Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1932, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.10.1932, Blaðsíða 17
253 “Til aus.turheims”—trúboðsstöðvanna í Japan, fór trúboðs- fjölskyldan íslenzka, séra S. O. Thorláksson, frú hans og fjögur börn þeirra, frá Seattle í septembermánuði. Fylgja þeim bænir allra trúboðsvina. * * * Vestan af Strönd berast þær góðu, en,, á yfirstandandi tíð, fremur fágætu fréttir, að sá söfnuðurinn lúterski í Seattle, sem bróðir vor séra Carl J. Olson þjónar, sé að byggja sér veglega kirkju. Sá söfnuður, sem nú ræðst í að reisa vandað guðs hús, og það í stórborg, á eitthvað af anda og áræði postulanna. Og ekki varpar það skugga á kennimanninn íslenzka, er hefir leiðsögu þessa safnaðar. * * * Séra Jóhann Friðriksson, hinn nývígði kennimaður, er eink- um annast i sumar heimatrúboðsstarf kirkjufélagsins, hóf starf sitt hjá söfnuðinum í Langruth, Man. Fór hann þaðan í lok júlí- mánaðar. Til september-loka prédikaði hann og vann önnur prests- verk í vesturbvgðum íslendinga í Saskatchewan. Snemma i októ- ber hvarf hann aftur norður, til Lundar safnaðar. Sem stendur starfar hann í Norðurlandi íslendinga hér vestra—bygðunum meS- fram Manitoba-vatni, en hverfur þaðan aftur til Lundar og Langruth. Á þessum stöðvum er ráðgert að hann starfi til loka nóvembermánaðar. —Sxðar mun séra Jóhann sjálfur segja, í Sam., frá sumar- verki sínu og andlegum hag safnaðanna, er hann hefir heimsótt. * * * Síðast í ágúst fór séra Jónas A. Sigurðsson, kona hans, dóttir og tveir synir, bílleiðis til Churchbridge og Lögbergs í Saskatche- wan. í þeim sveitum var hann sóknarprestur um níu ára skeið.— Mun örðugt að finna vestan hafs betri íslendinga og trúlyndari kirkjulýð en þarna býr. Gæðum sveitai'búa við ferðafólkið verður ekki lýst. Dvölin reyndist of stutt—einkum til heimsókna. Og af för lengra vestur og suður, til Foam Lake, Gerald og Tantallon, gat ekki orðið. Sunnudaginn 4. september var messudagur x Konkordía söfn- uði, norður af Churchbridge. Að ráðstöfun sóknarnefndar og heimaprestsins, Séx-a Sig. S. Christopherssonar, kom söfnuðurinn saman kl. 11 f. h.—tveim tímum fyr en venjulega—og fylti kirkj- una, hið prýðilegasta guðs hús. Séra Sigurður stýrði sjálfur guðs- þjónustunni, er þeir feðgar, Theodore og séra Jónas, fluttu báðir íslenzkar ræður til safnaðarins. Var þessi samfundur hámark gest-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.