annarsstaðar meðal Islendinga, að börnin, sem vaxa }?ar upp,
eru orðin ákaflega ensk, tala miklu meira ensku en íslenzku
og eru yfir höfuð með heldr litlum íslenzkum blæ. þetta
stafar eflaust einkum af því, hvað Islendingar eru fáir í bœnum.
Mér þótti samt vænt um börnin. þau mynduðu söng-
flokk kirkjunnar, og í þeirra hópi voru tvær stúlkur, sem á
víxl spiluðu á orgelið.
Kirkjufélagið ætti að sinna þessum litla hópi í Brandon
eins mikið og mögulegt er.
Meðan eg dvaldi þar var eg hjá hr. Ara Egilssyni.
Að morgni hins 20. Des. kom eg til Calgary, hitti þar
nokkra Islendinga og hélt áfram daginn eftir með Edmonton-
brautinni norðr til Innisfail. þar hitti eg einn af ungu mönn-
unum úr íslenzku nýlendunni, Helga Bardal, er var rétt að
leggja á stað heim til sín, þegar eg kom. Eg fékk keyrslu
með honum og komst samdœgrs til Jóhanns Björnssonar,
sem er póstafgreiðslumaðr á Tindastóls-pósthúsi. í húsi hans
hafði eg aðal-aðsetrsstað minn meðan eg dvaldi í byggðinni.
Á aðfangadagskvöld jóla var jólatrés-samkoma að Tinda-
stól, og hafði kvenfélag byggðarinnar, er nefnist ,,Vonin“,
komið henni á. Hr. Jón Kjærnesteð stýrði samkomunni.
Börnin sungu nokkra jólasálma. Hr. Kjærnesteð flutti lipra
rœðu um jólatréð og þýðing þess. Gjöfum var útbýtt og
menn óskuðu hver öðrum gleðilegra jóla. í sambandi við
samkomuna flutti eg prédikun og talaði til þeirra, sem komu,
um tilgang minn með því að koma í byggðina og fyrirætlanir
mínar meðan eg dveldi þar.
A jóladaginn flutti eg guðsþjónustur í tveimr öðrum
stöðum byggðarinnar, í Hóla-skólahúsi og í húsi Jóns Pétrs-
sonar. Voru þær guðsþjónustur báðar fámennar, og þótti
mér það slæmt með hina fyrri ; en um hina síðari er það að
segja, að í þeim parti byggðarinnar er fátt af íslendingum og
því ekki við mörgum að búast. En viö þessa seinni guðs-