Íslendingur


Íslendingur - 15.02.1918, Blaðsíða 2

Íslendingur - 15.02.1918, Blaðsíða 2
26 ISLENDINOUR 7. tbl- Handa vinn ukenslu byrja jeg mánudaginn 18. febrúar. Valgerður Ólafsdóttir, Brekkugötu (Brunastöðinni). Klúbbskem tun — hin síðasta —verður haldin í Templarahúsinu næstk. sunnudag kl. 7 e. h Nokkrir aðgöngumiðar að skemtuninni fást keyptir við innganginn. Erlendar símfrjettir. Khöfn 6.—13. febr. Friðarsamningar voru undirritaðir í Brest—Litovsk kl. 2 á laugardag- inn milli miðríkjanna og Ukraine- stjórnar. Amerískt herflutningaskip hefir verið skotið í kaf hjá írlandi, 205 menn fórust. Seudinefnd var gerð til Finnlands til þess að sækja sænska borgara. Segir hún þaðan hræðilegar frjettir af ástandinu. Stjórnleysi fer altaf í vöxt. Rússneskir sjóliðsmenn ræna í Hels- ingfors. Rússar ætla að senda her- lið til Finnlands til pess að vernda ríkiseininguna. Maximalistar hafa rekið sendiherra bandamanna úr landi. Seidlerstjórnin hefir orðið í minni- hluta í austurríska þinginu, en keis- arinn vill ekki veita stjórninni lausn. »Vorwártz" hefir verið dæmt fyrir landráð. Rússneskir hermenn hafa móðg- að sendiherra Dana í Petrograd, en Trotsky hefir síðan beðið fyrirgefn- ingar. Pólverjar hafa tekið herbúðir Rússa við Mohilev og handtekiö hershöfðingjann og herráð hans. Maximalistar hafa afnumið öll landslög. Orusta var háð hjá Tammarfors á Finnlandi. Vann stjórnarherinn þar sigur á 10,000 Rússum. Venizelos hefir Iátið varpa Skulu- dis og Lombros í fangelsi. Friöarsamningar Ukraine og Mið- ríkjanna hafa verið birtir; helstuat- riðin: Fullkominn friður og vinátta með málsaðiljum og opinbert stjórn- málasamband, engar hernaðarskaða- bætur, hertekin lönd yfirgefin, her- teknir menn fái heimfararieyfi, versl- unarviðskifti þegar hafin, landamæri ákveðin. Maxímalistar vilja ekki undir- skrifa friöarsamninga, en yfiriýsa þó, að ófriðarástandið sje upphafið og rússneski herinn algerlega uppleyst- ur. Mackensen hefir sett Rúmenum „ultimatum". Stjórn Rúmeníu hefir sagt af sjer. Ferdinand hefir beðið Averescu hershöfðingja að mynda nýja stjórn. í Finnlandi magnast stjórnleysi, morö og manndráp. Syndicalistar í Khöfn gerðu á- hlaup á Börsen, brutu glugga, hús- gögn o. s. frv., lögreglan tvístraði múgnum og hnepti fjölda manna f fangelsi. (Einkaskeyti Morgunblaðsins.) Bannlagabrot. Nýlega hafa 5 menn verið sektaðir í Reykjavík fyrir bannlagabrot: Gunn- ar Sigurðsson veitingamaður í Báru- búð um 500 kr., N. Petersen í Berg- staðastræti um 300 kr., tveir menn af »Villemoes€ um 200 kr. og einn af »Í3Íandi« um 200 kr. í Hafnarfirði var skipstjóri seglskips- ins »San«, sem nýkomið er frá Spáni með salt, sektaður um 240 kr. (Eftir Lögrjettu.) »Dagur« heitir biað, sem hóf göngu sfna hjer f bæ sfðastliðinn Sprengidag. Ritstjóri þess er Ingimar Eydal kennari. Blað þetta er f mjög litlu broti; á það að koma út tvisvar í mánuði; verð ár- gangsins er 2 kr. í innganginum telur ritstjórinn, að hjer ( landi sjeu f raun og veru ekki nema tveir flokkar, nú sem stendur. Annnarsvegar sjeu flestir kaupmenn og þeirra íylgifiskar, sem sje illa við lands- verslunina og f nöp við samvinnustefn- una; hinumegin þeir, er telji lands- verslunina þjóðarnauðsyn, meðan strfð- inu ekki slotar, og þeir, sem unni samvinnuhugsjóninni. Er þá og ofur eðlilegt, eftir slfka fullyrðingu, að hann nefni þessar stefnur: Kaupmannastefnu og samvinnustefnu. — Þar er enginn meðalvegur. Er þvf ekki að Ie/na, að oss finst gæ.ta eigi alllítillar ósanngirni í þess- ari staðhæfingu blaðsins og býsna kyn- legt, að ritstjóri þess skuli hafa sleg- ið þessu fram, jafn órökstuddu. Er það bert, að blaðið og aðstandendur þess ætla að fylla flokk »Tímans«, sem virðist helst stefna að þvf, að koma allri verslun landsins í hendur sam- vinnufjelaga, nema á þeim vöruteg- undum, sem landsstjórnareinokun á að spenna yfir. Þetta á að vera »fram- sökn«.—Fyrir þá sök, að þessi flokk- ur — »Tímans«menn — óttast það, að »íslendingur« verði andvfgur þessari verslunarstefnu, reyna þeir nú að hnekkja áliti hans, þar sem því verð- ur við komið og er þá sú aðferð helst notuð meðal kaupfjelagsmánna, að fuli- yrða, að hann sje andvfgur samvinnu- hugsjóninni, keyptur af kaupmönnum og sje afturhaldsblað. Þetta hefir »Dag- ur« gripið á lofti og hampar nú fram- an f lesendum sínum. »íslendingur« hefir hingað til ekki farið neitt dult með skoðanir sfnar, leitast við að ræða landsmálin fyrir málsins sök, en forðast að blanda per- sónum inn í, að svo miklu leyti, sem hægt hefir verið. Samvinnustefnuna hefir hann látið hlutlausa f seinni tfð. Meðan kaupfjelögin voru aðeins sam- tök bænda til þess að koma afurðum sínum í hærra verð en áður og fá hagfeldari innkaup á erlendum vörum, virtist oss stefnt f rjett horf; en nú, þegar nýr flokkur rís upp með það aðallega fyrir augum, að hóa kaup- fjelagsmönnum og öðrum, einkum bænd- um og verkamönnum, saman í eina hvirfing um samvinnustefnuna, gera hana, hin írjálsu samtök bænda, að landspólitiskri klfku, til þess að koma allri verslun landsins í hendur einu allsherjar „amvinnufjelagi, þá sáum vjer, að samleið áttum vjer ekki ieng- ur í þessu efni. Er það föst og óbif- ánleg sannfæring vor, að samvinnu- stefnan sje heppilegust og geri mest gagn eins og hún hefir verið rekin hingað til hjer á landi f samkepni við kaupmenn. Verði þessum keppi- nautum kaupfjelaganna bolað af velli, reki brátt að því, að kaupfjelögin verði sá verslunarhringur, sem vjer vildum gjarna losa oss úr. Verslunarástandið yrði lftið betra eða jafnvel verra en áður en kaupfjelögin komu hjer til sögunnar. Og hve lengi halda þessir nýmóðin3 samvinnumenn að þeir geti haldið andstæðunum — bændum og verkamönnum saman? Er það hugsan- legt, að verkamaðurinn fylgist lengi með kaupfjelagshreyfingu, sem aðeins væri gróðaíyrirtæki framleiðenda — bænda? Af því sem hjer er sagf vonum vjer að allir sanngjarnir menn sjái, að vjer erum ekki kaupfjelagsskapnum and- vígir, þó vjer getum eigi átt samleið með þeim mönnum, sem að vorum dómi eru að beina honum inn á skakka braut. Og það er hættulegur misskiln- ingur hjá þessum mönnum, ef þeir halda að kaupfjelagsmenn yfirleitt sjeu þeim þakklátir fyrir þessa stefnubreyt- ingu. Hinir gætnari menn sjá, að kaupfjelagsstefnan þrffst best meðan henni er haldið fyrir utan flokkspóli- tiskar æsingar og öfgar. Kvikmyndir. Laugardaginn 9. þ. m. íór jeg í »Bíó«. Myndin sem sýna átti var á götuauglýsingum nefnd »George«. Hún var líka sýnd, og gafst þar á að lfta aumustu og svívirðilegustu sýning kvik- myndar, sem jeg nokkurntíma hefi sjeð. Lftilmótlegustu og lægstu hvatir kvensniptar einnar eru dregnar þar upp með slfkum ofsa, að manni hrýs hugur við. Jeg heyrði líka fólk um- hverfis mig tala um, að rjettast væri að ganga af sýningunni. Um gang myndarinnar vil jeg ekki tala hjer. Mjer þykir hann svo soralegur. Það, sem knýr mig til þess að rita línur þessar, er aðallega tvent: Fyrst og fremst það, að reyna að opna augu foreldra þeirra, sem senda börn sfn á kvikmyndasýningu, fyrir því, að þau grenslist vel eftir, hvað er á boðstól- um, áður en þau geta börnum fje til þess að eyða því til jafn lítilíjörlegr- ar og siðspillandi skemtunar og illar kvikmyndir eru. Jeg tel ofangrcinda mynd í röð hinna verstu. Annað er það: að vekja máls á þvf, að til þess að stemma stigu fyrir sið- spillandi áhrifum kvikmynda, hafa ut- anlands víða verið settar reglur um eftirlitsmenn og þeir skipaðir. Hafa þeir fult leyfi til þess, að banna al- gerlega sýningu mynda þeirra, er sið- spillandi þykja, eða að minsta kosti takmarka sýningu þeirra. Slíka eftir- litsmenn hygg jeg að skipa ætti hjer á landi jafnframt þvf, sem kvikmynda- hús rísa upp. Bæjarfógetar og sýslu- menn vœru .sjálfskipaðir, þar sum þeir eiga heima á staðnum. Ef þeir þá ekki væru hluthaíar f fyrirtækinu. Jafnvel nú, þó ekkert ákvæði sje til um þetta, lít jeg svo á, að bæjar- fógeti geti bannað, minsta ko3ti, að börnum sje ieyfður aðgangur að slík- um myndum, sem þeirri. er jeg hjer að oían hefi nefnt; sjái eigendur »Bfós« ekki sóma sinn f þvf, að banna það ótilkvaddir, nú þegar þeir hafa sjeð þessa saurmynd. Illar myndir eru eins skaðlegar feg- urðar og velsæmistilfinningunni eins og góðar myndir geta verið lærdóms- ríkar. Ritað 12, febr. 1918. Ing. /ónsson. 1 I sófahorninu. V. Bóndi nokkur, gamall og vitur, hafði margt að segja frá sínum bernskuárum. Sjerstaklega var honum hugþekt að minnast þess að foreldrar hans höfðu Iítinn garð að húsabaki. Skiftu þau honum f reiti. Hafði hvert barn sinn ákveðna blett til ræktunar og allrar hirðingar. Leiðbeintu foreldrarnir þeim í því verki. Börnin áttu alt sem óx í þeirra hluta af garðinum; máttu þau fara með það eins og þau vildu. Enginn hegning varð börnunnm eins sár og sú að gera mistök eða fá á- vítur íyrir það, sem þau unnu f garð- inum. En ekkert varð þeim meira til gleði en það, að sýna þeim, sem komu, beðin sem 'þau áttu sjálf, og einnig hitt, ef aukið var við reitina af því að starfskraftarnir uxu. Þegar börnin komu úr skólanum á daginn flýttu þau sjer út f gaiðinn til að sjá ef nú væri eitt eða annað blóm sprungið út, eða nú væri þörf á að vökva og annað að starfa þar inni. Margt, sem börnin lærðu f skólan- um, stóðu þau augliti til auglitis við í garðinum heima. Með þessu varð snemma vakin skiln- ingur barnanna fyrir skipulagi, hrein- læti, innileik og fegurð. Á einu sumri lærðu þau, á þennan hátt, meira en mörg önnur börn á heilu ári. Þegar ávextir þroskuðust á trjánum, þá voru valdir þeir bestu af þeim tll að gefa foreldrunum þá. Og gamli maðurinn lauk máli sfnu á þennan hátt: þannig varð mjer jarðræktin kær, hún er heldur ekki annað en garðyrkja í stærri stfl. (Lausl. þýtt.)

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.