Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1951, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.01.1951, Qupperneq 17
Sameiningin 15 „Nýtt ár enn þá Guð oss gefur" I máttugum nýárs sálmi segir séra Matthías Jochums- son: „Hvað boðar nýárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól“. Svarið við spurningunni í þessu versi hefir mér fund- ist ein hin allra einkennilegasta ljóðlína í sálmabókinni. Má vera, að betur fari að telja hana sérkennilega! Það er hún áreiðanlega. Hvað er átt við með þessum orðum „nátt- úrunnar jól?“ Þegar ég fer að athuga þetta, rennur upp fyrir mér sú sálarsjón, að jólin eru hið allra dásamlegasta undur í mannkynssögunni, sem sýnir Guð í náttúrunni. Guð í sköpunarverki sínu, Guð í hinu fegursta sambandi við mennina, Guð kærleiksgjafarinnar miklu og allra góðra hluta. Jólin eru tákn þessa kærleiksríka sambands Guðs við mannkynið, og Matthías staðhæfir, að þetta samband nái út yfir allan ársins hring. Með því að gjöra alt árið að jólum, erum vér að staðhæfa, að kærleikur Guðs er hinn allra dýrðlegasti sigurmáttur allrar tilverunnar, ekki ein- ungis einn dag heldur árið alt, og öll ár til daganna enda. Að þessu lúta fegurstu ljóðlínur sálmsins, eins og t. d. þessar: „Hann heyrir stormsins hörpuslátt, hann heyrir barnsins andardrátt, hann heyrir sínum himni frá hvert hjartaslag þitt jörðu á. í hendi Guðs er hver ein tíð, í hendi Guðs er alt vort stríð; hið minsta happ, hið mesta fár, hið mikla djúp, hið litla tár“. Þetta kemur heim við fyrirsögnina fyrir þessum orðum: „Nýtt ár enn þá Guð oss geíur“. Guð er frumorsökin í öllum gæðum; hann er gjafarinn allra góðra hluta. Einnig árið, ásamt árunum öllum, er gjöf Guðs. Eins og sólargeislarnir streyma niður á jörðina, kyssa frækornin og blómknappana sem lífgjafi þeirra, og

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.