Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1918, Page 14

Sameiningin - 01.04.1918, Page 14
44 mannlífsins sé farnar að þyrsta eftir anda og trú. Það viðurkenna nú allir, að efnishyggjan sé dauð eða í dauða- teygjum. Materialisminn, sem ollið liefir þessari yfir- standandi bölvun heimsins, er nú fordæmdur af flestum, og sumir þeir, sem áður voru ákafastir meðhaldsmenn hans, liafa liraðað sér eins og fætur toguðu inn í anda heima. Og lýðar landanna eru farnir óþreyjufullir að leita Drottins. Kirkjurnar eru að fyllast aftur, og fólk flýr þangað hiðjandi. Þær fréttir herast frá Englandi og sunnan úr Bandaríkjum og víðar. Og þess gátu lúöð- in í Winnipeg-horg í gær, að ekki hefði jafnmargt fólk tiltölulega léitað í hænahús sín hér í meir en mannsaldur, eins og nú á föstudaginn langa—föstudag langa einmitt, dag krossins Jesú Krists. Er það ekki tákn þess, að sálir mannanna, þegar í nauðir rekur, viti ekkert sér til hjálpræðis annað en krossinn Krists? Er það ekki fyrirhoði þess, að lýðirnir muni aftur leita og finna Drottin sinn? Eitt er það atriði í upprisusögu frelsarans, sem venjulega gætir lítils, en nú er mér stórt og dýrlegt tákn. Það er jarðskjálftinn um morguninn, samfara uppris- unni. Eg minnist þess þá einnig, að sagan öll kennir það, að samfara sérhverri stórkostlegri upprisu trúar- innar í sálum manna og þjóða, liafa verið jarðskjálftar. Nú er mesti jarðskjálftinn, sem verið hefir í sögu verald- ar. Oft er það í jarðskjálftum og eldsumbrotum, að síð- ustu kippirnir eru ógurlegastir, en í þeim eyðast öflin og undan lætur loks það, er fyrir stóð og olli umhrotunum. í jarðskjálfta þeim, sem nú hefir staðið hátt á fjórða ár, eru þeir kippirnir óskaplegastir, sem nú gerast. Ætli Ouð gefi ekki, að það verði síðustu kippirnir, dauðateygjur Miðgarðsormsins, fjörbrot ofheldisins og þeirra kenn- inga allra, sem það liefir réttlaút sig meðf Guð er ef til vill enn ekki í storminum, en hann kemur áreiðanlega eins og áður í liinum hlíða hlæ, sem á eftir fer. Eg trúi því, að lieimurinn muni aftur halda páska, j)áska trúar og friðar. Vér vonum það, að veröldin muni hráðum koma hrópandi og biðjandi til Jesú Krists. Og aldrei hefir þá kirkja Drottins haft slíkt tækifæri til |)ess,

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.