Sameiningin - 01.04.1918, Page 10
40
ekki, dæmið þá vægt, grátið með þeim og biðjið fyrir þeim.
Það eru syrgjendur, sem líða meir en aðrir syrgjendur,
þessir menn, sem mist hafa Drottin Guð sinn og vita
ekki hvar hann er.
Ó, vesæli maður, sem húinn ert að týna trú þinni, —
hreinu, gleðilegu, unaðsríku, harnslegu trúnni, — veist
ei hvar syndin og vantrúin þín hafa lagt hann, — Guð
komi til með þér, Guð einn getur hjálpað þér. Reyndu
aumur að hiðja — fálmaðu með barnsfingrum um gröf-
ina í hjarta þínu — biddu um jarðskjálfta og Guðs anda
til þín, ef verða mætti, að innsiglið brotnaði og steinninn
lirykki frá gröfinni og frelsari þinn, hann sem áður var
þér svo kær og inndælþrísi upp frá dauðum í hjarta þínu,
og þú fáir páskahátíð haldið.
2. Það er búið að taka Drottin burt úr húsum
margra manna. Á mörgu heimili er alt nema—Gitð.
Ðrottinn hefir verið vafinn líkhlæjum í húsum margra
manna, l>ar sem liann áður sat lifandi og dýrlegur og
kendi heimilisfólkinu, eins og í Betaníu. Nú er liann far-
inn. Það er búið að taka hann burt. Annríkið og um-
svifin, útiveran og áhyggjurnar, flasið og flaustrið hef-
ir borið Drottin út og enginn veit, hvar hann hefir verið
lagður. Þar sem áður sátu feður í öndvegi og lásu öllu
heimilisfólki Hávamál Drottins dýrðar, og mæður sátu
með smábörn á kjöltu og kendu þeim bænamálið—þar er
nú ekki annað en gröf hjá mörgum. Faðirinn er úti og
móðirin er úti, og hvert barn, sem kemst, er úti—úti, alt-
af úti, úti þar sem glaumur er og gaman, eða upphefð og
ábati. Ilúsið tómt, búið að taka Drottin burt, — og þá
sjaldan fólk er heima, er sama umstangið inni eins og
úti og þar með þreyta og gremja vfir öllu saman og úlfúð
og ófriður. — Það er kallað lieimili, en heitir réttu nafni
gröf, bústaður þeirra manna, sem búið er að taka Drottin
burt. Þau eru alt of mörg þau heimili. Guð komi
til með þeim. Guð sendi bæði jarðskjálfta og engla svo
grafir þessar opnist; Drottin upplýsi þær og inn skíni
þar páskasólin.
3. Það er búið víðast að taka Drottin burt xir skól-
unum. Ekki einungis úr húsunum, þar sem æskulýðnum
er kent, lieldur einnig úr fræðunum, sem kend eru, er bú-