Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1903, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.12.1903, Blaðsíða 13
157 indómrinn gjörir ekki eðlisfar allra manna jafnt. En einmitt fyrir þá sök getr verið hættulegt fyrir menn aö dœma alla aðra á heimilinu eítir sínu lundarfari. ÞaS er hœgt aS syndga í þá átt aö þvinga hina ungu of mikiö. Þaö hefir oft komið fyrir, og hefir þá útkoman stundum oröið sú, að ung- lingarnir hafa hlaupið frá heimilinu eins og úr dýflissu, sökkt sér niör í guðlausar skemmtanir annarsstaðar og tapazt. Þetta um skemmtanir er eitt hið mesta vandamál, sem fyrir oss liggr á þessum tíma. Löngun til skemmt- ana hjá nærri því öllu ungu fólki er all-sterk, og það er meö öllu óhjákvæmilegt að veita því einhverja skemmtun, enda mikið til af skemmtunum, sem eru til blessunar bæði líkamlega og andlega. En á hinn bóginn er þetta hættuleið, því það úir og grúir af skemmtunum, sem eru til spiilingar. Sumar af þeim eru einnritt þær, sem virð- ast einna mest töfrandi fyrir unga fólkið, eins og t. d. dans. Til úrlausnar þessu virðist ekki* vera nema aö eins eitt ráð. þaö, að kenna unga fólkinu að skemmta sér fallega, að koma inn hjá því réttum smekk. Sá, sem einu sinni hefir fengið smekk fyrir því, sem göfugt er og fagrt í bókmenntum og músík, er ekki líklegr til þess að leggja sig niðr að auð- virðilegu rusli. Sá, sem einu sinni hefir fengið smekk fyrir skemmtunum, sem eru fagrar og göfgandi, og fengið viðbjóð á því, sem er gróft og skaðvænlegt, er ekki líklegr til að falla fyrir freistingum siðlausra skemmtana. Hér er þá mikilvægt verkefni fyrir heimilin. Látið heim- ilin vera heimkynni saklausrar og hreinnar gleði. Bjóðið Jesú Kristi inn á heimili yðar einmitt á gleðistundunum eins og brúðhjónin í Kana forðum. Takið aldrei þátt í neinni skemmtan nerna þar sem þér getið beðið hann að vera með yðr. Þá kastið þér fljótt hinum ljótu og ógöfugu skemmtunum. Af skemmtunum er engin betri eða göfugri en sönglist. En einnig og ekki sízt þar þarf menntaðan smekk, sem kann að velja það, sem fagrt er. Sé það gjört, er óhætt að segja, að það er engin ein skemmtun, sem veldr eins mikilli breyt- ing til gleði á heimilinu eins og hljóðfœrasláttr og söngr.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.