Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1945, Síða 14

Sameiningin - 01.05.1945, Síða 14
94 vinsamlegar. í samtali við mig lét hann í ljósi gleði sína yfir komu minni. Okkur er kunnugt um mótstöðu þína og baráttu gegn Nazistum, sagði hann. Afstaða þín skapar þér heillavænleg áhrif á hugi fólksins. Þú munt verða þjökuðum samlöndum þínum til blessunar, og gefa þeim kjark til að hefja viðreisnarstarfið sem bíður þeirra. Þess utan gaf hann mér mikilsverðar upplýsingar um það hvernig að ferðalög mín gætu orðið að sem mestum og hagkvæm- ustum notum. Á einum stað þar sem að guðsþjónusta var auglýst en ekkert skýli var fáanlegt greiddu rússnesku foringjarnir fyrir mér. Eg hefi verið að öllu leyti frjáls bæði í fyrir- ætlunum mínum og frámkvæmdum. Þeir hafa hjálpað mér, eftir því sem í þeirra valdi hefir staðið. Kirkjan í Norður-Noregi hefir á undanförnum hörmunga og baráttuárum reynst að vera köllun sinni trú; umliðin ár hafa verið beiskir reynslutímar biskupum, prestum og öllum safnaðarlýð — og hefir kostað mikla sjálfsfórn af flestra hálfu. Nú er kirkjan hér “norður á hjara heims” fyrir guðs náð — frjáls — og þráir að þjóna meistara sínum og samtíð betur en nokkru sinni fyr. Oft eru hinar ýmislegu leiðir mannanna líkar götum stórborganna; þær eru ýmist bjartar eða dimmar, eftir legu þeirra eða stefnu, og hvernig þær horfa við sólu. Þegar sólin fær notið sín, fær hún sjaldan skinið á þær allar í einu. Iðulega er gatan björt annars vegar, en dimm á aðra hlið, en þá er hægt að víkja yfir á björtu hliðina, og þá fara menn hressari í huga. Þannig eru götur mannlífsins; sjaldan eru þær svo dimmar, að ekki gæti sólskins um nokkurn hluta þeirra. Að vísu getur verið all-dimt með köflum, en það mun naumast endast lengi. Nú er dimt mjög í heiminum, er sízt að undra þótt mörgum fallist hugur af þeim miklu myrkrum.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.