Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1918, Blaðsíða 23

Sameiningin - 01.04.1918, Blaðsíða 23
53 heimspekingur og guðfræðingur og svo mikill skylminga- maður í ræðustólnum, að enginn ]?ótti standa honum á sporði. Aðalkenning hans í guðfræðinni var sú, að maður ætti að byrja á efa og vinna sig svo áfram upp á við til trúar og trúa því einu, sem þannig væri prófað og sannað. Bemard aðhyltist aftur á móti, að trúarvissan kæmi með hjartan- legri undirgefni undir Guðs opinberuðu sannindi, stöðugri bæn og helgun lífernisins. Kenning Abelards um guðlega þrenning þótti og vera nokkuð blendin. Var hann sakaður um að nálgast æði mikið villukenning Sabellíusar, er uppi var á þriðju öld. Sú villukenning var í því fólgin, að þrenn- ingin væri ekkert annað en það, að Guð hefði birzt í þrem myndum, en væri að eins ein persóna. Myndirnar þrjár- mismunandi hefði hann tekið til að inna af hendi þrjú mis- munandi ætlunarverk. Á undan holdtekjunni hefði Guð birzt sem faðir, í holdtekjunni sem sonur, og eftir himnaför Krists sem heilagur andi. Abelard kendi, að Guð, sem al- máttugur, gæti kallast faðir, sem vísdómsfullur, sonur, og sem gæzkuríkur og náðugur, heilagur andi. Varasömust af öllu þótti þó kenning hans um Krist. Guðdómur Jesú Krists varð eftir kenning Abelards lítið annað en nafnið tómt. Kristur eiginlega ekki annað en mikill siðabótamaður, sem lætur lífið fyrir kenning sína, en kenningin svo háleit og Kristur sjálfur svo göfug persóna, að fólk, með því að hugsa um og virða fyrir sér þessa göfugu persónu, kenningu hans, pínu og dauða, verður svo gagntekið af kærleika til Krists, að það fær mátt til þess að slíta af sér fjötra syndarinnar og verða aðnjótandi frelsis Guðs-barna. Með öðrum orðum: Abelard aðhyllist, að helgunin ein sé nægileg til frels- unar, en gengur fram hjá réttlætiskenningunni. Raun- ar má segja, að réttlætiskenningin væri þá ekki búin að ná þeirri festu, sem hún náði síðar, um og eftir siðabótina, en það átti þó að heita að kirkjan yfirleitt kendi, að Kristur hefði dáið heilögum fórnardauða fyrir syndir mannanna. Á það virtist sem Abelard legði enga áherzlu. Kendi hann það líka, að flestar ef ekki allar kenningar kristindómsins hefðu áður verið kendar af grískum eða rómverskum spekingum. peir hefði og verið innblásnir á líkan hátt og postularnir og spámennirnir. Helzta hrósið, sem postulunum bæri, væri það, að þeir hefðu lagt sig niður við það, að kenna hinum lítilmótlegu og fáfróðu. Áður en Bernard lagði út í deiluna við Pétur Abelard, reyndi hann einslega að fá hann til þess að sjá að sér. En Abelard var maður stífur í lund, stórbrotinn og metnaðar-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.