Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1918, Qupperneq 26

Sameiningin - 01.04.1918, Qupperneq 26
56 Um ástundun Bernards að lesa Guðs orð, er það sagt um hann, að hann hafi svo að segja lifað á heilagri ritningu. Er þá þar með bent á, hvaðan honum kom styrkur sá hínn mikli, er gerði hann að þeirri hetju trúarinnar, sem hann var. Jafnframt þar líka áminning til mín og annara, »em hróplega vanrækja Guðs orð. Má margt læra af Bernard og öðrum þjónum Drottins, sem flestum betur hefir tekist að gera nafn Drottins dýrðlegt á jörðunni. — Nafnið sem öll kné eiga að beygja sig fyrir, nafnið hið eina, sem mönnum er unt hólpnum í að verða. — RADDIR FRÁ ALMENNINGI Deild þessa annast séra G. Guttormsson. ÚR BRÉFI frá manni í Saskatchewan. Svo sem kunn.ugt er gefa marglr sig við hinni svokölluðu anda- trú nú á dögum, og ekki síöur kennimenn en menn af öðrum stéttum. Sumir gleöja sig yfir þessum tilraunum til aö ná sambandi viö fram- liöna. Telja árangurinn—þótt litill sé—líklegan til aö styrkja þá menn, sem veikir eru í trúnni á framhald lifsins. Þetta má viröast gott, þegar á það er litiö aöeins frá þessari hliö, en þegar eg Iít á það frá sjónarmiði trúar og kristindóms, þá finst mér það bera vott um andlega deyfð—eða dauða öllu heldur—þegar kristnir menn, og jafn- vel prestarnir sjálfir, þurfa slíks við til þess að styrkja trú sina Mér finst þetta vera líkast þvi, aö menn ráfi í villumyrkri kolsvörtu eins og hirðislausir sauðir í eyðimörku, týndir og áttaviltir. Gæti það ekki verið, að ef þeir með tímanum komast svo langt í þessum “visindum”, að verða einhvers verulegs megnugir, að þetta yrði þá notað á likan hátt og spekin hjá hinum forn-egypsku töfrannönnum, sem gjörðu kraftav'erkin á móti Móse með aðstoð illra anda, sjálfum sér og öðrum til óblessunar? “Þá trú og þol vHl þrotna, þrengir að neyðin vönd, reis þú við reyrinn brotna, og rétt mér þína hönd”. “Hann lifir sem til lífs mér dó, hann lifir, það er hugar fró, er vantrú ill og fjanda fans, með frekju ræðst á kirkju hans;

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.