Sameiningin - 01.03.1900, Side 18
14
eg þar í bœnum og heimsótti ýmsa landa. íslendingar eru
fáir þar, en góöir heim aö sœkja og vingjarnlegir í viðmóti.
Kl. i f. h. 8. Febr. steig eg upp í lestina til Winnipeg.
Margar endrminningar frá feröinni komu fram í huga
minn, og eg dirfðist að biðja guð að blessa þessa ferð og veita
henni einhvern árangr.
------X300-Í---------
Trúarsamtalsfundir voru haldnir í þremr kirkjum til-
heyrandi söfnuðum kirkjufélagsins íslenzka nálægt næst-
síðustu mánaðamótum : — í kirkju Selkirk-safnaðar miðviku-
daginn 31. Janúar að kvöldi, í Fyrstu lútersku kirkju í Winni-
peg föstudagskvöldið 2. Febrúar, og í kirkju Argyle-safnað-
anna (Fríkirkjusafnaðar og Frelsissafnaðar) þriðjudaginn 6.
Febrúar. — Á Selkirk-fundinum var umtalsefnið kristilegt
barnaupþeldi, og hélt séra Jón Bjarnason þar inngangsrœð-
una. Sá fundr var fremr vel sóttr; en prestar voru þar að
eins tveir : séra Björn B. Jónsson og sá, er áðr var nefndr.—
Á fundinum í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, sem var öllu
lakar sóttr, var talað um bœnina. Inngangsrceðuna um það
mál hélt séra Björn. Auk hans og séra J. Bj. var af prestum
viðstaddr á þeim fundi séra Jónas A. Sigurðsson. Var við
því búizt, að hann yrði líka á fundinum í Selkirk ; en það fórst
fyrir sökum þess, að þann dag, sem hann kom norðr til Winni-
peg, 31. Jan., varð járnbrautarlestin að sunnan svo mjög á
eftir réttum tíma með hann, að honum var ekki unnt eftir
það að ná til Selkirk utn kvöldið. Eftir helgina næstu fóru
hinir þrír prestar vestr til Argyle til þess að vera á samtals-
fundinum þar ásamt séra Jóni J. Clemens, presti þeirra safn-
aða. Umtalsefnið á þeim fundi var aftrhvarfiS, og hélt séra
Jónas inngangsrœðu um það mál. Mátti fundrinn heita mjög
vel sóttr, einkum þegar tekið er tillit til þess, að þann dag
var býsna harðr snjóbylr. Hluttaka af hálfu leikmanna þar
var og í betra lagi eftir því, sem vér höfum átt að venjast
við slík tœkifœri.
-----o<«o-^-------
Tímarit norálenzkn prestanna.
Sumarið 1898 héldu 16 prestar úr Skagafirði og Húnaþingi frjálsan
kirkjumálafnnd í Sauðárkrók. Og er dálítið skýrt frá því fundarhaldi í
,,Sam.“ XIII, 8 (Okt. ’98 . Á þeim fundi var meðal annars ályktað, að
reynt skyldi að fá presta hæði í þeim pröfastsdcemum og sömuleiðis í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslu til að ganga í lögbundið félag. sem árlega
héldi einn aðalfund að sumarlagi. Samkvæmt þessari ályktan héldu 22
norðlenzkir prestar aftr fund á Akreyri í sumar, sem leið, 26. og 27. Júní,