Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1951, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.01.1951, Qupperneq 14
12 Sameiningin borist um allan heim til blessunar og uppbyggingar íyrir æskulýðinn alstaðar. Robert Raikes dó snögglega 1911; hann sat við skrif- borðið sitt þegar kallið kom. Ekkert var hægt að gjöra; að hálfri klukkustund liðinni var hann liðið lík. Hann var stórmenni og einn í tölu hinna fjölmörgu endurbótamanna á Bretlandseyjum, sem hafa gjört brezku þjóðina heims- fræga, jafnvel eftir 30 ára starf og stríð, þegar Raikes dó, gátu menn ekki enn gjört sér grein fyrir hvaða feikna frama spor heimurinn hafði stigið, er Raikes stofnaði Sunnu- dagaskólann. Hinn merki enski söguritari J. R. Green hefir sagt, „að Sunnudagaskólinn, sem Robert Raikes frá Gloucester stofn- aði í lok 18. aldar, hafi verið upphaf alþýðumentunar hjá þjóðinni“. Nú er talið að Sunnudagaskólarnir vítt um heim telji frá 30 til 40 milljónir meðlima. Sunnudagaskólinn stefnir að því marki að innræta æskulýðnum kenningu Krists og innræta þeim heilbrigt og fagurt líferni. „Kenn þeim unga veginn sem hann á að ganga, og jafn- vel á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja“. Þess vegna ættu allir ungir og gamlir í okkar mann- félagi að styrkja Sunnudagaskólana, og ekki einungis hvetja æskuna til þess að vera lifandi meiður á því græna tré, heldur líka ganga á undan með góðu eftirdæmi. Enginn getur skaðast á því að læra kristna siðmenningu og enginn maður verður minni maður þó hann krjúpi á kné við fótskör meistarans, og enginn getur neitað því að stofnun Sunnudagaskólans og starfsræksla hans innan kirkjunnar hefir verið eitt af stærstu framförum á sviði andans á síðari öldum. _________+_________ Vegur lífsins Eftir ÁRNA SVEINBJÖRNSSON Náðugur og miskunsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæzkuríkur. Góðum Guði sé lof! Ég hefi fundið veginn til eilífs lífs og eilífrar sælu og ég hefi fundið þann sælasta blett undir

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.