Íslendingur - 16.02.1923, Side 3
ISLENDINGUR
3
Kurt Haeser,
kenslustjóri tónlistaskólans á Akureyri.
»Musikfélag Akureyrar«, sem stofn-
að var 8. ágúst f. á., byrjar nú starf-
semi sína. Pað setur á stofn tónlista-
skóla á Akereyri og hefir ráðið Kurt
Haeser sem stjórnanda og kennara.
Kurt Haeser er fæddur 13. jan. 1892
í Leipzig. Fyrstu kenslu í pianoleik
naut hann átta ára gamall og kom
eigi ósjaldan fram opinberlega til 14
a'ra aldurs. Frá þeim tíma (1907) til
arsms 1912 stundaði hann, samhliða
mentaskólanámi sínu, tónlistanám við
Konservatorium der Musik í Leipzig.
Kennarar hans voru Max Reger (tón-
frseði og tónsmíði), Prófessor Teich-
miiller (pianoleik), prófessor Heynsen
(organleik), prófessor Krehl (tónfræði)
°g prófessor Hofmann (hljóðfærafræði).
Hann vakti þá þegar mikla eftirtekt
við hljómleika skólans og hlaut lof
blaðanria og ýmsra mikilsmetinna
nianna. Sjerstaklega vakti meðferð hans
á »Paganini-Variationen« eftir Brahms
og »Bach-Variationen« eftir Reger
mikla aðdáun, en þessi verk eru í
verklegu og andlegu tilliti álitin erfið-
ust allra þeirra verka, sem fyrir piano
hafa verið rituð.
1912 hóf Haeser braut sína með
hljómleikum og var ráðinn kennari við
Riemann- Konservatorium í Danzig.
Blöðin í Danzig Ijúka miklu lofsorði
á leik hans, hæla honum fyrir djúp-
tækan sköpunarmátt. skarpleik í failanda,
syngjandi og litríkann leik, léttleik, til-
þrif og ótakmarkaða verklega kunnáttu,
en of langt yrði að telja hér alt það
lof.
1914 kom ófriðurinn tnikli og þá
var Haeser kullaður t herinn. Pað
varð honum til hamingju, að harin
lærði orkesturshljóðtæri og komst í
einn hljóðíæraflokk hersins. Eftir stríð-
>ð var Haeser um tírna í forföllum
Próf. Volbachs, forstjóri tónlistaskól-
ans í Osnabiiick, en var því næst skip-
aður kennari við meistaradeild (Meister-
klasse) tónlistarskóla borgatinnar Dort-
mund. Því s(arfj hefir hann getigt þing-
að til. Starfsemi Haeser hefir í seinni
tíð verið afaryfirgripsmikil og hefir
hann leikið opinberlega oft í viku og
í ýmsum borgum. Hefir hann hlotið
öH Þau lofsyrði, sem sögð verða um
pianoleikara. Höfundar ummælanna eru:
dr. Aber, próf- Ma||er> dr< w< Nie.
mann, próf. EUg Segnitz o. fl. Óþarfi
er að fjölyrða meir um list Haeser,
því að nú munu menn heyra hana
sjálfir og sannfærast um gildi hennar.
Kurt Haeser er maður ósérhlifinn
og hæverskur og gæddur áhuga á
flestum lista- og menningarmálum. Má
nu mikils vænta af Músíkfélagi Ak-
ureyrar, þvf að þar hafa áhugasamir
og mikilsmetnir menn forystu.
Halle (Saale) 17. jan. 1923.
Jön Leifs.
CO
Arétting.
Á þingmálafundinum 4. þ. m< f,arst
talið einhverra hluta vegna að þing.
helgi og virðingarleysi því sem farið
væri að bera fyrir þessari helgistofn-
un þjóðarinnar. Vegna nokkurra orða
sem eg sagði um þetta á fundinum
og hr. alþingismaður, fyrrum ráðherra
Sigurður Jónsson fann ástæðu til að
ávíta, vil eg faka fram, að orð mín
féllu í þá átt að eigi væri við tnikilli
virðingu almennings fyrir þlnginu að
buast, þar sem vitanlegt væri og föst
hefð, að tnálunum væri ráðið til lykta
á flokksfundum og nefndum og þing-
ið samansafnað þarmeð svift þeim
sjálfsagða rétti að vera pólitískur mið-
punktur þjóðmálanna, þar sem málin
væru eigi einungis afgreidd með at-
kvæðagreiðslu heldur einuig undirbú-
in og rökrædd. Orð lét eg falla í þá
átt, að e!gi væru æfinlega þingmenn
einir á nefndarfundum þessum og vítti
eg það eigi þareð vitanlegt er að slíkir
menn sem þar eru til ráða kvaddir,
hafa oft betra vit á málefnum en sjálfir
þingmennirnir. En það er einnig vitan-
legt að nokkrir þingmenn hafa undan-
farin ár haft sagnaranda í húsum prí-
vat manna í Rvík. sem hefir sagt þeim
hvernig líta beri á málin og hvernig
hagað skuli sókn og vörn svo eigi sé
lengra farið. Hr alþingismanninum S.
J. fundust orð þessi vítaverð gífuryrði,
sem eg eigi gæti staðið að ógleymd-
um. M. J. K. þingm. okkar Akureyr-
inga, sem lét sér mjög óþingmannleg
orð um munn fara, Erlingi Friðjóns-
syni og öðrum skríl til ánægju. Eg
árétti utnmælin hérmeð skriflega til
þess ef háttvirtum þingmönnum þætti
ástæða til að ræða málið nánar, að
það verði þá gert á prenti, þar sem
almenningur sér, svo að ef um goðgá
er að ræða, að hún þá verði gerð
heyrum kunn,
J.J.
CO
Ósannindum mótmælt.
í síðasta tölubl. Dags er spannar-
löng klausa um þingmálafund kaup-
staðarins. Lætur blaðið vel yfir fund-
inum að öðru leyti eti því, að því
þykir furdarstj. ,nú verðandi bæjar-
fógeta, hafa verið ærið mislagðar hend-
ur. Telur blaðið að viðaukasetning
sú, sem eg bætti við aðra tillögu
þingmansins hafi í raun og veru ekki
verið samþykt. Pví atkvæðagreiðsla
hafi verið mjög óljós, og talan því
óábyggileg. Sannleikurinn er sá, að
talan var eins rétt og með nokkurri
sanngirni verður heimtað, Bæjarfógeti
hafði tilnefnt 2 menn (sem líklega
báðir teljast til Dags og Verkamanna
flokksins) til að telja atkvæðin. Höfðu
menn þessir góða aðstöðu t:l að sjá
yfir salinn, og báru enda tölurnar
saman áður en fundarsíjóri lýsti yfir
úrslitunum. Eg efast ekki um að menn
þessir hafi talið eftir bestu samvisku,
og því algerlega rangt að bríxla þeim
og fundarstjóra, um að talan og úr-
slitin hafi leikið á tvímælum.
Menn munu eigi geta varist að
brosa þegar Dagur fer að tala um
pólitíska angurgarpa, sem láti sig litlu
skifta ábirgð orða sinna. Pað er ekki
lengra síðan en í fyrra, að blaðið var
dæmt til að afturkatla persónuleg meið-
andi gífuryrði um heiðvirðan andstæð-
ing sinn, svo illa situr á því að bríxla
öðrum um sínar marg drýgðu syndir.
En það sannast löngum, að sinn brest
láir hver mest.
Eg þykist vita, að blaðið muni hafa
meint til mín ummælin um gífuryrði
þau er eg átti að hafa svívirt þing-
menn með, er eg sagði að virðingin
fyrir þinginu færi að vonum mínkandi,
þar sem vitanlegt væri, aðýmsirutan-
þingsmenn réðu í raun og veru eín-
alt úrslitum málanna.
Pessi ummæli er eg reiðubúinn að
sanna með dæmum hvenær sem vera
skal, og verður eigi frekar minst á
það nú.
Mjög ómakleg eru ummæli blaðs-
ins í garð fundarstjóra, um hlutdrægni
íegna
jarðarfarar forstjóra Hallgríms Krist-
inssonar, verða sölubúðir okkar
og skrifstofur á Akureyri og Dalvík lokaðar mið-
vikudaginn 21. þ. m.
Kaupfélag Eyfirðinga
á fundinum. Pegar eg hafði spurt
þingmanninn okkar hvernig á því stóð,
að hann hefði í sumar þrátt fyrir
þingmálafundartillögu frá í fyrra í gagn-
stæða átt, gert sitt til að koma stein-
olíueinokunni á, þá svarar hann spurn-
ingunni engu — það hefir M. J. K.
sjaldnast gert hér á þingmálaíundum,
en likir mér þar á inóti við Qlæðir.
Pá mannlýsingu geta menn lesið, en
auðsætt er að algerlega var rétt af fund-
arstjóra að víta þessa framkomu, þar
er ummæli mín áður höfðu als eigi
verið persónulega mæld eða meint og
því órétt að svara þeim persónuleg-
um skætingi; virtist flestum fundar-
mönnum sama um þetta og fundar-
stjóra.
Eg vil að lokum eindregið mót-
mæla aðdróttunum blaðsins um fund-
arstjórnina. Hún var óaðfinnanleg og
hlutdrægnislaus í alla staði. Mun Dag-
ur fá fáa viðstaddra til að bera tneð
sér hið gagnstæða.
Annars er það um þessa aðra til-
lögu M. J. K. að segja að hún var
lævíslega gerð tiiraun til þess að fá
Akureyrarkjósendur til þess að fallast frá
fyrriskoðunum sínum um landsverzlun.
Viðaukinn sýnir það bezt, að við vilj-
um, af því eigi er annars völ, hlúa
að ríkisrekstri eins og síma og póst-
rekstri. Um brunatryggingar ríkisins
er öðru máli að gegna, þó nú verði
eigi hjá þeim komist, en verzlun (verzl-
unarbrask á Dags og Tímamáli) ríkis-
ins viljum við bæði samkvæmt marg
yfirlýstum skoðunum okkar þar að
lútandi og samkv. ákvörðun þingsins
að sé lögð niður, eins fljótt og mögu-
legt er. Petta ætti þingmaðurinn okk-
ar M. J. K. sérstaklega að festa sér
í minni þegar Landsveizlun kemur ti
umræðu á þinginu í vetur.
J- J-
C3
Or heimahögum.
Kirkjan. Morgunmessa á sunnudaginn
kl. 10V» (vegna safnaðarfundarins kl. 2 e. h.).
„Vér morðingjar." Leikfélagið hefir nú
leikið »Vér morðingjar« tvisvar og mun
leika þá í þriðja sinni n. k. sunnudags-
kvöld. Mun ekki ofmælt þó að sagtsé, að'
meðferð leikendanna á hlutverkunum sé
svo góð að sjaldan eða aldrei hafi betur
tekist á leiksviði hér í bæ, þegar á alt Sr
litið, og sjálfur á leikurinn mikið erindi til
almennings. í næsta blaði birtist ítarleg-
ur dómur um leikinn,
Embœttisprófi hafa 3 Eyfirðingar lokið
við Háskóla íslands í þessari viku. f
læknisfræði Steingrímur E. Einarsson með
hárri I. eink., í lögum Stefán Stefánsson
frá Fagraskógi með II. eink. betri, og i
guðfræði Ingólfur Þorvaldsson frá Kross-
um með II. eink.
Krossar. Nýlega hefir konungur heiðr-
að Kristján Jónsson dómstjóra með því
að gera hann að Stórriddara Fáikaorðunn-
ar, og riddara sömu orðu hefir liann gert
m. a. O. C. Thorarensen konsúl, Eggert
Laxdal kaupm., Stefán Th. Jónsson kon-
súl á Seyðisfirði, Knud Zimsen borgar-
stjóra í Reykjavík, Emil Nielsen fram-
kvæmdarstjóra og Þorbjörgu Björnsdóttir
Ijósmóður, Rvík,
Framkvœmdarstjórastarfið við Ræktun-
arfél; Nl. hefir verið veitt Ólafi B. Jóns-
syni landbúnaðarstúdent í Danmörku, enn
ekki tekur hann við starfanum fyr en
1924.
Embœtti. Um Blönduós læknishérað
sækja, Kristján Arinbjarnarson, settur læknir
þar og Árni Helgason i Qrenivík. Um
Hólmavíkurhérað sækja, Árni Helgason
(fái hann ekki Blönduóshérað, og kandí-
datarnir Karl Magnússon og Helgi Jónas-
son. Utn Nauleyrarhérað sækir Jón Bene-
diktsson frá Grenjaðarstað, sem þar hefir
verið settur lækni um hríð, og aðrir ekki.
Munið ejtir aukasafnaðarfundinum á
sunnudaginn kemur. Hann verður haldinn
í Samkomuhúsinu og hefst kl. 2 e. h.
Valdemar Stef/ensen iæknir fjutti ágæt-
an fyrirlestur, er hann kallaði »Þáttur úr
sögu mannsandans,« í Samkomuhúsinu sl.
sunnudag. Fyrirlesturinn var fluttur að til-
hlutun Stúdentafélagsins.
Sextugur varð Lárus Thorarensen 10.
þ. m.
Látinn er hér í bænum 14. þ. m. Geir-
mundur Kristjánsson verkaniaður, úr lugna-
bólgu. Mesti elju- og dugnaðarmaður og
drengur góður. Var 44 ára.
OO
Lára Hölm
frá Eskifirði
D á n a r m i n n i n g.
Pessi efnisstúlka, sem hafði svo
góða og mikla hæfileika til að bera,
andaðist á sjúkrahúsi Akureyrar þann
3. jan. þ. á. aðeins 16 ára gömul.
Hún var ákveðin og áreiðanleg, ná-
kvæmni hennar og lipurð, næstum
einstök, háttprúð og mjög skemtileg í
viðtali, gekk euginn gruflandi aðþví,
sem átti tal við hana ogjkyntist henni,
að hún var bráð gáfuð, enda hafði
hún strax í berr.sku af mörgum verið
kölluð undrabarnið.
Snillingurvarhún einnig íhöndunum.
Svo mikla umhyggju bar hún fyrir
yngri systskinum sínum, sem laezta
tnóðir og lét ekkert aftra sér frá að
annast þau, þó hún sjálf væri sár-las-
in, gat hún því verið mörgum ungum
til fyrirmyndar. í einu orði, hún bar
af flestum á hennar aldri og er þetta
ekkert oflof. Pví hlýtur harmur for-
eldranna að vera þungur og sár, en
huggun er það fýrir þau, að vita að
allir, er kynntust henni, leituðust við
að létta henni byrðina eftir því sem
mögulegt var, og á héraðslæknirinn
sérstaklega þakkir skilið fyrir þá miklu
nærgætni og umhyggju er hann bar
fyrir ungu systrunum.
Systir Láru, 6 ára gömul, liggur enn
á sjúkrahúsinu en bróðir þeirra sem
var þar, fékk bata, og fór beim. Yfir-
hjúkrunarkonunni máheldur ekkigleyma
svo vel sem hún reyndist þeim systr-
um. — Menn segja að það sé ekki
nema sjáltsögð skylda að vera þeim
veiku góður, hvar sem þeir eru, en
það vitum við að mennitnir eru æði
misjafnir, og þess góða, sem gert er,
er ætíð vert að geta.
Kunnugur.
Til sölu
ágætt íbúðarhús á Akureyri, fyrir lágt
verð og með góðum borgunarskilmál-
um.
Böðvar Bjarkan.