Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1900, Síða 16

Sameiningin - 01.03.1900, Síða 16
12 hver einasti ma5r í byggöinni vel á móti mér, er eg kom að heimsœkja þá, og yfir höfuð vildu allir greiöa götu mína eftir því, sem þeim var unnt. þeir, sem eg var mest hjá, er eg var viö barnaspurningar, eru Jóhann Björnsson, Jón Jónsson, Jón Pétrsson og Stephan G. Stephansson, skáldiö. Utsýni í byggðinni er líka víöa fagrt. Landslagi hennar er svo háttaö, aö syöri hlutinn er smáöldumynduö slétta. þar norör af myndast hár og breiör ás, sem nefndr er ,,Felliö“. Nokkrir Islendingar byggja austan í Fellinu og austan viö þaö. Einar þrjár mílur fyrir vestan Fellið rennr á til suörs, sem nefnist Medicine River. Meöfram henni er hólótt landslag. J)ar er margt af Islendingum. þegar sunnar dregr, beygir áin til austrs og rennr fyrir sunnan Islendinga- byggöina á sléttunni. Úr allri byggöinni, en einkum þó af Fellinu, sést vel til Klettafjallanna. þaö er einkennilegt að sjá, meö hve margvíslegum myndum þau birtast manni. Stundum eru þau blá eins og skýin, sem þeim eru áföst, stundum fannhvít, stundum meö miklum skuggum, svo þau lyftast upp eins og draugslegar vofur úr jafnsléttunni, stund- um drungaleg, stundum björt, en allt af tignarleg. í allt flutti eg tólf guðsþjónustur í byggöinni og skíröi ellefu börn. Meöan eg dvaldi í byggðinni komst á fót sunnudagsskóli, sem haldinn er í Hóla-skólahúsi. Hr. Jón Kjærnesteð stendr fyrir honum ; en yfir höfuö eru ógurleg vandræöi aö fá nokk- urn til aö kenna þar á sunnudagsskóla. Síðasta guösþjónustan í byggðinni fór fram í Hóla-skóla- húsi, sunnudaginn 4. Febrúar. J)að átti aö veröa altaris- guösþjónusta. þaö var búiö aö auglýsa hana vel í öllum pörtum byggöarinnar. Veör, sem hér um bil allan þann tíma, er eg dvaldi þar, var aðdáanlega fagrt og skemmtilegt, var þennan dag heldr kalt og skuggalegt. Samt var skóla- húsið fullt af fólki. Ýmsir, sem langt áttu eða höföu ung- börn, gátu þó af þessu ekki komið. Hálf-hræddr og skjálf- andi gekk eg fram fyrir íólkiö þennan dag. Mig langaði sér- staklega til aö guös orö heföi áhrif á fólkiö viö þetta tœki- fœri. Áör en guösþjónustan byrjaöi baö eg þá, sem ætluöu

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.