Íslendingur - 20.08.1920, Blaðsíða 2
146
ISLENDINOUR
37. tbl
I.ÍSLENDINGUR"
kostar 6 kr. árg. Greiðist fyrir í. Júní ár
hvert. — Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Hallgr. Valdemarsson, Hafnarstræti 84.
Til minnis.
Bæjarfógetaskrifstofan opin kl. 10-12 og 1-6.
Bæjarstjóraskrifstofan opin kl. 1V2-4.
Bæjargjaldkeraskrifstofan kl, 6-7.
Bókasafniðopið áMánud ogLaugard.kl.7-8.
Heimsóknartími spítalasjúklinga kl. n-12
„ og 4-5-
Islandsbanki opinn kl 10V2-12 og 1-2V2.
Landsbankinn opinn kl. 11-2.
Lyfjabúðin opin kl. 8-8 á virkum dögum
og á helgum 8-6.
Pósthúsið opið kl. 10-6 á virkum dögum
og á helgum H-11V2.
Símastöðin opin kl. 8-21 virka daga og
á sunnudögum 10-20.
Skrifstofa Ræktunarfjelags Norðurlands í
tilraunastöðinni opin kl. 10-n V2 og 4-6.
Verksmiðjan Gefjun opin kl. 8-6.
Viðtalstími hjeraðslæknis kl. 1-2.
Akureyri.
Sira Friörik Friöriksson
messaði hjer I kirkjunni á Sunnu-
daginn. Var kirkjan troðfull. Flutti
hann ræðu sfná með postullegum
krafti og myndugleika. Kl. 5 sfðdegis
hafði hann samtalsfund með. ungum
mönnum f Gagnfræðaskólanum.
Leikfjelag Akureyrar
hafði ákveðið að byrja að leika tím-
anlega f haust. En þegar kjaliari Sam-
komuhússins var f sumar tekinn fyrir
pósthús, var aðalgeymslurúm leik-
áhaldanna tekið tii afnota fyrir póst-
meistarann. Fjelagið mun því ekki sjá
sjer fært að halda áfram starfsemi
sinni næstkomandi vetur, nema reist-
ur verði sjerstakur geymsluskúr áfast-
ur við húsið. Vonandi verður það gert,
þvf að ailmikilli óánægju mun það
valda meðal bæjarbúa, ef þessi litti
en þó efnilegi vfsir til fullkomins leik-
fjelags verður látinn deyja út. Leik-
irnir hafa og gefið húsinu árlega góð-
ar tekjur.
Quðmundur ólafsson
SiglufjarðarpÓ8tur hefir fengið veit-
ingu fyrir sýslaninni sem norðanpóst-
ur milli Akureyrar og Staðar. Tekur
hann við af Kristjáni pósti á Jódfsar-
stöðum, er nú lætur af póstferðum,
með haustinu.
Halldór Kolbeins
cand. theol., erindreki Stórstúkunn-
ar, flutti erindi hjer f bænum 11. þ.
m. um bindindi og hugsjónir. Er látið
Vel yfir því. Ritstjóra íslendings gafst
eigi kostur á að hlusta á Kolbeins,
með þvf að hann kom hið sama kveld
hingað til bæjarins. —
Kolbeins fer landveg alla ieið aust-
ur til Djúpavogs f bindindiserindum.
Stefán skólameistari
fór um daginn austur f Þingeyjar-
sýslu með konu sinni. Veiktist hann
á Grenjaðarstað og liggur þar, en er
nú í afturbata. Kemur væntanlega með
>Borg« frá Húsavfk.
Síra Friörik
messar á Grund næsta Sunnudag
kl. 12 á hádegi. Heldur opinbera
samkomu hjer f Samkomuhúsinu kl.
8V2 sfðd. sama dag, sbr. augl. hjer í
blaðinu.
Jón Dúason.
í 8. tölublaði »D»gs« þ. á. er grein,
sem heitir »Jón Dúason og landnám-
ið«. Er »Dagur« þar að kynna les-
endum sfnum Jón og skrif hans um
landnám á Grænlandi.
Jón er ekki hjer á landi nú. Og
af því að jeg veit eigi fyrir víst, hvort
ritstjóri »Dags« er svo mikill dreng-
ur sjálfur, að hann hafi sentjóni blað-
ið með lýsingunni af honum, svo hon-
um gæfist kostur á að leiðrjetta það,
sem missagt kynni að vera f fræðum
þeim, skrifa jeg þessar Ifnur.
»Dagur« byrjar á að skýra frá upp-
runa Jóns þannig, að hann segir »þá,
sem betur þekkja til, vila«, að Jón
sje alinn upp f einni af harðbala-
sveitum landsins í fátækt og á hrakn-
ingi. Jeg veit eigi, hvað »Dagur« kall-
ar að alast upp á hrakningi, en jeg
veit að þeir, sem bezt þekkja til,
vita, að Jón er alinn upp í Fljótum
hjá efnalitlum foreldrum, sem bjuggu
þó búi sínu á sömu jörðinni frá því
áður en Jón fæddist og fram að þeim
tfma, að hann fór burtu til náms, þá
kominn milli fermingar og tvítugs.
Þar sem »Degi« hefir nú ekki þótt
ástæða til að segja þetta atriði nánar,
rem hann vissi þó að margir, að
minsta kosti sveitungar hans, hlutu að
vita betur, finst mjer ekki ólfklegt að
hann hafi sjest lftið fyrir f þeim at-
riðum, sem hann vissi að öll alþýða
gat ekki dæmt um, hvort hann færi
þar með satt mál eða logið.
Jeg er sammála »Degi« um það,
að rannsókn þyrfti að fara fram á
Grænlandi með nýlendustofnun fyrir
augum og það veit jeg að Jón er
líka, þvf að árum saman hefir hann
leitast við að komaat þangað og sótt
um leyfi til þess hvað eftir annað,
þó að það hafi ekki fengist. Þetta
hlýtur »Dagur« að geta vitað, ef hann
vill.
Annars skal jeg engan dóm Icggja
á ummæli »Dágs< um skilningsleysi
Jóns og þekkingarleysi í þessu máli,
njc heldur á hvatning hans til landa
sinna til yfirtroðslu og nlðingsskapar,
sem >Dagur« ásakar hann einnig um.
Mjer er til þess málið of skylt.
Jeg býst Ifka við, að sagan verði
Jóni rjettlátari dómari en þeir, sem
verst láta af samtfðarmönnum hans.
Krakavöllum 13, Júlí 1920.
Sœmundur Dúason.
Vegna fjarveru ritstj, hefir grein
þessi orðið að bfða.
Á víð og dreif.
Iðnsýning opnaði kaupmaður Sigur-
jón Pjetursson f Reykjavfk 31. Júlf
s. I. og voru þar sýndar framleiðslu-
vörur hans, og vakti sýningin mikla
eftirtekt. Þar voru sýndar botnvörpur,
sfldarnet, þorskanet, ádráttarnet og
gildrur fyrir silunga og ála. Ennfremur
margskonar tóvinna frá Alafoss-verk-
smiðjunni, sem Sigurjón og Eínar
bróðir hans eiga. Er mikið af þvf
látið, hversu fjölbreyttur og góður
tóskapur vjelanna er nú orðinn. Á
sýningunni var sýnd sokkaprjónavjel,
er prjónar sokkinn á 5 mfnútum.
Skiftir hún sjálfkrafa um band og þarf
ekki að stjórna henni meðan hún er
að prjóna.
Sigurjón hefir ennfremur stofuað
sápugerðar-verksmiðju, er heitir »Ser-
os* Framleiðir hún blautasápu, stanga-
sápu, sápuspæni, gólfvax, vagnáburð
og ullarolíu.
Sigurjón Pjetursson er hinn mesti
framkvæmdarmaður og vill styðja ís-
lenzkan iðnað. Slfkir menn eru þjóð
sinni þarfir og virðingarverðir.
» Dansk-islandsk Anlœgsselskab " heit-
ir fjelag, sem stofnað var í fyrra f
Kavpmannahöfu. Frumkvöðull þess er
kaupmaður Kristján Torfason á Flat-
eyri. Tilgangur þessa fjelags er að
nota náttúruauðæfi á Vestfjörðum. í
botn Arnarfjarðar falla 3 ár (Dynjandaá.
Hoísá og Mjólká) allar með gífurlega
háum fossum. Með þvf að veita þeim
saman má fá þar þrjátíu til fjörutlu
hestöfl á einum stað. Ætlun fjelagsins
er að vinna við raforkuna salt úr sjó,
járn úr fjöllum og áburðarefni úr loft-
inu. Postulfnsleir hefir fundist þar
vestra, sem álitið er að nota megi
f eldfastan leir og til aluminium vinslu.
Slldarafli ágætur að undanförnu.
Alþýðublaðið 6 þ. m. segir frá þvf,
að danskur maður, Vett að nafni, sje
þá f Reykjavfk til þess að koma af
stað hjer á landi nýrri þjóðskipulags-
hreyfingu, er bann hafi tekið ást-
fóstri við. Þessi stefna er kend við
þýzkan þjóðhagsfræðing, Rudolph
Steiner, er ritað hefir um nýjar
stefnur í þjóðfjelagsmálum. Þessi
Vett stofnaði til fundar í Reykjavlk
4. þ. m. Var þar rætt um þessi ný-
mæli og nefnd kosin til að útbreiða
stefnuna hjer. Kosnir voru: Hallbjörn
Halldórsson prentari, Ingimar Jónsson
cand theol. og Sigurður Guðmundsson
magister. — Væntanlega lætur þessi
neínd eitthvað til sfn heyra von bráðar.
Olympíuleikarnir. Tveir íslendingar
fóru á Olympfuleikana í Ántwerpen,
þeir Benedikt G. Waage og Ólafur
Sveinsson prentari. Hófust leixarnir
14 þ. m.
Hátt f/ug. Frank Fredericksson
flaug II800 fet í loft upp Sunnudag-
inn 1. þ. m. f Rvfk.
Sýslumanni Dalamanna hefir dóms-
og kiikjumálaráðherrann vikið frá emb-
ætti um stundarsakir (31. Júlí).
Triílofun.
Einar J. Reynis framkvæmdarstjóri
og ungfrú Arnþrúður Gunnlaugsdóttir
frá Skógum f öxarfirði hafa nýlega
birt trúloíun sína. — íslendingur óskar
þeim til hamingju.
Es. Dana
kom hingað f fyrra kveld. Með henni
komu hingað Þórarinn Tulinius stór-
kaupm. frá Khöfn með frú og tveimur
dætrum og Jón Arnesen konsúll frá
Eskifirði.
Jarðarför
móður minnar, Maríu Jónsdóttur, er
Ijezt 15. þ. m., fer fram á Akureyri
Mánudaginn 23. þ. m.
Ytri-Haga 18. Ágúst 1920.
SiglryggurSigíryggsson.
Símfrjettir.
Rvík 16. Ágúst.
Sveinrt Björnsson skipaður sendi-
herra i Kaupmannahöfn.
Rvík 19. Ág.
Aframhaldandi ósamkomulag
Bandamanna út af pólsku málunum.
Frakkar draga saman her við Rln
og i Elsass.
Bandamcnn stinga upp á að hjálpa
Pólverjum, en ítalir neita.
Pölvcrjar hefja gagnsök. Frið-
arnefnd þeirra komin til Minsk.
Enskir og franskir jafnaðarmenn
höta allsherjarverkfalli, ef Pólverjum
sje hjálpað.
Komið upp samsœri gcgn Lloyd
George. Hann farinn í sumarleyfi
til Sviss. — Þangað koma einnig
Simons (utanrikisráðherrann þýzki),
Giolitti (forsœtisráðherrann italski)
og Feycal, sá ergjörastvildi konung-
ur i Sýrlandi.
Endurreist viðskiftasamband og
fjármálaskifti Þjóðverja og Rússa.
Venizelos sýnt banatilrœði.
Uppvis allviðtœk þjófnaðarmál i
Reykjavik (t. d. stolið 1500 kr. úr
»Gutenberg" -prentsmiðju).
(Frá frjettaritara vorum í Rvík.)
Bæklingar,
sendir »íslendingi«.
Halldóra Bjarnadóttir: Iðnaður.
Sama: Framtíð heimilisiðnaðarins á
íslandi, verðlaunað af Heimilisiðnaðar-
fjelagi íslands.
Þórdfs Stefánsdóttir: Jurtalitir.
Allir eru þessir bæklingar nytsamir
til fróðleiks. Tveir hinir fyrri eru gefn-
ir út af Heimilisiðnaðarfjelagi íslands,
en hinn þriðji er fylgirit »19. Júnf«.
Þá hefir blaðinu og verið send
skýrsla um ungmennaskólann að Núpi
f Dýrafirði, skólaárið 1919—'20.
Forstöðumaðut skólans er hinn góð-
kunni prestur, sira Sigtr. Guðlaugs-
son.
Samkvæmt skýrslunni hefir dagfæði
pilta f skólanum verið 1 kr. 94V2 a.,
og er það merkilega lágt. Er sam-
eiginlegt matarbú í skólanum. — Nem-
endur voru 24 að tölu þetta skólaár.
Páll J. Árdal
hefir sagt upp verkstjórn fyrir Ak-
ureyrarkaupstað frá I. Okt. n. k.