Sameiningin - 01.08.1948, Qupperneq 10
104
S AMEININGIN
hjartkærust vormerki, að saman hefir verið að draga meir
og meir með kristnum deildum um allan heim. Þessi morg-
unroði alheimskristni, hefir vakið þá von, að nýr dagur
friðar og bræðralags sé að koma, særðu og kvíðandi mann-
kyni til blessunar. Og þetta er ávöxtur kristinnar kirkju. —
Stríðsreynslan lét okkur sjá þetta.
En vér megum ekki gleyma, hverjir eru valdir að
ávexti þessum, um yztu mörk jarðar. Það eru menn og
konur, trúboðar segjum vér, en fyrst og fremst menn og
Krists, að þeir gáfu líf sitt, starfandi fórnandi, deyjandi eins
og hann, að þeir sem í myrkrinu sátu mættu sjá ljós. Ljós
elsku Drottins í lífi Krists í lífi sínu eigin. Einstaklingsá-
takið lyfti Grettistakinu fyrir aðstoð Guðs Föður og allur
heimurinn skal af því blessun hljóta. Þennann fórnaranda
út á við verður hver kristinn einstaklingur að þroska. Ekk-
ert minna felst í kalli Krists til vor.
“Hann býður ennþá farið, laðið, leiðið
og leitið, kallið, biðjið þrýstið, neyðið.
Mitt kærleiksdjúp á himinsvíðar hallir,
í húsi mínu rúmast allir, allir”.
Vakið og biðjið, að í smæð og veikleika vorum megum
vér samt orka, fyrir Guðs náð, slíkum kraftaverkum mann-
kyni til frelsunar. Það er að reynast trúr lærisveinsstarfi
sínu. Það er að ávaxta sitt pund. Það er að rísa yfir smæðina,
veikleikann og einstaklingsskapinn. Gefi Guð oss náð til
þess. —
ViShorfið hjá oss
Söfnuðir kirkjufélags vors eru mjög dreyfðir um álfu
þessa. Er það að vísu eðlilegt, því þar sem íslendingar eru
/íokkur verulegur hópur ættu þeir að standa saman um
kristin málefni, ekki sízt. Sumstaðar hafa söfnuðir dáið út
þar sem þeir eitt sinn höfðu verið stofnaðir; og deyr þá
venjulega alt íslenzkt starf hjá þeim hópi. Er hér því beint
samband milli íslenzkra erfða og sjálfstæðs íslenzks félags-
skapar og kristins starfs. Lengst lifir alt hið íslenzka þar
sem við höfum söfnuði. En þar hafa söfnuðir haldist bezt
við án þess að kyrkingur færi í starf þess, þar sem ekki var
dregið um of að hefja notkun enskrar tungu í starfi og til-