Íslendingur - 31.03.1923, Qupperneq 2
2
ÍSLENDINGUR
N ý k o m i ð :
Götukústar, Pottaskrúbbar,
Tjörukústar, Fiskiburstar,
Gólfskrúbbar, Naglaburstar.
Ennfremur fjölbreytt sýnishorn af allskonar 1 e i r -
og glervöru frá David Methven & Sons, Kircaldy,
sem eru orðnir vel þektir alstaðar á landinu fyrir góð-
ar, smekklegar, vandaðar og ódýrar vörur.
Komið og’ skoðið.
sjáanlegur í svipinn, en »Tíminn* gaf
bændunum góðar vonir um, að þá
norska þingið kæini saman, myndi
sjást árangur af för ráðherrans og
tollurinn yrði lækkaður.
Bændurnir liíðu því í hinni góðu
von blaðsins, bæði að því leyti að
ríkissjóður myndi borga þeim skaða
þann, sem tollurinn orsakaði þeim,
og stjórnin legði fyrir þingið frum-
varp til endurgreiðslu á tollinum, og
jafnframt .að þá norska þingið kæmi
saman, þá yrði kjöttollurinn afnuminn
eða að minsta kosti lækkaður.
Ekki hefir enn sést að stjórnin hafi
orðið við áskorun blaðsins, heldur
hundsað hana, og ekki hefir sá trygg-
asti flokksmaður blaðsins, landskjörinn
þingmaður Jónas Jónsson frá Hriflu,
sem bændurnir kusu í beztu von um
að hann reyndist bjargvættur þeirra,
og legði fram krafta sína á þinginu,
að bændur fengju greiddan skaða
þann, sem tollurinn bakaði þeim, en
máske á hatm það sómastrik eftir, eða
í öllu falli er gott að minna hann á
það.
Og ekki ætlar að verða glæsilegri
árangurinn af för atvinnumálaráðherr-
ans í kjöttollsmálinu, eða þær góðu
vonir, sem blaðið gaf bændunum um
að Norðmenn myndu lækka tollinn.
Nú kemur það ylir bændurnar sem
þruma úr heiðskfru lofti, að Norð-
menn eða þing þurra hafi enn hækk-
að kjöltollinn um 5 aura hvert kg.
Hvernig Iíst nú bændum á? Lof-
orðin og góðu vonirnar, sem »Tím-
inn« gaf bændunum, virðast fokin útí
veður og vind. Seunilega mun blaöið
aldrei hafa búist við árangri af því, að
bændur fengju kjöltollinn endurgreidd-
an af ríkissjóði, því slíkt hefði verið
barnaskapur, að koma miklu af endur-
gjaldmu yf'r á sjávarútveginn, og í
öðru Iagi var sjáanlegt að ríkissjóður
er ei svo efnum búinn nú á dögum,
að hann sé fær um að endurgreiða
einni stétt landsins skakkafall það,
sem hún verður fyrir vegna afleiðinga
tollsins. Ef ríkissjóður tæki að sjer þá
greiðslu, þyrfti að leggja nýja tolta á
þjóðina, en henni mun þykja ærið
þungir skattarnir þó ekki sé á bætt.
Og hverju mun »Tíminn« kenna
hina nýju tollhækkun á kjötinu? Ætli
það verði Spánarvínin enn? Og hverjir
ætli eigi að bæta bændunum upp
þann toll? Bændurnir fá sennilega að
heyra eitthvað um það, áður en lang-
ur tími líður, Rað er annars leiðinlegt
þegar menn verða fyrir vonbrigðum
af hendi þeirra, sem menn treysta bezt,
og afnvel trúa á, eins og sumir bænd-
urnir á »Tímann«. Reim hefði þó
sannarlega komið vel nú á þessum
síðustu og verstu tímum, að fá kjöt-
tollinn endurgreiddan, svo skuldabagg-
inn hefði heldur létzt á þeim minni,
og samábyrgðarflækjan orðið minni á
þeim efnameiri. En svo virðist sem
það ætli ei að lánast, heldur ný byrði
að leggjast á bændurnar.
f*að sýnist ganga landplágu næst
um utanfarir ráðherranna. Aldrei hefir
kveðið meira að því en þetta síðast-
liðna ár, þá cinn hefir komið hefir
annar farið, hver um sig af föður-
landsást, að vinna landinu okkar eitt-
hvert gagn, og það er ekki svo sém
þeir hafi farið einir, þeir.hafalþurft
að hafa frúrnar sér við hönd að slyðja
sig í stríðinu fyrir föðurlandið. Mörg-
um mun sýnast árangurinn rýr fyrir
landið, annar en sá, að borga brús-
ann, en aftur hafa ráðherrarnir orðið
fengsælir fyrir sjálfa sig, að fá »orður
og titla«, sem á skáldamáii eru talin
ónýt þing.
Bændurnir ættu að skora á »Tím-
ann« að vita, hvaðjulanfarir ráðherr-
anna með frúnum hafi kostað þetta
síðastliðið ár, í öllu falli hvað för at-
vinnumálaráðherrans hafi kostað land-
ið, þegar hann ætlaði að létta kjöt-
tollinum af bændunum.
Hver veit nema það gæti orðið
græðiplástur á sárin.
E. S.
oo
S v a r
til » F r a m t í ð a r I n n a r ♦ .
Hinn 11. þ. m. hljóp nýtt blað af
stokkunum hjer á Siglufirði, er nefnist
»Framtíðin«. Er ritstjóri þess Hinrik
læknir Thorarensen, en ábyrgðarmað-
ur er enginn. Blaðið fer fremur snot-
urlega af stað, og flýgur ekki á nein-
um lánsfjöðrum úr föðurgarði, enda
má teija víst að það eigi langa og
veglega framtíð fyrir höndum, því
allir vita hve skýr og blettlaus er
skjöldur ritstjórans, og nierki sínu, sem
jafnan hefir táknað göfugar hugsjónir,
hefir hann alla jafna haldið hátt á lofti
og fylgt því snúðugt fram.
Enn sem komið er vita menn þó
ekki stefnu blaðsins aðra en þá, að
það kveðst munu ræða tnál þau er
þennan bæ varða — svo og þjóðar-
heildarinnar, og leggja það eitt til
málanna, er heillavænlegast sé þjóð-
inni, eins og ritstjórans var von og
visa.
Aðalefni þessa fyrsta blaðs er grein
um íshús það, er hér er í byggingu
og er eign hlutafélags, sem kosið hefir
sér fimm manna stjórn. Aðaláhersluna
leggur greinarhöfundurinn á það, að
víta mig, sem kosinn er formaður fé-
lagsins, fyrir aðgerðaleysi mitt í því,
að flýta þessu fyrirtæki sem mest, og
er svo að sjá á grein hans, að eg sé
alveg einvaldur í félaginu eða einn í
stjórninni. Má með sanni segja, að
meðstjórnendum mínum sé fremur lít-
ill vegsauki að grein þessari, því svo
mætti virðast, sem þeir væru harla
litlu sjálfstæði gæddir eða andlegu
þreki, og að sannfæring þeitra væri
svo hviklæst, að eg einn og mlnar
skoðanir ríði þeim á slig, að eg réði
einn öllu, en þeir væru í rauninni
ekkert annað en fjórfaldur »Stumtjener«
i nefndinni. Euda líka gæti eg trúað
því, að meðstjórnendum niínum þætti
lítið varið í vilnisburð þann, er þeim
með þessu er gefinn.
Nú sný eg mér að málefni grein-
arinnar. En um grein na í heild sinni
skal það tekið fram, að hún er, að
fióðra manna sögn, sknfuð af ótak-
mörkuðu þekkingarleysi á íslenzku máli,
og ætti þó ekki hálærðum lækni að
verða vatidi úr því, að greina á milli
setninga í sínu eigin skarphugsaða
röksemdakerfi. Kommur sjást ekki
nema hingað og þangað á reiki, og
málvillur og dönskuslettur koma þar
álíka oft íyrir og lambaspörð á stekk.
En þetta kemur nú ekki mér í rauninni
við né mínum málstað.
Fyrstu ósannindi greinarinnar eru
þau, að eg (forntaður félagsins) hafi
strax í vetur farið á stúfana, og ráðið
fjölda smiða, og látið þá lofa því, að
vinna fyrir litlu kaupi, en í staðinn
hafi eg lofað þeim vinnu í allan velur.
Pessu til sönnunar birli eg, hér á eítir
grein* minni, vottorð þeirra manna er
vinnuna áttu að þiggja. Smíðirnir sem
eg hefi ráðið, ern einungis þrír —
það er nú allur fjöldinn, og Ioforð
þau, er þeir hafa á mig að herma,
sjást svart á hvítu í vottorðinu. Og
hvað það snertir, að þeir hafi ekki
unnið fyrir meiru en 25 — 50 krónum,
er sá sannleikurinn gripinn úr sömu
skúffunni; — þeir hafa allir unnið
fyrir miklu meiru.
Hvað ummælum haus viðvíkur, er
hann segir að »formaður« hafi stung-
ið uppá að hafna öllum tilboðum, þá
er sannleikurinn sá, að tilboða var
leitað, (sem hann og segir) og kom
stjórnin saman á fund, til þess að
ræða hin framkomnu tilboð, 7. des.
f. á. Voru þar allir stjórnarmeðlimir
mættir. Komst fundurinn að þeirri
niðurstöðu, að öll væru tilboðin hæiri
en svo, að hægt væri að sinna þeim fjár-
hagsins vegna. Enda var svohljóðar.di
ályktun samþykt á fundinum í einu
hljóði:
*Tilboð þessi eru svo há, að
stjórnin sér sér cnga leið til að
byrja á byggingunni fjárhagsins
vegna að svo stöddu, og samþykkir
þvi að taka engu tilboðanna.«
Litlu síðar samþykti stjórnin að kalla
saman borgarafund til þess ef auðið
yrði, að safua méiru hlutafé. Kom þar
fram tillaga, sem hlaut samjjykki fund-
arins um það, að bæjarsjóður legði
fram kr 5000,00 til viðbótar áður lof-
uðu lilutafé, ef þá mætti svo fara, að
hægt yrði með þeirri viðbót að halda
áfram fyrirtækinu. Bæjarstjórnin sam-
þykti að leggja fram þessa upphæð,
þó ekki fyr en komið var fram í febrú-
ar. En í von um væntanlegt samþykki
bæjarstjórnar hafði íshússtjórnin, með-
an á þessu stóð, leitað nýrra tilboða
og fengið þau, svo hægt var þegar í
stað að snúa sér að þeim, eftir að
trygging var fengin fyrir því, að mögu-
legt yrði að ráðast í byggingu íshúss-
ins á þessu ári. Samþykti stjórnin
norskt tilboð er hún hafði, og ætlað-
ist stjórnin til að efnið kæmi með
febrúarferð »Siriusar«. En er til kom
fór »Sirius« aldrei lengra en til Bergen,
í stað þess að fara til Kristjaníu eins
og stóð á áællun, og gat efnið því
ekki náð nefndri ferð. Ressu til sönn-
unar biiti eg hér á eftir vottorð með-
stjórnanda minna um þetta efni.
Mun H. Th. tæplega færast í fang
að vefengja þenna sannleik.
Hvað viðkcmur skrafi H. Jh. um
kaup á erlendum gjaldeyri, er því til
að svara, að á þeim tíma, er peningar
voru hér loks fengnir, var hvorki í
bönkum né annarsstaðar hægt að fá
keyptar norskar krónur undir því verði,
sem eg í saniráði við meðstjórnendur
mína keypti þær fyrir.
Að síðustu er gieinarhöfundurinn
svo óskammfeilinn að fullyrða með
gleiðu letri, að eg hafi í fullri óþökk
allra félagsmanna, nema tveggja, tekið
á móti formannsstöðu minni í félag-
inu. Þelta er auðvitað svo heimskulega
framsett ósannindi, að óþarft mætti
virðast að andinæla. Eg er kosinn með
yfir 100 atkvæðum af tæpum 150,
sem mætt voru á fundinum, sem for-
maður félagsins, og sit f þvf sæti f
fullri tiltrú allra þeirra, er mig kusu.
Ekki get eg að því gert þó H. Th.
fengi ekki eitt atkvæði til þessa trún-
aðarstarfa, eins og eg get ekki að því
gert, að hann, H. Tti., hefði orðið
að hanga hér á horriminni sem em-
bættislaus smáskamtasali, ef hann hefði
ekki gripið til annara úrræða svo sem
blaðaútgáfu — og fleira.
Annars er um niðurlag greinarinnar
ekkeit að segja nema það eitt, að þar
er Ijót árás á mig; illa yfirveguð. Eg
trúi þvf ekki að slíkt sé skrifað sjálf-
rátt. Retta hlýtur að vera pennagleði í
höndum viðvanings, sem þekkir ekki
skil á bakka og egg.
Fetta ætti sá að læra, er greinina
hefir skrifað.
Greinin er nafnlaus.
Eg dirfist ekki að segja með fullri
vissu, þótt eg hafi eignað H. Th.
greinina, að hann hafi sjálfur skrifað
hana. Hans er hvergi getið. En hver
er þessi *eg., sá sem brýst út í enda
þessa furðulega ritverks, — Er »eg«
naut, sem ræðst á menn með óþyrmi-
legum krafti, eða er »eg« naut, sem
bölvar undir inoldarbakka og gerir
engum ilt.
Er þetta »framtíðin«?
Að gefnu tilefni vottum við undir-
ritaðir, er gerst höfum hluthafar í h.
f. »íshúsfélag Siglufjarðar«, og greið-
um hluti okkar með vinnu við bygg-
ingu íshússins — aðallega við tré-
smíði, — að við höfum þvf aðeins
fengið Ioforð fyrir vinnunni, að eitt-
hvert efni væri fyrir hendi til að vinna
úr, en alls ekki, að Helgi kaupmaður
Hafliðason hafi ráðið okkur með þvf
loforði, að við hefðum takmarkalausa
vinnu allan veturinn.
Siglufirði, 10. marz 1923.
Ólafur /. Reykdals Pórður jóhannesson
(trésmiður). (smiður).
Johati Landmark
(smiður).
Að gefnu tilefni lýsa meðstjórnend-
ur h. f. »íshúsfélags Siglufjarðar« þvf
yfir, að formaður stjórnarinnar Hélgi
Hafliðason hefir haft samþykki allra
meðstjórnanda til þeirra framkvæmda
á útvegun á efni, sem gerðar hafa
verið. Allar slíkar framkvæmdir hafa
áður verið samþytkar á stjórnarfundum.
Efni f fshúsið kemur með næstu ferð
e. s. »Sirius«, en með siðustu ferð
skipsins fékst það ekki flutt, af þvf
»Sirius« kom ekki við í Kristjanfu
eins og stóð á áætlun
Siglufirði, 11. marz 1923.
Friðbjörn Niclsson. Sophus A. Blöndal.
G. Hannesson.
Þormóður Eyjólfsson.
Siglufirði, 14. marz 1923.
Helgi Hafliðason.
Aths. Kjósi ritstj.»Framtíðarinnar« held-
ur að svara H. H. hér í blaðinu en í sinu
eigin blaði, er honum það heimilt. Ritstj.
S T O F A
með sérinngangi er til leigu frá 1. maí
næstkomandi hjá
Pétri Halldórssyni Spítalaveg 17.
Brúkaður Legubekkur
fæst keyptur. Jónatan Jóhannesson
hjá Höepfner.