Sameiningin - 01.12.1919, Side 20
304
miskunnsemi. Guð—þar er dýrðin.; Guð með oss, þar er náðin.
Fyrir Guði einum mættum vér skelfast. En “Guð með oss”
fyllir hjartað öruggri von. Takið textann allan, og berið hann
í brjóstum yðar eins og ilmjurtavönd, sem fyllir hjartað angan
friðar og gleði. Andinn opni sálir yðar fyrir sannleikanum, og
sannleikann fyrir sálum yðar.
Kristur Jesús var menskur maður; hinn annar Adam, fyr-
irmynd og málsvari mannkynsins. pér megið ekki hugsa yður
hann sem mann, er hafi breyzt í Guð, fremur en þér þorið að
skoða hann sem Guð, er hafi breyzt í mann, eða hálfguð. Hvorki
megum vér hugsa oss hin tvö eðli runnin saman í eitt, né heldur
skoða persónuna tvískifta. — Hann er ein persóna, og þó er hann
samt maður, um leið og hann er sannur Guð. Hugleiðið þennan
sannlei'ka, og segið: “Hann, sem í hásætinu situr, er maður
eins og vér, að syndinni einni fráskilinni.”
Nei, yfir þetta ná engin orð, eg vil ekki ræða það meira; það
efni er of hátt fyrir mig, eg er hræddur um, að eg myndi tala of
gálauslega En hugleiðið þetta aftur og aftur og vitið, hvort
það er ekki sætara en hunang og hunangseimur.
“Sá Guð, er stýrir himni háum,
hann hvílir nú ‘í dýrastalli lágum;
sá Guð, er öll á himins hnoss,
varð hold á jörð og býr með oss.”
Af því hann var með oss, íklæddur eðli voru, þá var Guð
einnig með oss á lífs-förinni. Varla getið þér fundið á göngu
lífsins nokkurn þann áfangastað, að Jesús hafi ekki haft þar
viðdvöl, eða nokkurn erviðan vegar-kafla, sem hann hefir ekki
farið yfir. Fótspor hans getið þér rakið yfir alla vegu lífsins,
frá innganginum alt að hliði dauðans.
Varst þú í vöggu? Hann var þar líka. Varst þú barn, for-
eldrum undirgefinn? Kristur var líka drengur á heimili sínu
í Nazaret. Hefir þú gengið út í baráttu lífsins ? Drottinn þinr.
og meistari gjörði það sama, og þótt hann lifði ekki til elliára,
þá bar hann á sér mörkin eftir erviði og þjáningar löngu fyrir
aldur fram.
Ert þú einmana? Svo var hann, í óbygðum úti, og á fjöll-
um uppi, og í dimmu næturinnar í grasgarðinum. Ert þú á
mamnamótum? par var ihann líka, og vann verk sín í þéttustu
þrönginni. Hvar getur þú verið niður kominn, uppi á hæðar-
brún eða niðri í djúpum dal, á landi eða á sjó, í dagsbirtu eða
næturmyrkri, — hvar, isegi eg, getur þú verið svo niður kominn,
að ekki hafi Jesús verið þar á undan þér?
Einn maður var hann, og sjálfum sér samkvæmur í öllu,