Sameiningin - 01.03.1900, Side 15
vaxiö upp og komiö undir þrítugt, ófermt. Margt af því
brestr kjark eöa vilja til aö fara nú nokkuö að sinna kristi-
legri uppfrœðslu ; því finnst þaö, samkvæmt íslenzkum hugs-
unarhætti, orðið of gamalt, og, ef til vill, vex því í augum
það erviði, sem því er samfara að uppfrœðast í kristindómi.
því miðr eru sumir foreldrarnir ekki eins hvetjandi í þessu
tilliti eins og þeir ætti að vera.
Með öllu móti reyndi eg að vekja fólk til alvarlegrar um-
hugsunar um þetta mái og útrýma þeim rammskakka íslenzka
hugsunarhætti, að það sé skömm að fermast, að játa trú sína
á frelsarann, þegar maðr sé orðinn gamall ; en á suma hafði
það engin sjáanleg áhrif.
Samt var margt af unga fólkinu, sem til mín kom til
uppfrœðslu, eldra en fjórtán ára, og hefi eg um allflest börn-
in og ungmennin, sem til mín komu, gott eitt að segja, að
því, er íramkomu og ástundan þeirra snerti meðan eg var
meö þeim ; en ekki er því að neita, að sum þeirra voru mjög
fáfróð í öllu kristilegu. Ekki get eg heldr sagt um það, hvaða
áhrif þessar stundir, sem við vorum saman, höfðu á trúarlíf
þeirra, hvort nokkur neisti sannrar og lifandi trúar á frelsar-
ann kviknaði í brjóstum þeirra, hvort nokkur alvarleg hugsun
um sálarástand þeirra vaknaði hjá þeim eöa ekki. Guð einn
og þau sjálf hvert fyrir sig vita það.
Til þess að gjöra byggðarmönnum sem hœgast fyrir las
eg með ungmennum á þremr stöðum, og var eg sinn daginn
í hverjum staðnum og notaði vanalega alla virku daga
vikunnar til þess. þetta útheimti talsvert feröalag ; því þessir
staðir voru 6—io mílur hver frá öðrum. Með það hjálpuöu
byggðarrnenn mér mjög vel. Stundum keyrðu þeir mig ; en
oftast hafði eg reiðhest og fór þannig ferða minna. Hr.
Jóhann Björnsson lánaði mér um tíma reiðhest, og allan
semni hlutann af dvöl minni í byggðinni hafði eg hest, sem
hr. Jósef Stefánsson lánaði mér, og fékk eg aldrei að ganga
nokkurn spöl á þessum ferðum mínum. þetta veittu þeir mér
endrgjaldslaust.
Ferðirnar um byggðina voru mjög skemmtilegar. Fólkið
var æfinlega gott að heimœkja. Undantekningarlaust tók