Sameiningin - 01.03.1900, Side 14
10
þjónustu var einn Englendingr viö staddr. Hann skildi ekk-
ert orð í íslenzku ; en hann sagöi mér, aö sér hefði fundizt það
svo ójólalegt að sitja heima og sœkja enga guösþjónustu ; og
óskaði eg, að j?eir landar mínir, sem ekki sótíu neina jóla-
guðsþjónustu, hefði haft sömu tilfinning.
paö kom oftar fyrir, aö enskumælandi menn sóttu guðs-
þjónustur rnínar, og í eitt skifti gaf eg þeim útdrátt úr prédik-
aninni á ensku. Yfir höfuð viröist vera gott samkomulag
með Islendingum og nágrönnum þeirra af öðrum þjóðflokkum.
Hér eins og annarsstaðar ber á samtakaleysi vor Islend-
inga. Landiö er nefnilega að verða upptekiö af annarra
þjóða mönnum. Mikiíl innflutningr hefir verið inn í lands-
svæðið meöfram Edmonton-brautinni, þar sem gott, ónumiö
land var til. Mikið af löndum hefir þannig í sumar verið tek-
ið fyrir austan þessa íslendinga-byggð og eigi all-lítið jafnvel
inni í byggðinni sjálíri. Hví erum vér Islendingar að dreifast
út um alla heimsálfuna, allt af að leita oss aö landi á nýjum
svæðum, í staðinn fyrir hið eina skynsamiega, að gefa stœrri
byggðunum, sem þegar eru myndaðar, fyrsta tœkifœrið og
leita fyrst fyrir oss þar ? Vér eyðileggjum vort þjóðerni og
vorn þjóðernislega félagsskap með því að dreifast svona.
þetta kemr brátt í ljós, þegar maðr fer að tala um safnaðar-
myndun í hinum smærri byggðum. ]tá er manni undir eins
sagt : ,,]>etta getum við ekki; við erum svo fáir. “ En
hvers vegna ekki fleiri ? þarna í Alberta hefði getað verið
stór og blómleg byggö, eí landar hefði sinnt henni betr.
Hún getr meira að segja enn orðið stór ; því inikið er til af
ónumdu landi fyrir vestan byggðina.
Ekki verðr annað sagt en að í veraldlegum efnum líði
Islendingum þar heldur vel.
Hinn 27. Des. byrjaði eg að lesa með börnum og ung-
rnennum. í því er mikið verk til að vinna í byggðinni. Menn
eru búnir að vera þar úti ein 9—12 ár, og á þeim tíma hafa
nærri engin ungmenni úr byggðinni verið fermd, að undan-
skildum fáeinum, er biskup ensku kirkjunnar í Calgary fermdi
fyrir nokkrum árum. Á þessum tíma hefir mjög lítil kristin-
dómsuppírœösla átt sér stað. Sumt af þessu unga fólki er