Sameiningin - 01.08.1948, Page 17
SAMEININGIN
111
Séra Valdimar J. Eylands og fjölskylda
hans komin heim
Vér fögnum því að séra Valdimar J. Eylands og fjölskylda
hans eru nú farsællega heim komin, eftir árs dvöl á íslandi,
og jafnlanga þjónustu í Útskála prestakalli, prestakalli séra
Eiríks S. Brynjólfssonar. Jafnframt því að þjóna téðu
prestakalli, þjónaði séra Valdimar einnig nágranna presta-
kalli — Staðar prestakalli í Grindavík. — Þess utan mun
hann hafa haldið uppi reglubundnum guðsþjónustum meðal
ameríkönsku flugmannanna í Keflavík. Hann vakti á sér
athygli manna fyrir óvenjulega atorku í prestsþjónustu. —
Aðalprédikun flutti hann á Synódus-prestastefnu íslands,
stuttu áður en hann fór að heiman. Vér bjóðum séra
Valdimar og frú hans og börn, innilega velkomin heim til
starfs og dvalar í heimahögum vorum hér vestra.
___________-i-_________
Samsæti var séra E S. Brynjólfssyni og frú Guðrúnu
haldið á Fort Garry Hóteli, miðvikudaginn 21. júlí, undir
stjórn forseta kirkjufélags vors, séra Egils H. Fáfnis,
og að tilhlutun hans. — Viðstaddir voru nokkrir prestar
kirkjufélagsins og framkvæmdarnefnd félagsins og
konur þeirra. — Samsætið var ánægjulegt, og fór
vel fram. — Ýmsir viðstaddir tóku til máls. Séra Egill
H. Fáfnis ávarpaði heiðursgestinn fögrum orðum og vel
viðeigandi, og skýrði frá að honum yrði send eintök af
þeim bókum sem kirkjufélagið hefir gefið út, einnig
Sálmabók árituð af þeim er viðstaddir voru. — Séra Sigurð-
ur Ólafsson mælti nokkrum orðum til frú Guðrúnar
Brynjólfsson. Vék hann að því að þau hjón bæði hefðu
“komið, séð og sigrað”, — hvert á sinn hátt. Séra Eiríkur
flutti fögur kveðjuorð og upplyftandi. —■ Vér þökkum
þeim hjónunum dvölina vor á meðal. Hinn bróðurlegi og
virki hlýi hugur sem einkennir þau bæði, færði oss hér
vestra ánægju og gleði, sem varir — þó leiðir skilja.
Hjartans þökk fyrir komuna og dvölina vor á meðal!
S. Ólafsson.