Sameiningin - 01.04.1918, Page 27
57
hún stenzt, því hana bjargið ber,
sem bifar enginn vonzku her”.
Þessi sálmavers benda kristnum mönnum á þaS, hvert þeir skuli
leita eftir sönnum trúarstyrk.
Ekki láir Sameiningin bréfritaranum það, þótt hann hafi litla
trú á þessu “andatrúar”-fargani. Satt er það, að sumir kennimenn
kirkjunnar finna þeirri hreyfing það til afsökunar, að hún leiði and-
varalausa og efablandna menn til utnhugsunar um andleg efni og
laði þá með þvi móti aS kristinni trú. Sú afsökun er þó ekkert
anna‘5 en hugsunar-hringur. Andlegu málin, sem spíritisminn kem-
ur mönnum til að hugsa um, eru ekkert annaö en “tilrauna”-kák og
véfréttir sjálfrar hennar. MeS öSrum orSum: Andatrú leiSir at-
hygli manna aS andatrú, og fyrir þann dýrmæta ávöxt eiga kristnir
menn aS láta hana í friSi! — AS fréttaburSur úr dauSraheiminum,
sannur eSa upploginn, muni hafa góS og -kristileg áhrif á óguSlega
menn, þaS er hugarburSur, sem frelsarinn hefir sjálfur mótmælt og
varaS v'iS meS ótvíræSum orSum: “Ef þeir hlýSa ekki Móse og
spámönnunum, m.unu þeir ekki heldur láta sannfærast, þótt einhver
rísi upp frá dauSum”.
KIRKJULEGAR FRÉTTIR.
Dí'ild þessa annast séra Kristinn K. ólafsson.
--------- -------------------------------- --------------------------J>
Þess hefir veriS getiS áSur í þessum fréttum, aS lútersku skól-
arnir í Bandaríkjunum væru ekki eftirbátar annara i þjóSrækni
Nú alveg nýskeS höfum vér séS skýrslu, sem sýnir, aS af nemendum
viS Luther College í Decorah, Iowa, eru 108 þegar gengnir í land-
og sjó-her Bandaríkjanna; af nemendum viS Augustana College i
Rock Island, 111., eru 140 þegar gengnir í herþjónustu. Þegar þess
er gætt, aS nemendatala viS Luther College er vanalega liSug 200,
er skerfurinn, sem lag'ður er til af mönnum frá þeim skóla, ekki litill.
-------O-------
Yfir 3000 prestar hafa falliS í her Frakka síSan styrjöldin hófst
Pjöldi af enskum prestum hefir einnig falliS.
-------O-------
Mjög ákv'e'Sin hreyfing gegn kristindóminum hefir gert vart viS
sig á Rússlandi síSan stjófnarbyltingin komst á. “ViS höfum hrundið
einveldinu, og innan fárra ára munum vér hrinda GuSi líka”, sagSi
ungur rússneskur herforingi í viStali viS blaSamann. Og því miSur
eru þetta ekki orSin tóm. Fjöldin allur af leiStogunum nú eru trú-
leysingjar, og margir almúgamenn fylgja þeim í blindni i trúmálum
eins og öSru. í Kronstadt dómkirkjunni var tekiS burt líkneski af
Kristi á krossinum og í staS þess sett mynd er átti aS tákna “frjálsa