Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1958, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.12.1958, Qupperneq 7
Sameiningin 5 hirðarnir eru úti að gæta hjarðar sinnar að nóttu til. Þá er það að þeir heyra boðskap himneskra herskara: „í dag er yður frelsari fæddur,“ o. s. frv. Dýrð Drottins ljómar umhverfis þá. Þeim nægir ekki að heyra boðskapinn, heldur finna þeir sig knúða til að fara og sjá barnið. Gleðiboðskap- urinn um fæðingu hans fær fylling við það að mega líta hann augum. Vissan um nálægð Guðs er nú þeirra, er þeir halda aftur til starfs síns, og tóku hinn síðari hluta nætur- vökunnar. Nóttin hvarf fyrir ljósi hins nýja dags. Þeir voru endurnýjaðir af styrk trúarinnar. Þeir höfðu þreifað á handleðislu Guðs, og áttu nú öryggi og traust í sálu sinni. Vitringarnir eru á öðru stigi heldur en hinir fátæku fjárhirðar. Þeir hafa ekki útsýn þeirra, er uppfræddir höfðu verið á Gyðinglega vísu um hinn fyrir heitna Messias. En þeir eiga þessa undursamlegu hugarsýn, að hinn almáttugi Guð, stjórnari alheimsins, ráði öllu, og í auðmýkt leggja þeir af stað eftir leiðsögn hans. Hver þeirra um sig hafði verið knúinn til þess af innri mætti Guðdómsins í sinni eigin sál, að fara og leita að hinum nýfædda konungi. Meðferðis hafa þeir gjafir, er þeir álitu samboðnar honum. Yfir ömurlega eyðimörk liggur leið þeirra, en eftir því sem leiðin verður lengri eykst þeim fullvissan um að Guð sé að leiða þá. Er þeir hafa fundið barnið krjúpa þeir í lotningu og tilbeiðslu og færa honum gjafir sínar. Það hugarfar gerir gjafirnar honum samboðnar. Guð, sem hafði leitt þá til Betlehem, leiðbeinir þeim að varast svikráð Heródesar konungs, er þeir snúa heimleiðis aðra leið. Öryggi og gleði fyllir sál þeirra, er þeir höfðu augum litið hinn nýfædda konung, sem Drottinn hafði leitt þá til, og sem þeir nú vildu hlýða og helga vilja sinn. Að lokum athugum við komu Símonar í helgidóminn, er foreldrarnir koma þangað með barnið Jesú, eftir reglu lögmálsins. Símon var réttlátur og guðrækinn og vænti huggunar ísraels. Honum hafði verið birt það af heilögum anda, að hann skyldi „ekki dauðann líta fyrr en hann hefði séð Drottins smurða.“ Hann tók barnið í fang sér og lofaði Guð og sagði: „Nú lætur þú herra þjón þinn í friði fara, eins og þú hefir heitið mér, því að augu mín hafa séð hjálpræði þitt, sem þú hefir fyrirbúið í augsýn allra lýða, ljós til opin- berunar heiðingjum, og til vegsemdar lýð þínum ísrael.“ Símon er framsögumaður hinnar trúuðu elli, sem hér talar

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.