Sameiningin - 01.05.1945, Page 3
ái>ametmngtn
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Islendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vesturheimi.
Ritstjóri: Séra Sigurður ólafsson, Box 701, Selkirk, Man.
Féhirðir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg.
60. ÁRG. WINNIPEG, MAÍ, 1945 Nr. 5
Bœn við átríðslok
“Friðarins guð, in hæsta hugsjón mín.
höndunum lyfti eg í bæn til þín.”
Til þín heilagi faðir lyftum vér jarðarbörnin hugum og
hjörtum á þessum blessaða langþráða degi. Eftir honum
höfum vér lengi vænt og um hann beðið. Vér lofum og
vegsömum þitt heilaga nafn fyrir elsku þína og náð, frá
æsku vorri til þessarar stundar. En sérílagi þökkum vér
þína -eilífu föðurvernd á umliðnum ægilegum stríðsárum,
þegar að þróttur vor virtist ætla að dvína, sökum óvissu
örlaganna snertandi fjarlægu ástvinina og alt er vér bárum
fyrir brjósti. Föðurleg umönnun þín brást oss aldrei. Vér
lærðum að treysta því að þú gafst þreyttum styrk fyrir
hverja líðandi stund, lærðum að treysta þinni eilífu föður-
vernd sonum vorum og dætrum til handa, mitt í hættum
og mannraunum er þau daglega áttu við að stríða. Vér
hugguðumst við það, að jafnt í lífi og í dauða að allir sem
á þig vona eru öruggir í föðurfaðmi þínum. Vér biðjum
þig að blessa sálir þeirra sem heim hafa verið kallaðir;
leið þá til fullsælu dýrðar þinnar. Mætti minningin um
þá helga oss og blessa; ger oss hæfa til að lifa í þeim
fórnaranda er þeir sýndu í lífi og í dauða. Styrk þá sem
enn verða að heyja þetta stríð til enda. Gef oss náð til að