Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1918, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.04.1918, Qupperneq 19
49 þeir eiga yfir að ráða. ]?eir láta eins og embættið ætti að heyra >eim eilíflega til; og þegar einhverjum öðrum er veitt- ur heiðurinn, sem sjálfir þeir nutu um stund fyrir góðvild jafningja sinna, þá taka þeir sér það til og þykjast móðgað- ir. Stundum brýzt móðgunar-tilfinningin út hjá þeim opin- berlega; stundum segja þeir ekkert en ganga eftir á með píslarvotts-svip, eins og þeir beri eitthvert ranglæti eða meiðing með þolinmæði. En hvort heldur sem ofan á verð- ur, þá taka þeir líklega lítinn sem engan þátt í félagsstarf- inu þar á eftir, og stundum ganga þeir með ólundina æfi- langt. petta eru aðeins nokkur sýnishorn þeirra leiðinlegu skapbresta, sem ganga ljósum logum í heiminum. Vér vit- um allir, hversu sú háttsemi lýtir fagran manndóm. Ekkert reynir betur innræti manna og lunderni heldur en það, hvernig menn taka ðsigri og móðgunum. “Sælir eru hóg- værir” — það er blessunar-yfirlýsing, sem snertir daglegt mannlíf miklu meir en margan grunar. Lofstír er að sönnu liúffengur, en vér erum andlega veiklaðir ef vér getum ekki verið með ljúfu geði nema þegar aðrir bera oss vel söguna, upp í eyrun eða á bak, og missum svo móðinn, og góðlyndið, þegar hólið, sem vér áttum von á, kemur ekki í leitimar. Ágætt heilræði býður oss að vera fyrri til að veita öðrum virðing, og þegar ungur maður hefir aflokið starfstíma sínum, sem embættismaður eða nefndarformaður í einhverju félagi, sem hann heyrir til, þá ætti hann með ljúfu geði að víkja úr sætinu fyrir einhverjum öðrum, hverfa glaður inn í almúgann aftur og vinna betur en áður í þeim almenna verkahring. Leggjum niður barnaskapinn fyrir fult og alt. Ung- lingarnir eiga að byrja á því mjög snemma. Ef þú finnur hjá sjálfum þér hina minstu tilhneiging til að ganga með firrur eða ólund eða öfund eða afbrýði, eða einhvern annan barnaskap, þá hefir þú ágætt tækifæri til að temja þér lundemi Krists. Viltu gjöra það? G. G.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.