Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1945, Page 8

Sameiningin - 01.05.1945, Page 8
88 sem öll ríki eiga þingsæti, sífelt með höndum hið mikla hlutverk að efla friðinn. Þetta þing verður mesta fulltrúa- mótið í heimi, nokkurs konar heims-alþing, ef alt fer að óskum. Þar mæta margir af heimsins beztu og vitrustu mönnum ár eftir ár, bera saman ráð sín og hugmyndir og venjast á að vinna saman að velferðarmálum þjóðanna. Þinginu er ætlað að koma heimsmálunum í friðsamlegt horf á öllum sviðum, — í stjórnarfari, bjargræðisefnum og félagslífi — víkka verkahring laga og réttar í alþjóðamálum og hlynna að velmegun og siðmenningu gjörvalls mann- kynsins. Sérstakri sveit manna í þinginu er ætlað að annast rann- sóknir og ráðaleitanir á þessu sviði. Deildin er skipuð full- trúum átján þjóða, sem þingið velur þriðja hvert ár úr sínum hópi. Eiga þeir meðal annars að hafa gætur á hinum sífeldu straumhvörfum í iðnaðar- og viðskiptalífi heimsins, sem oft hafa valdið misfellum, þjóðaríg og jafnvel ófriði, en mega þó eins vel leiða til samstarfs, ef vel er farið að. “Velmegunar og félagsmála ráðið” er þessi þingdeild kölluð — Economic and Social Council. Hún má setja nefndir sér- hæfra manna til rannsóknar í hverju því máli sem slíks krefur, eða leita liðs af þeim milliþjóðanefndum, sem þegar eru til. Munu nefndirnar fjalla um atvinnumál, akuryrkju, gagnskipti og önnur verzlunarmál, uppgötvanir, gjaldeyris- mál, og svo framvegis. Ráðuneytið hefir ekki vald til að skipa fyrir; það aðeins leiðbeinir og gefur upplýsingar. Dumbarton Oaks fundurinn ætlaðist til þess, að al- þjóðaþingið með þessu “velmegunar ráði” mætti með tím- anum verða eins og þungamiðjan í allri viðleitni til sam- starfs á meðal þjóðanna og ná að bæta lífskjör alþýðunnar í öllum löndum. Þá er vígvarnarskyldan; hún hvílir á stórþjóðum allra mest, segja forsendurnar, og fjallar því öryggisráðið um það hlutverk að mestu leyti. Tvenskonar vörn kemur þar til greina; fyrst að afstýra hættunni, og síðan að kæfa niður bálið sjálft ef hið fyrra bregst. Við ófriðarhættunni setur samþyktin ýmsar varnir. Fyrst þá, að sérhver þjóð, sein gengur í sambandið, undirgengst að veita öllum ágreiningi friðsæl endalok með hverju því móti sem bezt hentar. málamiðlun, samningi, milligöngu annara, gjörðadómi, eða úrskurði alþjóðaréttar; og geta sjálfsagt mörg þrætumál

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.