Sameiningin - 01.05.1945, Qupperneq 11
91
lög eða reglugjörð um þjóðabandalagið nýja. Dumbarton
Oaks samþykktin verður lögð þar til grundvallar, líklega
með einhverjum breytingum.
Því er ekki að leyna, að samþykktin hefir sætt að-
finslum. Greinarnar hafa orðið að drjúgu umræðuefni síðan
þær voru birtar og hefir þeim verið fundið ýmisiegt tii
foráttu. Leiðandi kirkjumenn hafa gjört þær að fundar-
máli, bæði kaþólskir og mótmælendur. Hafa þeir gjört út
af því máli funda-ályktanir, sem líklega verður framvísað,
ef kostur er, á sambandsþjóðafundinum þar í San Francisco.
í annari grein mun eg reyna að gjöra grein fyrir
helztu atriðunum í þessum aðfinningum og gefa dálítið
yfirlit yfir úrslit þeirra mála á San Francisco fundinum.
G. G.
Kirkjan í hinum frjálsu norður-
héruðum Noregs
Eftir Arne Fjellbu, biskup
SigurÖur Ólafsson, þýddi
Höfundur þessarar greinar var á umliðnum vetri skip-
aður biskup í Norður-Noregi, eftir burtför Þjóðverja þaðan.
Hann er þjóðkunnur maður um endilangt ættland sitt, og
hefir staðið framarlega í baráttunni gegn þýzkum yfir-
gangi og áhrifum. Hann flúði land sitt 1 síðastliðnum janúar-
mánuði.
Fjellbu biskup er fæddur í Norður-Dakota ríki, en
foreldrar hans fluttu til Noregs er hann var ungur sveinn
að aldri. Þar ólst hann upp og menntaðist; hann er bernsku
leikbróðir séra S. Ó. Thorlákssonar fyrrverandi trúboða
vors, og hafa þeir haldið æfilangri vináttu. Foreldrar Fjellbu
biskups fluttu til Noregs um líkt ieyti og séra N. S. Thor-
láksson og frú hans og börn fluttu til Selkirk.
Kirkjur í norðurhluta Noregs eru langt hver frá annari.
Sumar þeirra eyðilögðust í baráttu umliðinna stríðs ára,