Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1945, Side 16

Sameiningin - 01.05.1945, Side 16
96 samferðamenn margir frá upphafi vega. Hinir trúustu þjónar Guðs hafa gengið þessa leið, og bergt hinn beiskasta þján- inga bikar. “Eigi hefir fram komið meðal þeirra, er af konum eru fæddir, meiri maður en Jóhannes skírari”, — svo mælti frelsarinn. Hver mun þó hafa búið við harðari kosti en hann? Svo endar æviferill hans í bjargprísundinni í Makörus, undir kastalanum, þar sem Herodes Antipas var að halda upp á afmælisdag sinn með glaum og gleði; er ekki ólíklegt að ómurinn frá hin(ni hávaðasömu drykkjuveizlu, ger- spiltra hirðgæðinga Herodesar hafi borist niður í dimmu heimkynni hans. Hve lengi að Jóhannes hafði alið aldur sinn á þessum stað, verður ekki vitað með vissu. Heimurinn fær aldrei að vita hvað hann leið. Það er ekki skrásett á hina köldu steinveggi fangelsisins; orðsending sú, sem hann gerði frelsaranum með lærisveinum sínum sýnir berlega það sálarstríð, sem Jóhannes átti í. Fáir hafa verið meiri meinlætismenn en Páll postuli: “vegna fangelsa, vegna hagga, vegna dauðahættu; af Gyð- ingum hefi eg fimm sinnum fengið fjörutíu fátt í einu; þrisvar verið húðstrýktur, einu sinni verið grýttur, þrisvar liðið skipbrot, verið sólarhring í sjá; — vegna sífeldra ferðalaga, vegna háskasemda í vatnsföllum, vegna háska- semda af völdum ræningja, vegna hungurs og þorsta, kulda og klæðleysis”, o. s. frv. Liggur næst, að manni ofbjóði þessi frásaga úr ævi- ferli postulans; oft hefir honum verið dimt fyrir augum, að því er virðist. Hvað er það þá, sem veitti Páli hugrekki til þess að halda leiðar sinnar án þess að láta hugfallast? Hann lætur engan í vafa um það. “Mér er það að lifa Kristur og að deyja ávinningur.” í þessu er fólgin ráðningin á æviferli postulans. Þess vegna gat hann líka sagt: “Eg hefi barist góðu baráttunni, hefi fullnað skeiðið, hefi varðveitt trúna.” Saga þeirra, sem hafa með undirgefni og langlundar- geði gengið undir krossinum, með Guð í hjarta og fyrir augum, er saga ómælilega merkileg; munu og þær “kross- ferðir” haldast við, eins og þær hafa gert frá upphafi vega. Krossferðir manna líkjast oft göngu ferðamannsins;

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.