Sameiningin - 01.12.1919, Qupperneq 1
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. % Vestrheimt
XXXIV. árg. WINNIPEG, DESEMBEH, 1919 Nr. 11 o.g 12
A Aðfangadagskveld Jóla.
Prédikun eftir séra Jón Bjarnason, flutt í Eevkjavík
1869 eða 1870.
Vér viljum biðja :
Lofaður sértu, Drottinn himins og jarðar, fyrir alla
þína miskunn mannkvninu til lianda. Blessuð sé þín
náðar-opinberun hér í heimi, Drottinn Jesús, og sú hugg-
nn og hjálpræði, sem þín endurlausn hefir útvegað oss
mönnunum. Blessuð sé þín hátíðlega fæðingarstund, þú
endurlausnari mannkynsins, og það lífsins og vonarinn-
ar ljós, sem með þér streymdi inn í þennan myrka nátt-
stað örvæntingarinnar. Æ, þú eilífi miskunnari, vertu
oss nálægur með þinni náð og velþóknun á öllum stund-
um lífs vors, og skapa í oss þinn himneska friðaranda, svo
íriður þinnar endurlausnar nái að útbreiða sig í sálum
vorum. Vertu hjá oss, Drottinn, á þessari kvelds-tundu
og láta Ijós 'þíns heilaga anda gleðja hjörtu vor himneskri
gleði hér I náttmyrkrunum. En einkum vertu hjá oss,
þegar kvölda tekur og á daginn líður, svo vér fáum eftir
naúurstund dauðans að upp vakna á morgni hins eilífa
lífsins tit þinnar dýrðar. Amen.
Það er ekki að furða, þótt ávalt hljómi með líkum
unaði hið undursamlega evangelíum endurlausnarinnar
á fæðingarhátíð Drottins vors Jesú Krists, því hæði er
það, að mannkynið ávalt af sjálfu sér er sakir syndarinn-
ar Guði og guðlegri sælu með öllu frá skilið, og sérhver sá
maður, sem enn heldur vakandi hinum æðri tilfinningum