Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1918, Side 15

Sameiningin - 01.04.1918, Side 15
45 að bera liungruðum sálum mannanna fæðu. Yerum þá við því bunir, að bera það eitt fram, sem kraftmeti má kallast. Heimurinn gefur nú ekki túskilding fyrir vafa- mál og efaspurningar, fyrir veiklaða trú og blóðlausa. Nii varðar heldur ekki um klofning liára og bókstafs- flækjur bjartakaldra fræðimanna. Það, sem nú gildir, er vitnisburður anda og kraftar, voldug trú og áræðin, trú, sem stígur djarflega niður fæti og veit á hvern liún trúir. Með trúna kröftuga og lífþrungna á Jesúm Krist, trúna á upprisinn, lifandi lausnara, sem sé í sannleika Drottinn, ber oss nú að ganga öllum út til grafanna og hrópa í Jesú nafni líf og anda í hin dauðu bein. Það er um að gera, bræður, að vera nú liraustir, koma í krafti konungs sann- leikans fram með lífsins boðskap. Ó, dýrlega upprisa, þá fólkið vaknar! Ó, mikla páska tíð er Jesús ris upp frá dauðum í hjörtum, húsum, skól- um, kirkjum, þjóðfélögum! Guð gefi að þeir dagar sé í nánd, að veröldin huggist við lífsorð lausnarans. Guð gefi, að liinn upprisni Drottinn rísi upp í sálum allra manna. Þá verður páskahátíð lialdin um lieim allan. Lifum í þeirri trú og von í Jesú nafni. Amen. Að leggja niður barnaskapinn. Ivnfli úr hókinni 'l’ho jMinistry of Comfort, eftir J. lí. Millcr. Barnslund og barnaskapur eru tveir hlutir afar-ólíkir. Barnslundin mælist vel fyrir og bíður af sér undur-góðan þokka í hegðun og viðmóti. Meistarinn bauð lærisveinun- um að verða eins og lítil börn; sagði þeim, að með öðru móti gæti þeir ekki komist inn í himnaríki. Fegurstu einkenni góðrar sálar eru barnsleg einkenni: hógværð, einfaldleikur, traust, hrekkleysi. En barnaskapur er alt öðru vísi. Hann er hlutur, sem vér megum ekki hlynna að; vér eigum að forðast hann af fremsta megni. Hann er einn af þeim hlutum, sem vér eigum að leggja niður; þegar styrkur og fegurð fullþroska manndóms færist yfir oss. Bamaskapurinn er ekki göfug- ur í eðli sínu, hann einkennir ekki það, sem háleitt er og fagurt í andlegu lífi manna; hann ber miklu fremur vott um veikleika, ómensku og hégómaskap.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.