Sameiningin - 01.03.1900, Síða 17
13
aö vera til altaris, aö gefa sig fram. Enginn hreyfði sig ; eng-
inn sagði neitt. Eg ítrekaði þetta aftr, en ekki einn einasti
gaf sig fram. Eg fór að hugsa : Hvort er nú þetta ástand
fólkinu þarna eða oss kirkjufélagsmönnum að kenna ? Líklega
hvorttveggja. Hvað höfum vér verið að gjöra, að vér höfum
ekkert sinnt þessu fólki allan þennan tíma, að vér höfurn
látið akr guðs komast í þessa skelfilegu órœkt ?
Til þess að lýsa rétt verð eg að segja, að ýmsir höfðu
hugsað sér að vera til altaris, þar á meðal ýmsar gamlar
konur, sem ekki gátu komið þennan dag vegna veðrsins ; en
svo voru ýmsir fleiri, sem höfðu hugsað sér hið sama, en
komu sér ekki að því þarna í skólahúsinu. þeim fannst allt
svo ókirkjulegt þarna í kringum sig. Og svo var annað.
Hver fyrir sig hélt, að einhver annar myndi verða til altaris,
en engum datt í hug, að allir myndi svona fara, að alla myndi
á þessu augnabliki bresta kjark til að vitna um frelsara sinn
á þessum stað. Og svo veit eg, að rnenn voru óánœgðir við
sjálfa sig á eftir.
Sunnudaginn 21. Jan. var haldinn fundr í Tindastóls-
skólahúsi eftir guðsþjónustu til undirbúnings safnaðar-
myndunar. Var þar samþykkt að stofna söfnuð og nefnd
kosin til að semja lagafrumvarp. Jtriðjudaginn 30. Jan. var
svo haldinn annar fundr í húsi hr. Ófeigs Sigurðssonar.
þá var samþykkt lagafrumvarp nefndarinnar meö litlum breyt-
inguin ; en frumvarp nefndarinnar var mestmegnis safnaðar-
laga-frumvarp kirkjufélagsins. Afrainhald af þeim fundi var
svo haft í húsi hr. Jóhanns Björnssonar mánudaginn 5. Febr.,
°g þá kosnir þessir safnaðarfulltrúar: Jóhann Björnsson,
Kristján Jónsson, Gísli Eiríksson, Jón Pétrsson, Ófeigr Sig-
urðsson. Við þetta sama tœkifœri komu menn líka saman til
að skemmta sér, og höfðu konur í söfnuðinum stofnað til
]?ess samkvæmis.
Daginn eftir lagði eg á stað áleiðis til Calgary. Með
hlýjum þakklætis-tilfinningum skildi eg við byggðina. Guð
blessi hinn unga söfnuð!
Sama kvöldið kom eg til hr. Gunnlaugs Sigurðssonar í
Calgary og hélt guðsþjónustu í húsi hans. Daginn eftir var