Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1940, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.11.1940, Blaðsíða 15
141 manna komið yfir á meginland Norður-Ameríku. Eyjar- búar i'lytja smám saman til lands og setjast að í New York margir og verða þar húsviltir kirkjulega. Eftir alvarlegri beiðni frá eyjabúum hóf Sameinaða kirkjan heimatrúboð á meðal blökkumanna af lúterskum ættum í Harlem. Hefir sú tilraun gefist mætavel; þar er nú öflugur Svertingjasöfn- uður vaxinn af þeirri rót, og alveg sjálfstæður efnalega. Nefndin annast nú missíón á meðat blökkufólks í Long Island líka. En víðar í Ameríku hefir hún ekki séð sér fært að sinna þessum kynflokki. Veldur því efnaskortur. Annað trúboð á Vestur-Indlands eyjum hefir nefndin í umsjá sinni. Það er í Porto Rico. Þar er mesti urmull af bláfátæku fólki, bæði hvílu o,g blökku, og hirðingin bág- borin, andleg eðS stundleg, af hálfu þeirra sem betur mega. Nefndin annast því bæði líknarstarf og mentun barna með sjálfu trúboðinu. Starfsmenn eru flestir innfæddir Porto Rica búar; sumir þeirra hafa fengið mentun í Bandaríkj- unum. Stærsta missíónin er i höfuðborginni, San Juan. Starfa þar átta vígðir kennimenn og átta leikmenn; þeir hafa með höndum líknarstarfsemi, trúboð og kenslustörf. Eignir þessa trúboðs eru metnar á hálft annað hundrað þúsundir, en starfið kostar nefndina tuttugu og' fimm þús- undir árlega. Geta má þess, að á Virgin eyjum eru tveir lúterskir söfnuðir, sem lengur hafa notað enska tungu í starfi sínu, heldur en nokkur annar hópur af lútersku fólki í heiminum. Og nú ryður enskan sér til rúms á eyjunum, sjálfsagt, síðan þær komust undir Bandaríkjastjórn. 1 Porto Rico aftur á móti er spánverskan ein um hituna eins og víðar á Vestur- Indlands eyjum. Og þessi spánska missíón hefir nú skotið upp fi'jóöngum yfir í New York, eins og átti sér stað um Virgin evja trúboðið. Spánskur söfnuður er nú kominn á fót í þeirri borg, á vegum Sameinuðu kirkjunnar. Fyrsti vísirinn var hópur af lútersku fóllci frá Porto Rico, en ávöxturinn er einn af stærstu söfnuðum Spánverja i New York; og væri hann líkleg'a þegar orðinn sá langstærsti, ef hann hefði eignast hæfilega kirkju. Ymsai' deildir í lútersku kirkjunni hafa rekið trúboð á meðal Indíána í fjöldamörg ár; en Sameinaða kirkjan hafði engin ítök á því sviði, fyr en árið 1928, að hún varð við áskorun frá Indíánafélaginu — Ncttionnl Indian Associa- tion — og tók að sér kristilegt starf í Indíánahverfi vestur í Montana. Það er all-stór bygð og er nú óðum að stækka,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.