Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 08.04.1921, Síða 2

Íslendingur - 08.04.1921, Síða 2
74 ÍSLENDINOUR tbl. 20 >íslendingur< kemur út á hverjutn föstudegi og aukablöö þegar ástæða er til. Árgangurinn kostíir sex krónur. Gjalddagi fyrir 1. júlí ár hvert. Uppsögn skrifleg, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- rnanns fyrir 1. október. Innheimtumaður blaðsins er Hallgrímur Valdemarsson Hafnarstræti 84. er. Þess vegna hlýtur hann að fara hér með ósannindi gegn betri vitund. Og þetta virðist hann hafa gert með fullu samþykki húsbænda sinna, því að ekki hafa þeir látið hann leiðrétta þessi ó- sannindi. Hversvegna er þetta gert? Um þetta ættu samvinnumennirnir sjálfir fyrst og fremst að spyrja, bæði sjálfa sig og aðra, og þá einkum rit- stjóra Dags og húsbændur hans, spyrja þessa herra þangað til þeir fá fullnægj- andi svar, en gera sér ekki að góðu útúrsnúninga og blekkingar. En þrátt fyrir þetta afartortryggilega athæfi þessara háu herra. niega góðir kaupfélagsmenn aldrei gleyma þvf, að að heill og heiður meginhluta íslenzkr- ar alþýðu veltur nú orðið á því að kaupfélögunum verði forðað frá sið- ferðislegri og fjárhagslegri glötun, áð- ur en það er orðið of seint. B. L. CO Símfréttir frá útlöndum. Rvili i gœr. Bandarikin hafa neitað harð- lega að gefa bandamönnum nokkuð eftir af lánum peim, sem peir tóku til styrjaldarinnar. Alment kolaverkfall i Eng- landi. Ástœður pess taldar pœr, að námueigendur geta ekki aý tfárhagslegum ástœðum haldið námurekstrinum áfram. For- stöðumenn verkamanna beita sér mjög fyrir pvi, að fá járn- brautamenn og flutningamenn allskonar til pess að ganga inn i verkjallið með sér, og er pá talið að verði 5 miljónir atvinnu- lausra manna á Englandi. Grikkir hafa beðið ósigur i Litlu-Asiu fyrir Tyrkjum. Karl áður Ungverjalandskon- urigur kominn til Ungverjalands ogliggur par alvarlega veikur i hálsbólgu. Finnland hejir fengið 100 miljónir finskra marka lánaða t Svipjóð með 6l/2°jo. Greið- ist með jöfnum afborgunum á árunum 1927—31. oo Síðustu fregnir. Rvik i dag, Tildrög enska kolaverkfalls- ins pau, að atvinnumálaráð- herrann breski skýrði foringj- um verkamanna frá pví á fundi, að kolanámueigendur gœtu eigi goldið jajnhátt kaup eftirleiðis og gert hefði verið hingað til. Verð l kolanna vœri svo hátt vegna kaupsins, að\markaðirn- ir erlendis væru að tapast. Þeg- ar fulltrúar verkamanna höfðu heyrt málavexti simuðu peir út um alt Stóra-Bretlandi til námumanna, að peir skyldu leggja niður vinnu pá pegar. Er ástandið i Englandi talið mjög ískyggilegt. Parlamentið breska hefir i tilefni af kolaverkfallinu heim- ilað stjórninni að leggja eign- arhald á kolanámur, hesta, vagna, lýsingartæki og skipa- skurði. Jajnframt heimilast stjórninni að takmarka og banna vöruútflutning, ráða yfir stjórn allra hafna, banna skipum að láta í haf úr breskri höfn sem og uppskipun vara. Enn hefir stjórnin vald til pess að ákveðá verð á kolum, gasi, vatni, raf- magni, benzini o. fl. Loks heimilar pingið stjórn- \nn\ að nota her rtk\s\ns t\l brýnustu nauðsynjaverkanna. Lögregluliðið heí\r verið auk- \ð og pvi ge\\n heimúd t\\ að að rannsaka hús og handtaka grunsama menn. oo Innlendar símfregnir. Rvík í gœr. Ólafur Eyjóljsson stórkaup- maður hejir lýst sig gjaldprota. Fjalla-Eyvindur hefir verið leikinn 20 sinnum fyrirfullu húsi. Magnús Friðriksson bóndi að Staðarjelli hefir gejið ríkinu jörðina með húsum. förðin hefir verið metin á annað hundrað púsund krónur. Á að stofnsetja par kvennaskóla. Neðri deild Alpingis hejir sampykt ríkiseinkasölu tóbaks og vins með 14 atkv. gegn 13. Nýtt landsmálafélag hefir verið stofnað í Reykjavik. Kall- ast félagið »Stefnir«. Umsóknarjrestur um Arnes- sýslu og Suður-Múlasýslu út- runninn. Um Árnessýslu sækja: Magnús Torfason bœjarfóg. Kristján Linnet sýslum. Páll fónsson fulltrúi cand jur. Steindór Gunnlaugsson — Um Suður-Múlasýs/u sœkja: Magnús Gislason fulltrúi. Páll Bjarnason fulltrúi. Sig. Sigurðsson jrá Vigur. fón Sigtryggsson cand.jur. Páll Jónsson cand. jur. Ajli og veiðarfæri togara peirra, sem Fylla tók um dag- inn, var seldur fyrir 35,000 kr. Varðskipið Fylla kom inn i morgun með einn enskan togara. Ajlabrögð mjög góð. Síðustu fregnir. 5 Rvlk l dag. . Óskar Halldúrsson hefir í gœr lýst sig gjaldþroia. Breski togarinn sem »Fylla« tók siðast hefir verið sektaðurum 10 þús. krónur. . 03 Vináttan til bæjarins. Dagur síðasta tbl. reynir af veikurn mætti að sýna fi am á, að vantraust Íslendings á jafnaðarmannafulltrúunum í bæjarstjórn sé vantiaust á bænum. Hér blandar Dagur herfilega saman bæjar- félaginu — bænum og nokkrum bæjar- fulltrúum kosnum af nokkrum hluta bæjarfélagsins. Vér höfum áður sagt og segjum enn, að vér vantreystum jafnaðarmönnum þessa bæjar til að fara svo með völdin — fjárráð bæjarins á þessum tíma að vel fari. Þetta hafa þeir sjálfir vitað svo hér er ekki um nuna uppgötvun’ að ræða af Dags hálfu. Jafnvel þótt svo væri, að vér van- treystum allri bæjarstjórn, sem vér nú auðvifað ekki gerutn þó vantreystum vér ekki hag bæjarins þar með. Hann mun ntí sæmilegur. Og þó vér kvett- um menn til að kaupa skuldabréf bæjarins og létuni í veðri vaka, eins °g Dagur vill halda fratn að bærinn væri að fara á hausinn þá gerir það hvorki til né frá, því skuldabrcfin hafa ábyrgð ríkisins að baki sér og geta þess vegna aldrei tapast nema bæði bærinn og ríkið færi á hausinn. Þessu hefir Dagur sennilega gleymt því annars hefði hann ekki lagt upp með greinarstúf þennan. C3 AKUREYRI. Lystigarðsjdlagið ætlar að halda skemt- un á sunnudaginn. Verður þar margt gott til skemtunar. Menn ættu að koma sjálf- um sér til ánægju og Lystigarðsfélaginu til styrktar. Peningar þeir, sem inn koma ganga til Lystigarðsins. Er garður þessi orðinn mjög laglegur og slendur til að verða bæjarprýði. Bló hefir sýnt undanfarið eftirtektarverða mynd sem heitir Ættardýrgripurinn. Mynd- in er tekin upp af Astra Film Co. í Dan- niörk og leikur Ólaf Fönss aðal karlmanns- hlutverkið. Aðal kvennahlutverkið leikur frú Alnia Hinding Gad, sem talin er bezli >Miniikker« Dana. OO Eg hefi orðið þess var að ýmsir ætla eg eigi einhvern þátt í ritstjórn >fslend- ings,« og finn því ástæðu til að lýsa yfir að svo er ekki. — Hefði það verið, mundi t. d. ekki hafá‘ verið birt athugaserndalaust, svigurmæli er í blaðinu hafa staðið um þá Magnús alþingismann Kristjánsson og Hallgrím Kristinsson framkvæmdastjóra. Akureyri 31. rnars 1921. Jön Stefánsson, Ath. Oss er með öllu ókunnugt hverjir það eru, sem álíta Hr. J. S. við ritstjórn íslend- ings riðinn. Hitt er oss fullkunnugt að al- menningur veit hver aðstaða Hr. J. S. er til þeirra herra alþingismaun M. K. og framkvæmdastjóra H. K. sem og það, að persónulegar skoðanir Hr. J. S. hafa verið alveg andstæðar skoðunum blaðsins í viðskiftamálum þjóðarinnar sbr. athvæða- greiðsluna á þingmálafundinum í vetur. »• Rltstj. 00 m íheilum tunnum fæst í HAMBORG. Hnakkar með spöðuui og spaðalausir. Aktygi með krögum og án kraga. Notaða hnakka og söðla, Beizlisstengur úr járni, nýsilfri og kopar, sem og flest tilheyrandi söðlasmíði, selur undirrit- aður. — Einnig liefi eg tvö hús til sölu H. Halldórsson. Hr. ritstjóri! Þér hafið í 18. tbl. blaðs yðar tekið til umræðu grein inína >Um skólamál< í 11. tölublaði Dags. Þér birtið ekki niðurlag þeirrar greinar, en segið að það sé »mest aðköst og dylgjur til núverandi skólameistara og vígslubiskupsins séra Geirs.c Þetta er rangt með faiið. Dagur hefir enga menn nafngreint í sambandi við skólameistarastöðuna. Þér teljið yður ókunnugt um, hverjir sæki um þessa stöðu. Hvernig vitið þér þá, hvaða nöfnum Dagur hefir lieyrt fleygt? Eða hvernig er hægt að skilja almennar athugasemdir minar um embættisaldur, ættartengsli og vináttu sem aðköst og dylgjur tíl nafn- greindra nianna, ineðan óvíst er um hverjir sæltja? Eg vil því vinsamlega en fastlega mælast til þess, að þér birtið þessa athugasenid og jafufram skora á yður, að birta umræddan gréinarkafla hið fyrsta í blaði yðar. Virðingarfylst. Jónas Þorbergsson ritstj. Dags. Ath. Vér höfum því miður eigi rúiti til þess að birta þennan umrædda greinarkafla í blaðinu: Hvað spurningar yðar snertir um hvaða nöfn Dagur hefir heyrt í sambandi við umsókn um skólameistara stöðuna þá vítum vér áreiðanlega að blað yðar hefir heyrt báða hina umtöluðu menn nafn- greinda — Séra Geir og núverandi skóla- meistara Árna Þorvaldsson. Tíminn nefndi séra Oeir með nafni í sambandi við skólann og í sambandi við yeitingarvald ríkisins. Allir vita að Hr. Árni Þorvalds- son sækir. Þér hafið þá heyrt báða þá umsækjendur sem hér skiftir máli nefnda. Almennar athugasemdir yðar um em- bættisaldur ,ættartengsli og vináttu hljóta að sjálfsögðu að skiljast sem stílaðar í garð þessara tveggja væntanl. umsækjanda, annar er í ættartengslum við forsætisráðh. en hinn hefir embættisaldur sem skóla- meistari. Oss er kunnugt að fjöldi manna hér í bæ sem og viðkomandi menn sjálfir skyldu þctta á þennan veg. Eða hvers vegna undan skylduð þér ekki rnennina í öndverðu, þegar þér þó vissuð hvernig málum var komið. Ef það hefði verið gert voru athugasemndir yðar um em- bættisaldur, ættartengsli og vinátiu eins almcnnar eins og þér ætluðust til að þær væru. Rttstj. CO Kirkjan. Messað kl. 2 á sunnudaginn. Athu£*ið. Árspróf 1. og 2. bekkjar Gagn- fræðaskólans hefst 6. maí eins og aug- lýst cr í blaðinu í dag, ekki 13. eins og stóð í síðasta blaði.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.