Sameiningin - 01.12.1919, Síða 27
311
stjörnunni, og hún var alt af að reyna að raula dýrðarsöng
englanna. Orðin kunni hún. En hún átti bágt tneð að ná lag-
inu.
Móðir hennar var líka að horfa á stjörnuna, og fyrir það
hrasaði hún og datt. pað var ákaflega sárt, þegar börurnar
duttu niður á harða brautina, og Miriam hljóðaði upp yfir sig
af sársaukanum. Svo urðu þau að hvála sig lengi, þó að skamt
væri eftir, og það fanst henni þungbærast.
pað var að birta af degi, þegar hirðirinn kom aftur. “Við
höfum séð konunginn, bræður mínir og eg,” sagði hann, allur
ljómandi af fögnuði. “Konungsbarnið, sem á að drotna yfir
ísrael, eins og Guð feðra vorra hefir heitið. Við verðum að
láta aðra vita af því, sem okkur hefir verið sagt um þetta barn.
En fyrst ætla eg að fara þangað með þig, stúlka litla, og for-
eldra þína. Komið þið!”
pau komu að gistihúsinu og að fjárhúsinu, sem var að baki
þess. Hvernig þar var umhorfs eða hverjir þar voru, um það
hafði Miriam enga hugmynd, því hún sá ekkert nema barnið
dásamlega, sem lá þar í heyinu á jötunni, svo saklaust og fag-
urt. pegjandi báru mennirnir tveir sjúkrabörurnar fast að jöt-
unni. Ósjálfrátt rétti Miriam út hendina og lagði hana með
lotningu á heyið og sagði í hálfum hljóðum: “Konungurinn
minn litli!”
Ungbarnið sneri sér við, rétt eins og það ihefði heyrt til
hennar, og höndin hans litla kom snöggvast við hönd hennar.
Svo báru mennirnir hana burtu aftur. En hún æpti upp
yfir sig ful'l af fögnuði:
“Sársaukinn er horfinn! Mér er batnað í fætinum! Eg
er vies um, að eg get gengið! Ó, mamma! Ó, pabbi! pað er
gjöf frá litla konunginum mínum!”
Sunnudagsskóla-lexíur.
FYRSTI ÁRSFJÓRÐUNGUR 1920.
Lexíu-textar síðasta ársfjórðungs voru (að tveimur undan-
skildum) kaflar úr æfisögu þeirra Péturs og Jóhannesar, teknir
úr guðspjöllunum. pessi fjórðungur heldur sama efni áfram
og lýkur við það — en kaflarnir eru nú teknir úr postulasög-
unni og ritum þeirra tveggja, lærisveina, ;sem um er að ræða.
Reynt verður, samkvæmt tilmælum síðasta kirkjuþings, að
breyta skýringunum dáilítið, miða þær meira við hæfi nemenda,
en gjört hefir verið. Fyrir þá sök verður ýmsu slept, sem áður
var látið fylgja: listum yfir hliðsjónar-kafla, bendingum um
umræðu-efni. Aftur á móti verður reynt að setja fram á sem
allra ljósustu máli iþau aðal-atriði hverrar lexíu, sem hver nem-
andi ætti að vita.