Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1903, Síða 14

Sameiningin - 01.12.1903, Síða 14
158 Hlynnið aö heimilum yðar. LátiS yðr þykja vænt um þau. Leggið mikið í sölurnar fyrir þau. Reynið til þess að gjöra þau að yndislegum stað. Látið þau eignast það and- rúmsloít, sem þroskar hina ungu á vegi gæfu, sem verðr sterkt afl til að halda þeim frá illu, þegar út í lífið er komið. ,,Látið Krists orð ríkulega búa hjá yðr, svo að þér með allri speki kennið hver öðrum og áminnið hver annan, sœtlega syngjandi drattni lof í yðar hjörtum. “ Trúmálafundir í Minnesota. Það hefir verið um nokkur ár venja safnaðanna í Minne- sota, að halda trúmálafundi seint á haustin. Hafa þá oftast einhverjir af prestum kirkjufélagsins í öðrum söfnuðum komið til að standa fyrir fundunum. í þetta sinn var það séra Rún- ólfr Marteinsson í Nýja Islandi, sem suðr kom. Hálfpartirin áttu söfnuðirnir líka von á forseta kirkjufélagsins til fundanna, en honum reyndist ómögulegt að komast að heiman um það leyti. Söfnuðunum þótti mikið fyrir, að hann ekkigat komið, en með fögnuði tóku þeir við kveðju hans og blessunaróskuin, er hann sendi fundunum. Séra Rúnólfr kom til Minneota að kvöldi dags 18. Nóv. Næsta dag (fimmtud.J var fundr haldinn í söfnuðinum í Lin- coln County. Því miðr var fundr sá fremr fámennr, en til þess var sú orsök, að þresking stóð yfir hjá sumum bœndum í byggðinni. Umtalsefni á fundinum var bœnin. Var séra Rúnólfr málshefjandi bæði á þessum fundi og öllum hinum. Auk hans og prests safnaðarins töluðu þrír leikmenn: Pétr V. Pétrsson, Jóh. Pétrsson og Guðrún Sigvaldason. Að kvöldi sama dags var bandalagsfundr í Minneota, og flutti séra R. M. þar erindi um íslenzkar bókmenntir. Næsta dag að kvöldinu til var haldinn trúmálsfundr í kirkju St. Páls safnaðar í Minneota. Var hann vel sóttr. Umtalsefni var hið sama og daginn áðr í Lincoln County. Auk prest- anna tveggja töluðu tveir leikmenn: Sigb. S. Hofteig og Bjarni Jones. Daginn eftir (laugard.) var fundr í Vestrheimssöfnuði, og var hann fremr vel sóttr. Á þeim fundi var umtalsefnið syndin. í umrœðunum tóku þátt, auk prestanna, þrír leik- menn: Kr. J. Vopnfjörð, Bjarni Jones og Sigb. S. Hofteig. Sunnudaginn þar á eftir prédikaði séra Rúnólfr í tveimr söfnuðum prestakallsins, á hádegi í söfnuðinum í Lincoln

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.