Sameiningin - 01.12.1919, Síða 6
290
ósjálfrátt inn í sálu þína, hefir eigi einungis gjört þér
það unt, heldur og fyr eða síðar liefir áþreifanlega sann-
að eða mun sanna, að það er óaðskiljanlegt frá ákvörðun
þinni, að vakna til hins andlega lífsins. Eins og það eitt
sinn, þá er þú varst ungbarn, lá fyrir þér, að þroskast og
“verða stór”, eins ertu eitt sinn fyrir skírnina í Jesú
nafni ákvarðaður til þess, að það heilagleikans sæði, sem
þá var gróðursett í sálu þinni, á sínum tíma þroskist og
beri dásamlega ávexti andans, sem postulinn Póll segir
að séu: kærleiki, gleði, friðsemi, langlundargeð, góðlyndi,
góðvild, trúmenska, liógværð, bindindi (Gal. 5, 22).
Þessa andans eiginleika höfum vér og séð og heyrt um
getið að meiru eður minnu leyti hjá öllum miklum guðs-
mönnum; — og hver sem þú ert, kristni bróðir, þá láttu
þér aldrei detta í liug, sízt á endurlausnarhátíð gjörvalls
mannkynsins, að efast um, að þú þegar hafir fengið vopn-
in í hendurnar til að ganga á hólm við óvini andans í þínu
eigin holdi, sem, ef til vill, hingað til hafa aftrað þér frá
að afklæðast ham ómenskunnar og óréttlætisins. Tíminv
er þegar fyrir löngu kominn, að mál er að rísa upp af
svefninum; alt bendir þér á, að umksifti eiga sem fyrst
að verða á þínum innra manni: endurlausnargleði jóla-
hátiðarnnar, árið, sem bráðum rennur í ægi eilífðarinnar,
vetrarsólin, sem nýfarin er að liækka á liveli himinsins,—
það eru alt isaman bendingar náðarinnar og náttúrunnar
til vor mannanna, kröftugar áminningar um, að verða
samtaka í uppbyrjun nýrrar lífsstefnu, sem lielguð er
himnanna konungi, heimsins endurlausnara, Drotni vor-
um Jesú Kristi.
Þá er hið þriðja og síðasta, sem fvrir öllum oss á að
liggja, en það er fæðing vor frá dauðanum til hins eilífa
lífsins, —eða flutningur vor héðan úr tímanum inn í ei-
lífðina. Eg efast varla um, að allir þér, sem orð mín
lieyrið, liafið oft og iðulega liugsað um þetta hulda og lió-
leita atriði örlaga vorra, en alt um það get eg ekki leitt
það hjá mér, einmitt á þessari hátíðlegu stundu, að renna
huga mínum út yfir takmörk tíma og grafar og í Jesú
nafni taka á móti þeim friði og fögnuði, sem kristindóm-
urinn einn megnar að láta til mín streyma frá ljóssins
liafi í eilífðinni. Hvað væri fæðingardagur þinn, krist-