Sameiningin - 01.04.1918, Page 20
50
Merkismannatal.
Hitt og þetta um ýmsa mseta menn, helzt kirkjulega, menn, sem
margir eiga ekki kost íi. að kynnast, en sem uppbyggilegt er aS vita
eitthvað um og þekkja.
Eftir séra Jóhann Bjarnason.
IV.
Bernard frá Clairvaux.
Hann var einhver hinn áhrifamesti maður kirkjunnar
á fyrri hluta tólftu aldar, fæddur í Fountaines, nálægt
Díjon á Frakklandi árið 1091. Dáinn 1153. Faðir hans var
hermaður og féll í hernaði þegar Bernard var á unga aldri.
Móðir Bernards var mjög ágæt kona, gáfuð og guðhrædd.
Dó hún áður en Bernard náði fullorðins aldri. Tóku þá mik-
ilhæfir ættingjar við uppfóstri piltsins og settu hann til
menta. Á þeirri tíð þótti hermannsstaðan ærið glæsiíeg og
er mælt að ættingjar Bernards hefðu ætlað honum þá lífs-
stöðu, ef hann hefði verið líkamlega hraustur og heil*ugóð-
ur. pað var hann ekki. Var þá næst ákveðið, að kirkjunn-
ar maður skyldi hann verða. Er og mælt, að hugur hans
hafi mjög snemma hneigst í þá átt. Höfðu áhrif móður
hans og uppeldið meðan hún lifði mjög stutt að þessu. Vildu
nú ættingjar Bernards, að hann næði hinni beztu skólament-
un, sem völ væri á, og kæmist sem fyrst í hátt og gott kirkju-
legt embætti. Fyrrihlutann af þessari ráðstöfun vildi
Bernard gjarnan þiggja og þáði og varð með hinum lærð-
ustu og bezt mentuðu mönnum sinnar tíðar. En feitt og
glæsilegt kirkjulegt embætti vildi hann ekki. Vildí ekkert
annað en verða munkur. Var það mjög á móti sk&pi ætt-
ingjanna, sem stutt höfðu hann til menta. Svo varð þó að
vera. Var ekki nóg með það, að Bernard yrði sjálfur munk-
ur, heldur dró hann bræður sína og vini, unga memtamenn
um þrjátíu að tölu, inn í munkaregluna með sér. Var það
hin smáa og fátæka Cistercia-regla, sem þeir gengu í,
stundum kallaðir grá-munkar og stundum Bemardínar,
kendir við Bernard, hinn mesta mann þeirrar regrlu. Var
eiginlega reformeruð grein af Benedikta-reglunní. Varð
Cistercia reglan síðar á tímum mikið útbreidd o>g feikna
voldug. Taldi um eitt skeið um 750 klaustur.
Ekki leið á löngu, áður en Bernard þokaðist upp úr því
að vera réttur og sléttur munkur. Var hann gerður að ábóta
í nýstofnuðu klaustri í smábænum Clairvaux (frb. Klervó),
Varð klaustur þetta hið áhrifamesta á sinni tíð, S'ökum frá-