Sameiningin - 01.05.1945, Side 5
85
Þú heyrðir hér íslenzkan sálmanna söng
frá sigrandi landnemans hjarta.
Um sáðlöndin fórstu og sást þeirra föng
sannasta gróðann frá hverri korn stöng,
er lyftist mót Ijósinu bjarta.
í musteri drottins við altarið inst
þú ávannst þér hjörtu guðsbarna.
Þú blessaðir hópinn, ei fegri bæn finst
í frelsarans nafni þér verkið æ vinnst
þitt lífsstarf er lýsandi stjarna.
Ingibjörg Guðmundsson,
Tujunga, California.
Framkvæmdarnefnd Hins Evangeliska Lúterska Kirkju-
félags Islendinga í Vesturheimi, hefur samþykt að halda
ársþing Kirkjufélags vors dagana 21. til 26. júní í sumar.
-Samkvæmt góðu boði Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg
verður þingið haldið hjá þeim söfnuði. Byrjar það með
guðsþjónustu, altarisgöngu, þingsetningu og skýrslu forseta,
fimtudagskvöldið 21. júní kl. 8 e. h., í Fyrstu lútersku kirkju.
Þetta þing er sérstakt hátíðarþing, þar sem þar verður
minst hundrað ára afmælis Dr. Jóns Bjarnasonar, hins
ástsæla leiðtoga félagsins á fyrri árum, og kirkjufélagið
minnist líka 60 ára afmælis síns. Einn af hinum góðu aðkomu-
gestum á þinginu verður hinn mikilsvirti forseti U.L.C.A.
— Dr. Franklin C. Fry.
Síðar verður þingið með dagskrá þess formlega auglýst.
En marga mun fýsa að vita um þingtímann sem fyrst.
H. Sigmar, forseti.