Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 13.04.1923, Qupperneq 3

Íslendingur - 13.04.1923, Qupperneq 3
ISLENDINGUR 3 B. D. S. Aukaskip e.s. „Bisp“ byrjar að hlaða í Kristianíu 14. þ. m. Kemur sömu leið og »Sirius« væntanlegt hingað um mánaðarmótin næstu. Afgreiðsla Bergenske, Akureyri. Stórt uppboð. Mánudaginn þann 16. apríl n. k. verður opinbert uppboð haldíð í Strandgötu 25 hér í bænum á ýmsum búðarvarningi, svo sem: miklu af allskonar álnavöru, sérlega vandaðri, tilbúnum fatnaði, regnkápum, skó- fatnaði, nýlenduvörum, kexi, smjörlíki, glervörum o. fl. alt góðar og vandað- ar vörur. Langur gjaldfrestur veittur áreiðanlegum kaupendum. Akureyri 5. apríl 1923. Lárus Thorarensen. I. S. I. I. S. I. Víðavangshlaup 1. P. F. Þór verður haldið sumardaginn fyrsta (19, apr.) og hefst hl. 11. f. h. Lagt verður af stað frá Söluturninum. Nefndin. Undirritaður óskar eftir tilboði í nokkra ferhyrnings- faðma af góðu hleðslugrjóti skiluðu við Hafnarstræti 2, Schiöths verzlun, einnig töluvert af uppfyllingu á samastað, ef um getur samist. Carl F. Schiöth. K-A-F-F-l. Nokkrar birgðir enn til, og selst með 6ama verði og áður, þrátt fyrir mikla verðhækkun erlendis. Jón Stefánsson. Úr heimahögum. Glötunarbarmur þjóðarinnar. Erindi Ouðm. skálds Friðjónssonar, er hann flutti í Samkomuhúsinu á sunnudaginn var, átti ekki þeirri aðsókn að fagna, er það verð- skuldaði, því að bæði var erindið sköru- lega flutt og svo hafði það mikinu sann- leik að færa, sem sjaldan hefir verið eins hvasslega brýndur fyrir almenningi. Kjarni fyrirlestrarins var að átelja þá lausung í fjármálum, er ríkjandi væri orðin í land- inu og ómenningu þá og ábyrgðarleysi, sem fest hefði djúpar rætur í þjóðfélaginu á hinum síðustu og verstu tímum. — tsl. hefir von um, að geta birt þetta ágæta og þarfa eriudi skáldsins síðar. Fimtugsafmœliátti IngimarEydal kennari á laugardaginn var. Konsert. Músikfélag Akureyrar hélt kon- sert í Samkomuhúsinu á miðvikudagskvöld- ið og endui tók það aftur í gærkvöldi. Að- alþátturinn var pianospil hr. Kurt Haesers. Voru áheyrenduniirstórhrifnir af spili hans sem áður, enda listin ótvíræð. Mesta að- dáun vakti lag Chopins »Nocturne< og »Orgeltoccata u Fuge« eftirBach. Ounnar Magnússon söng tvo einsöngva og tókst laglega og svo söng blandaður kór, erhr. Haeser hefir æft, tvö lög, er tókust vel. A þriðjudagskvöldið hafði félagið inn- gangskvöld og flutti þá Askell Snorrason söngkennari fyrirlestur um ýms atriði tón- listarinnar og mintist helztu æfiatriða þeirra Bachs og Chopins. Hákarlaskipin »Flink« og »Eirík«, eign Höepfners verzlunar, eru nýfarin á veiðar. Samsöngur. »Oeysir skemli bæjarbúum með söng sínum á laugardagskvöldið og þótti takast ágætlega. Síðdegis á morgun syngur kórinn fram á Þverá. >Sirius« er væntanlegur í fyrramálið. Kvöldskemlun íþróttafélagsins »Mjölnir« i Samkomuhúsinu á sunnudagskvöldið var vel sótt og fór hið bezta fram. Þar sagði Ingólfur Jónsson stud. jur. frá helztu æfi- atriðuin Lenins. Ounuar Magnússon og Sig. O. Björnsson sungu tvísöng, er þótti takast mjög vel og auk þess skemti »prent- smiðju-kvartettinn« svokallaði mcð söng. Gamanleikurinn »StrokuþræIlinn« kom á- horfendunum til að hlægja. *Goðafoss« kom sunnan og vestan um land á mánudaginn síðdegis. Meðal far- þega hingað voru: Friðjón Jensson læknir, séra Tryggvi H. Kvaran frá Mælifelli, Kristján Gíslason kaupm. á Sauðárkrók og synir hans Axel og Eiríkur, hinn fyr- nefndi með frú sinni. — Skipið fór héðan á fimtudagsmorguninn áleiðis til útlanda. Svar. Einar á Stokkahlöðum svarar ritstj. »Dags« í næsta blaði. Athygli aimennings viil ísl. vekja á upp- boði Jósefs Jónssonar ökumanns á þriðju- daginn kemur. Þar er á boðstólum margt, sem ökumenn og bændur þarfnast. Upp- boðið verður haldið við Lundargötu 15 og hefst kl. 11 f. h. Sýslufundur Eyjafjarðarsýslu hefir staðið yfir undanfarandi daga. Verður lokið á morgun. Framhald af grein J. J., »Um sterti- mensku«, kemur að öllu forfallalausu í næsta blaði. Mannalát. Þann 8. þ. m. andaðist á heilsuhælinu á Vífilsstöðum jóhann Oeorg Kristjánsson, efnispiltur 19 ára, sonur Kristjáns Kristjánssonar símamanns hér í bæ. — Bráðkvaddur var síðastl. sunnu- dagsnótt Sveinn Jóhannsson bóndi að Hól- koti í Hörgárdal. — A laugardaginn var andaðist hér í bænum ekkjan Björg Guð- mundsdóttir, rúmlega níræð. Misprentun- Gjöfin frá ungmennafje- laginu »ArsóI« í heilsuhælissjóðinn var 168 kr., en ekki 68, eins og stóð í sið- asta blaði. Tennisfélagið heldur dansleik í Sam- komuhúsinu annað kvöld. Menn vitji að- göngumiða 1 verzl. »Oeysir« eða brauðbúð A. Schiöth (innri). Hornaflokkurinn „Hekla“ spilar úti á leikvelli barnaskólans fyrsta' sumardag, þ. 19. þ. m., kl. 4 síðd., ef veður eða önnur forföll eigi hindra. P r o g r a m : 1. O. Lindbiad: Vorið er komið. 2. I. Pacius: ísland, ísland.óættailand. 3. H. P. Danks: Silver threads. 4. * * *; Blörneborgarnes Marsch. 5. A.v. Lvoff: RussiskNationalhynine. 6. O. Lindblad: Fósturjörðin. 7. C. lulius: Ella Steila (Valser- potpourri). 8. * * *: Choral nr. 7. 9. E. C. 1. Wejso: Hvað er svo glatt. 10. Reissiger: Til íslands (Það laug- ast svölum úthafsöldum). 11. Svb. Sveinbjörnsson: Ó, guð vors lands. 12. C. Reinhardt; Steinmefz Marsch. OO Mótmæli enn. Það lítur ekki út fyrir, að ritstjóri Dags hafi kristnast mikið á sfðustu flækingsför sinni til Reykjavíkur. í síðasta blaði fer lionum eins og jóska bóndanum, að hann neitar staðreynd- um. Dómstnálabækur sýslunnar eru vitni þess, að hann var dæmdur í sekt- ir í tveimur inálum og orð hans dauð og ómerk. Eg get vel skilið, að J. Þ. sárni gapuxaskapuritm úr sjálfum sér og vilji sem minst láta á hann minnast því það er ekki beitih'nis til þess að auka virðingu manna, að láta dæma orð sín dauð og ómerk. En það upp- sker hver eins og hann sáir. J. Þ. hefir mjög fjölbreyltar gáfur. Nú síðast er jiað fyndisgáfan, sem hann slær itm sig með og verður síst sagt, að tilraunin fari í handaskolum. Mað- urinn er neyðarlega fyndinn!! Sjáið andríkið og listinal! Það eitt spitlir fyrir að innan um alt-aman er J. Þ. óbeinlínis að lcvarta yfir því, að eg skuli ekki hafa spiut liaun leyfis um inngöngtt í fyrirtæki það, sem eg hefi verið viðriðinti við. Svona er veröldin. Eg vissi um gáfur J. í3. og góövilja, en mér þótti ekki rélt að spyrja hann ráða, að því cg hafði heyrt, að ýms af hfandi fyrirtækjum þeitn, er hann starfrækir sjálfur hér gengu á tréfptum. J. Þ. fcr strákslegum orðum um framkomu mína á þingmálafundiiium síðasla. Eg veit ekki hvort þaö er af ást ti! M. K. eða af sannleiksást að J. Þ. leikur sér að því að stórýkja frá- sögn sína um ummæli mín og cfni þeirra, sem eg hefi skýrt frá í Islend- ingi. Eg hefi ekki sagt annað um framkomu og starfsemi alþingis en það sem allir vita að er satt, semsé það, að málunum er ráðið til lykta í nefndum stundum utanþings en stund- um innanþings. Það er einnig satt samaher ummæli próf. Valtýrs Guð- r undssonar í Eimreiðinni. að nærvera þeirra, sem um styrk sækja eða koma vilja sínu fram í þinginu, er mjög mikilsverð í augum ósjálfstæðra þing- manna. Þannig er inælt, að þegar samvinnufélagslögin komu til atkvæða- greiðslu og úrslita umræðu, hafi nú- verandi alþingismaður Jónas Jónsson frá Hriflu, faðir og aðalkvatamaður þess afkvæmis staðið í dyrurn þing- salsins og bent 4 alþingismönnum að tala við sig eins og það væru ein- hverjir sveinstaular eða viljalaus verk- færi í hendi hans. »Ummæli Sigurðar Þórðarson fyrritm sýslumanns, um tneð- ferð og undirbúning laga um hæzta rétt í þinginuj benda einnig í þá átt, að það er satt seni eg sagði, að úrslit málanna liggja ekki innanþings þótt höfuðin séu víð, heldur hjá forkólfutn pólitísku flokkanna utanþings og oft innan veggja óviðkomandi manna. En gat þess ennfremur, að til lítils væri fyrir kjósendur Akureyrar að sam- þykkja þingmálafundartillögur þareð vitanlegt væri, að núverandi þingmað- ur M. K. færi aðeins eftir því einu sem hann persónulega vildi. Tvö ár í röð hafa kjósendur Akureyrar sam- þykt afnám Landsverziunar og einmitt þessi tvö ár hefir M. K. komið því fram rneð flokk sínutn, að komið var á bæði steinolíueinkasölu og tóbaks- einkasölu. Jafnframt gat M. K. þess í ræðit sinni um Santvinnufélög að hann væri lögunnm satuþykkur jafnvel þólt hann vissi að kjósendur sínir væru á móti þeim d: hagur kjöidæmisins alment að áliti kjósenda biði tjón við breytifiguna. Það væri annats fióðlegt að vita hvort M. K. hugsaði sér að bjóða sig fram hér tii þistgs þegar kosið verður næst og fá þá ttákvæma skýringu núvetandi þinginanns á or- sökum og ástæðum fyrir því, að hann liefir uudanfarið starfað móti vilja kjóseuda sinna og hag bæjarins. Kanske Dagur vilji svara. J. Þ. telur það slettirekuskap minn að eg skrifaði tim tilsletnisgrein hans í Degi um fundinn Þetta eru ósannindi því eg var annar aðili og hafði því rétt til umræðu málsins. Hafi nokkur gert sig sekan um slettirekuskap er það etigin annar en J. Þ. J. J. 2—3 herbergi ( fyrir einhleypa til leigu frá 14. mat n. k. Eigininngangur. R, v. á. N ý k o m i ð : Eimreiðin 1. og 2. hefti. Séra Eitíktir Albertsson: Kirkjan og skólarnir. Ólafía Jóhannesdóttir: Aumastar allra. Sumarkort. Fermingarkort. í Bókaverzlun Kr, Guðmundssonar. Innistúlka óskast frá 14. n. k. á gott og fá- ment hcimili hér í bænum. Gott kaup. R. v. á. Munið eftir úlsölunni og fermingarfataefnnnum handa strákum og stelpum hjá Car/ F. Schiöth. Munið eftir beztu og bjölbreyttustu mat- og krydd- vðruverzluti bæjarins, sem er Schiöths- verzlun. Hvar er bezt að verzla? Þar sem er bezt vara og sann- gjarnast verð. Reynslan er sannleikur, og því ætti hygginn kaupandi að grensl- ast eftir verði hjá mér. Eg hefi aðeins nauðsynlega vöru svo sem: Semulumél, Hrísmél, Hálfbaunir, Bankabygg, Rúgmél, Hveiti, Hafragrjón og flestar nýlenduvörur. St. Ó. Sigurðsson. Nýkomið: Léreft hvít þvegin 7 teg. do. hvít óþvegin 3 teg. Léreft fiðurhelt á kr. 2,30 pr. meter. Stúfasirz sérlega góð í H A M B O R G . Gljáfægilögur áhúsgögn,| Jjólfáburður og Gólffernis ódýrast í H A M B O R G . Netalitur (Kattegó) á kr. 1,80 pr. kg. í H A M B O R G .

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.