Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1915, Síða 6

Sameiningin - 01.03.1915, Síða 6
o Karmel og Golgata. Og er þeir komu til þess staöar. sem kallaður er Hauskúpa, krossfestu þeir hann þar og illv'irkjana, annan til hægri handar, en hinn til vinstri. Ejn Jesús sagöi: Faöir, fyrirgef þeim, þvl þeir vita ekki, hvaö þeir gcra. Því næst skiftu þeir milli sin klæðum hans, og köstuöu hlutum um. Og fólkiö stóö og horfði á; en höfð- ingjarnir gerðu gys að honum og sögöu: öörum bjargaði hann; bjargi hann nú sjálfutn sér, ef hann er Kristur Guðs, hinn útvaldi. Sömuleiðis hæddu hann og hermennirnir, báru honum edik og sögðu; Ef þú ert konungur Gyðinga, þá bjargaðu sjálfum þér, Yfirskrift var og yfir honuni: Þessi er konungur Gyðinga. En annar af ill- virkjunum, sem upp voru hengdir, lastmælti honum og sagði: Ert þú ekki Kristur;? )’BjargaÖU) sjálfum þér og okkur. En hinn svar- aði, ávítaöi hann og sagði: Hræðist þú ekki einu sinni Guð, þar sem þú ert þó undir sáina dómi? Og við erum þaö með réttu, þvi viö fáum makleg gjöld fyrir, þaö, sem viö höfum gert, en þessi hefir ekkert rangt aðhafast. Óg hann sagði: Jesú, minst þú mín, þegar þú kemur í konungsdýrö þinni Og hann sagði við hann: Sannlega segi eg þér, í dag skaltu vera með mér k Paradís—JLúk. 23, 33—43). Algjörri dauðaþögn mun hafa lostið niður í einni svipan, eins og réiðarslagi, í mangrúann, sem stóð saman-þjappaður þarná umhverfis aftökustaðinn á Gol gata. Svo mikið virðist rriéga lesa á mitli línanna í þess- arri einföldu frásögn hjá íjúkasi. Hjá því gat varla farið heldur, að steinhljóð færðist á augabragði yfir all- an mannsöfnuðiun, um leið og hermennirnir gripu band- ingjann, sein átti að'yera í miðið, og byi-juðu böðuls-verk sitt. Þessi allsherjar-þögn mun hafa marg-aukið hvert hljóð, sem barst frá krossinum niðurliggjanda; þrengt liverju andvaijii, sem þaðan heyrðist, gegn um merg og bein: negit inenn niður rígfasta í sporin, þar sem þeir stóðu, ineð liverju hamarshöggi; haldið mönnum högg- dofa lengi eftir augnablikið voðalega, þegar krossinn var reistur uyi|i. i’etta, sem fram fór, var svo hræðilegt, að jafnvel fjandmennirnir hafa staðið sem steini lostnir. Jafnvel lieiftin kulnar út á |>ví augnabliki, þegar hún liefir svalað sér til fulls. Það er eins og hefndarverkið verði að spegli fyrir augum hennar; eins og hún sjái sitt eigið

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.