Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1918, Side 9

Sameiningin - 01.04.1918, Side 9
39 sporum þessarar grátandi konu. Veröldin er grátbólgin. Það er grátbljóð í bjarta veraldarinnar. Ef til vill hefir veröldin ekki gert sér grein fyrir því, hvers vegna liún grætur. En ef hún skildi gráthljóð síns eigin lijarta, þá vissi hún það, að hún grætur, eins og María, af því að bíiið er að taka burt Drottin hennar og hún veit ekki hvar hann hefir verið lagður. Það er grátsefnið mihla. Nú heyrum vér aðra rödd út við gröfina í morgun- kyrðinni. Ólík er liún skjálfandi rödd grátandans. Rödd þessi er blíð og skær og sigurglöð. Eitt orð, fyrsta orðið af vörum upprisna mannkyns frelsarans, og gráturinn þagnar. “María!” Hiín þekkir hann. Hún hefir fundið liann, sem tekinn var burt, fundið aftur Drottin sinn Hún varpar sér að fótum lians, fórnar til bans höndum. Jesús er upprisinn frá dauðum. Og María er upprisin til lífsins. Það eru komnir páskar. María Magdalena fyrirmyndar einnig að þessu leyti veröldina. Líka veröldin mun eitt sinn huggast og hætta að gráta. Hún á upprisu fyrir höndum þann páskadag, þá hún finnur aftur og kannast við Drottin sinn og fell- ur honum til fóta í trú og hlýðni. Sú uprisuvon er gleði- efnið mikla. Skulum vér nú í Jesúnafni hugleiða bæði grátsefnið mikla og gleðiefnið mikla. I. Grátsefnið mikla “Það er búið að taka Drottin burt og vér vitum ekki —”. 1. Það er búið að taka Drottin burtu úr hjörtum margra manna. Sumir vita það ekki, hafa týnt Drotni án þess þeir hafi orðið varir við það, halda að Drottinn sé enn í hjarta þeirra, af því þeir hafa hann enn á tungu sinni. Þeir menn munu síðar meir vakna upp við vondan draum og verða þess varir þegar mest á ríður, að það er búið að taka Drottin burtu frá þeim og þeir vita ekki hvar hann hefir verið lagður. — Aðrir vita það, viður- kenna það með grátstaf í kverkum, að það er búið að taka Drottin burt úr hjörtum þeirra. Þeir finna sársauka og sviða í hjartanu og ekkert annað, jafnvel nú á upprisu hátíðinni. Þeir finna, að það er nú tómt og dimt í hjart- anu, sem Drottinn þeirra hafði áður verið. Ásakið þá

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.