Íslendingur - 13.04.1923, Qupperneq 2
2
ISLENDINGUR
Höfuni fyrirliggjandi:
Kristalsápa
Handsápur
Sódi
Sódaduft
Pvottaduft
Kjötkvarnir
Umbúðarpappír
Hitaflöskur
Síðan 1Q20 liefir mikil breyting á
orðið í þessu efni sem mörgu öðru,
er viðkemur viðskiftum. Þótt núver-
andi bankar hafi gott lánstraust er-
lendis, hefir Alþingi engu að síður
orðið að heimila nýjar lántökur til
þess að aflétta peningakreppu í
landinu.
Það er því bersýnilegt, og um
það blandast engum hugur, að hér
er skortur veltufjár, og þó einkan-
lega í erlendum gjaldeyri. Reyrislan
hefir sýnt, að allar lántökur eru tor-
veldar og lánin dýr. Ríkið verður
að taka á sig ábyrgð lánanna og
greiða háa vöxtu af þeini.
Ef þetta frumvarp nær fram að
ganga, yrði farin alt önnur leið til
þess að auka veltuféð, og jafnframt
dregið úr svokölluðum »lausum
skuldum« landsmanna erlendis, en
þessar skuldir eru aðallega taldar
hafa óhagkvæm áhrif á gengi ís-
lenzkra peninga.
Þeir peningar, sem imi í landið
kgma við stofnun þessa banka, eru
látnir af hendi án nokkurrar ábyrgð-
ar hins opinbera. Hluthafar einir
bera ábyrgð á þeim og alla hættu.
Bankinn mundi aðeins starfa með
hlutafé sínu og ef til vill (að minsta
kosti er tímar liðu fram) með spari-
sjóðsfé, sem hvortveggja fengist
með vægari kjörum en lánsfé það,
sem nú er óðíluga gripið til. Það
eru því líkur til þess, að bankinn
yrði fremur til að lækka forvexti en
hækka þá.
Öðrum bönkum, sem hér eru
starfandi í landinu, ætti að geta orð-
ið beinn styikur -að þessum nýja
banka, með því að hann gæti létt
af þeim viðskiftum, er þeir eiga ó-
hægt með að annast, og á þann
hátt stutt að því, að þeir gætu bet-
ur og óskiftari sint þeim kröfum
sem þeir vildu helst láta sitja í fyr-
irrúmi og telja fyrst og fremst í
verkahring sínum að styrkja með
lánveitingum.
í frumvarpi þessu er í raun og
veru ekki að ræða um nokkur for-
réttindi, því að hér er ekki farið
fram á meiri réttindi, heldur þvert
á móti minni, en samskonar stofn-
un hefir nú að lögum, og þetta
sérleyfi á ekki að standa lengur en
Islandsbanki nýtur sinna réttinda.
Frumvarpið áskilur íslendingum
forkaupsrétt að fullum helmingi hluta-
fjárins ákveðinn tíma, en síðan megi
selja afganginn erlendis, og er þar
með heimiluð undanþága frá nú-
gildandi hlutafélagslögum; þó tryggir
frumvarpið íslendingum ætíð yfir-
stjórn bankans.
Sjórn bankans mundi verða í hönd-
um bankaráðs, er hagaði þannig
störfum sínum, að það svo að segja
daglega tæki þátt í ölium ákvörð-
unum um lánveitingar og aðra starf-
semi bankans.
Um hlutafé til þessa fyrirhugaða
banka skal þess getið, að erlendis
hefir verið unnið að undirbúningi
hlutafjársöfnunar til bankans, og
hafa undirtektir reynst svo góðar,
að full ástæða er til að ætla, að
nægilegt fé fáist.
co
Símfréítir frá útlöndum.
Rvlk i gœr.
Svartidauði geysar á Indlandi.
Deyja úr honum að meðallali 8 þús-
und manns á viku.
Ruhrmálin eru ennþá efst á dag-
skrá meðal stórveldanna. Hélt Cuno
rlkiskanslarinn þýzki rœðu i rikisþing-
inu á þriðjudaginn og lýsii þvt yfir,
að Pjóðverjar vœru fúsir að ganga
á ráðstefnu með Frökkum til sátta-
samninga, cf Pjóðverjum yrðu veitt
hin sömu réttindi á ráðstefnunni og
Frakkar hefðu. Nokkrum dögum áð-
ur hafði þýzka stjörnin sent mótmœli
yfir Ruhrtöku Frakka til allra þeirra
þjóða er undirskrifuðu Versalasamn-
inginn. Poincare sendi nýverið einn af
ráðgjöfum slnum til Englands til þess
að kynna sér hvernig Bretum lœgi
hugur í þessum málum, er nú sendi-
maður heimkominn aftur og fullyrðir,
að 90°i o af bresku þjóðinni séu
Frökkum fylgjandi að málum. Verka-
mennirnir þýzku er mistu lifið i ó
eirðunum i Essen i fyrri vilcu, voru
jarðsettir á þriðjudaginn og fóru þá
fram sorgarathafnir um alt Pýzkaland.
Hugo Stinnes, iðnaðarkonungurinn
þýzki, brá sér inní Ruhrhéraðið ný-
lega, þrátt fyrir forboð frönsku yfir-
valdanna, en hann var þegar hand-
samaðar og seltur i fangelsi en slept
lausum aftnr næsta dag gegn loforði
um að hafa sig sem skjótast á burtu,
sem hann og gerði.
Ráðstjórnin i Moskva hefir látið
taka kaþölskan prest af lífi og dœmt
marga aðra af yfirmönnum kirkjunn-
ar til œfilangrar fangclsisvistar fyrir
mótspyrnu gegn stjórninni. Kirkju-
höfðingjar Vestur-Evrópu hafa sent
kröftug mötmæli til stjórnarinnar yfir
þessum aðgerðum hennar.
Branting-stjörnin i Sviþjóð er far-
in frá völdum. Feldi þingið frumvarp
stjórnarinnar um styrk til atvinnu-
lausra og lagði Branting þá sam-
stundis niður völd. Fyrst var búist
við að Jrjálslyndi flokkurinn mundi
mynda nýja stjórn með tilstyrk jafn-
aðarmanna, en það tókst ekki, og nú
er búisi við að ihaldsmenn taki við
stjórnartaumunum.
Trotzky liggur veikur. Segja lœkn-
ar hann hafi krabbamein i mag-
anum.
Óeirðir urðu allmiklar i Aberdeen á
Skotlandi nýlega, milli skotskra og
þýzkra fiskimanna. Höfðu um 3000
skotskir fiskimenn gerl verkfall iil að
mótmœla isfisksölu þýzkra togara l
Aberdeen.
Vinnuveitendur i öllum bygginga-
greinum á Englandi hafa gert verk-
bann og við það hafa um 500,000
manns orðið atvinnulausir.
Daglegar loftferðir eru í þann veg-
irin að komst d milli Manchester,
Lundúna, Hamborgar og Berlin.
Stjórnin i Dublin tilkynnir, að hún
hafi handsamað í alt nærfelt 10 þús.
irskra uppreistarmanna, en ennþá séu
um 2500 undir merkjum De Valera.
oc
Innlendar símfregnir.
Rvik i gœr.
Kristinn Benjamínsson kyndari á
„Borg“ hefir verið myrtur i Barcelona
á Spáni.
11 fiskimenn skaðbrendust nýlega á
frönskum togara nálœgt Vestmanna-
eyjum. Fluttir þangað á spitala og
hefir einn látist og annar talinn dauð-
vona,
Pétur Á. Ólafsson konsúll, sem rik-
issijórnin sendi til Mið- og Suður-
Ameriku til þess að kynnast söluhorf-
um á isl. saltfiski, hefir sent Alþingi
skýrslu og telur markaðshorfur frem-
ur slœmar.
Dágóður afli á togarana.
co
A I þ i n g i.
Fjárlögin.
Undanfarna daga hafa fjárlögin ver-
ið til umræðu í neðri deild. Á laug-
ardaginn var eldhúsdagurinn en þótti
fremur bragðlítill. Talið vfst að þing-
ið muni standa fram í miðjan maí.
Fallin frumvörp.
Um skiftirig Eyjafjarðarsýslu í tvö
kjördæmi, um afnáni þjóðskjalnvarðar-
embættisins, um dyrtíðaruppbót statfs-
manna ríkisins, einkasölufrumvörpin á
saltfiski og síld, frv. til vinnuhjúalaga,
frv. Hriflu-Jónasar um áfengissjóð, frv.
um þingmantialjölgun í Rvík, um þmg-
mann fyrir Hafnarfjörð.
H^aklega útreið fékk frv, Jónasar frá
Hriflu um breyting á bannlöguiuim;
var þar farið fram á, að hver, sem
hittist ölvaður, skyldi heimilt að leiða
fyrir dómara, eða hreppstjóra, ef ekki
uæst til sýslumanns. Skal hiun ölvaði
sæta sektum fyrir hvert brot, sem sani-
svaiar vikutekjum hans það ar, og
að fyrir hvern líter af óleyfilegu áfengi,
sem búið er tí 1 hér á landi, eða flutt
inn, skal sá, senr slíkt áfetigi finst hjá,
greiða 100 kr. sekt, og auk þess upp-
hæð, er svarar mánaðartekjum hans
það ár. Fyrir að verzla ineð áfengi skal
sá, er brotlegur verður, gjalda 200
krónur í sekt fyrir hvern líter af ó-
löglegu áfengi, sem finst í vörzlum
hans eða sannast að hanu hafi selt.
Auk þess skal hann gjalda í sekt fyrir
hvert brot, ér sannast, eins árs tekjur
sínar, eins og gera má ráð fyrir, að
þær hafi verið undanfarið ár. Jóh.
Jóhannesson talaði aðallega á móli
frumvarpinu og sýndi fram á að það
rækist bæði á ýmsa aðra löggjöf og
ákvæði og væri illa hugsað og
heimskulegt, alveg án tillíts til þess,
hvaða skoðanir menn hefðu að öðru
leyti á bannlögunum eða framkvæmd
þeirra. T. d. væri hreppstjórum eftir
því ætluð dómsvöld, og sektarákvæðin
væru þannig, að ef nienn þyrflu að
sitja af sér sektirnar, mundi mannsæf-
in ekki duga til þess um sumar þeiira.
Frumvarpið var felt frá 2, umræðu,
sætti sömu forlögum og frumv. sama
manns um afuátn eftirlauna Björns
Kristjánssonar.
Virium og vandamönnum tilkynn-
ist hér með að Oddur S. J.
Thorarensen andaðist 5. þ.
m. eftir langvarandi heilsubilun.
Jarðarför hans er ákveðin Miðvikud,
18. þ. rn. og hefst með húskveðju frá
heimili hins látna kl. 1. e. h.
Ekkja og sonur.
Réttindi og skyldur hjóna.
í e. d. voru 4. apríl 8 mál á dagskrá.
Meðal þeirra var frv. um lögfylgjur
hjónabanda, sem áður var kallað, en
nú heitir utn réttindi og skyldur hjóna,
og hafði Ingibjörg H. Bjarnason fram-
sögu og var það fyrsta ræða hennar
á þinginu. Rakti hún sögu málsins og
nauðsyn þess fyrir hag og réttstöðu
kvenna að fá slík lög samþykt, en
þetta eru síðustu lögin úr siffalagabálki
þeim, sem unnið hefir verið að und-
anfarin ár og þitigið hefir samþykt af
áður þreun lög um afstöðu for-
eldra til skilgetinna og óskilgetinna
barna og urn stofnun og slit hjúskap-
ar. Að síðustu bar hún fram þakkir
íslenzkra kvenna til stjórnar og þings
fyrir þessar réttbætur og til lögfræð-
inganna Jóns Magnússonar, sem fyrst
flutti frv. og Jóh. Jóhannessonar, sem
báðir hefðu mjög unnið að undirbún-
ingi málsins og því, að koma því í
gott horf. En frv. er upphafiega sam-
ið af L. H. Bjarnason eftir samskonar
löggjöf annara Norðurlanda.
Þjóðleikhús.
í n. d. var fyrst rætt um frv. frá
Jak. Möller og Þorst. Jónssyni um
skemtanaskatt og þjóðleikhús og flutti
J. M. ræðu um ástand og hag leiklist-
arinnar hjer nú, og nauðsyn þess, að
hún yiði ekki látin falla niður, eins
og helst væru horfur á, vegna hús-
næðisleysis, nema tekið væri í taurn-
ana. Fer frv. fram á það, að skattleggja
ýmsar skemtanir í kaupstöðam þeim,
sem hafa yfir 2000 íbúa, 10 — 20 af
hundraði, og leggja það gjald í sjóð,
»!3jóðleikhússjóð«, sem verja á til
þess að koma upp þjóðleikhúsi í Rvík
og til að styðja sjónleiki, sem sýndir
verða að staðaldri í því húsi. Gert er
láð fyrir því, að leikhúsið standi inn-
antil á Arnarhólstúni fyrir norðan
Hverfisgötu. Frv. er sagt flutt fyrir til-
nræli ýmsi a frömuð t leiklistarinnar
hér á landi, og hefir þetta inál verið
lengi á döfinni.
Launahækkun.
F*á var tekið fyrir frv. til laga um
br. á lögum um stofnun Landsbanka,
um hækkun launa bankastjóra, bókara
og gjaldkera. Flm, eru Jón A. Jónsson
og Jak. M. Hafði J. A. J. framsögu.
Eru bankastjórum ætluð 24 þús. kr.
laun, eins og hinum stjórnskipuðu
bankastjórum íslandsbanka, bókara og
aðalgjaldkera 5000 kr. byrjunarlaun,
hækkandi upp í 6500, og aðstoðar-
gjaldkera 4000 hækkandi upp í 5500
kr. Er launahækkun þessi réttlætt með
því, að störf þessara embættismanna
séu ekki sambærileg við önnur embætt-
isstörf, sakir þeirra ábyrgðar og erf-
iðis, sem þeim fylgja. Að lokinni ræðu
frsm. var frv. vfsað til annarar umr.
með samhljóða atkv., og til fjárhags-
nefndar.
Nýtt hjá S. Sigurðssyni bóksala:
Eiríkur Albertsson: Kirkjan og skól-
arnir. Ólafía Jóhannesdóttir: Aurrastar
allra. Sveinb. Egilson: Ferðaminning-
ar. Alrnanak sjómanna 1923. Eim-
reiðin 1,-2, Sumarkort o. fl,