Sameiningin - 01.12.1919, Qupperneq 11
295
Engill Jólanna: Svo er víst. Get eg orðiÖ þér aS
nokkru liði !
Pílagrímur: Það vona eg, því lijálpar þarfnast eg
sannarlega. Eg er Pílagrímur, nngur eins og þú sér, og
mjög lítilsigldur. Eg hefi heyrt getið um konunginn góða,
sem eitt sinn kom í heiminn á jólum, og hversu hann enn
þá elskar þegna sína og gleðst, er hann verður þess var,
að þeir elski sig. Mig langar til þess, að færa honum við-
eigandi gjöf á afmæli hans, og er kominn til að biðja þig
að hjálpa mér til að velja hana.
Éngill Jólanna: Feginn vildi eg hjálpa þér, kæri ungi
Pílagrímur, en það er ekki á rnínu valdi. Þú verður að
prófa sjálfur gjöfina, því það verður liver og einn að
velja sjálfur gjöfina handa Konunginum. Úr mörgum
gjöfum verður þú að velja, Pílagrímur, því þú ert uugur,
og lífið mun bjóða þér margskonar gæði. En mun þú
það, að æskan hverfur, en lífið er eilíft, og öll erum vér
konungsbörn.
Pílagrímur: Alt ráð mitt er á reiki og eg er hjálpar-
vana. Er enginn, sem getur leiðbeint rnér ?
Engill Jólanna: Jú, Vizka, sem heldur á bók Sann-
leikans í höndum sér, getur leiðbeint þér. Og hér kemur
önnur heilladís.
(Samvizka kemur inn,heldur á stundaglasi.)
Samvizka, tala þú við Pílagrím þenna, þegar honum
liggur mest á. En mun þú það, Pílagrímur, að hver ráð,
sem þér verða gefin, verður þú samt sjálfur að velja. —
(Fer.)
(Skemtun kemur inn.)
Pílagrímur: Hver ert þú, sem líður áfram svo létti-
lega og' með svo mikilli piýði! Getur það verið, að þú
hafir erindi við lítilmótlegan Pílagrím.
Skemtun: Eg heiti Skemtun. (Réttir blóm að Píla-
grím). Eg kem til þess að bjóða þér þetta blóm. Það
er ágæt gjöf og merki um glaðar stuudir og áliyggjulaust
líf. Það er töfravöndur, sem opnar dyr að veizlusölum
og næturglaumi, þar sem nautnaþráin svellur í æðum.
Enga gjöf getur þú valið, sem betur eigi við jólatíðina.
Því hvað eru jólin annað en glymjandi gleðidagar til að
leika sér og hlæja.
Samvizka (lyftir stundaglasinu): Gáðu að þér.
Stundirnar líða og blóm Skemtunar fölna fljótt.