Íslendingur


Íslendingur - 08.06.1923, Page 2

Íslendingur - 08.06.1923, Page 2
2 ÍSLENDINGUR.. Væntanlegt með »Lagarfoss«: Hveiti, 2 tegundir. Appelsínur. Purkaðir ávextir. Gaddavír o. fl. MriwaaMnHMMmmnw .... n» landsmálasviflinu. Pessi skoðun veikt st raunar taisverl, er blaðið frétti um óeininguna, er ríkti inr.an flokksins um núverandi ríkisstjórn, og við það að lesa nýkomið Alþýðublað, gamlan og dyggan samherja Tímans, sem lýsir á- standinu innan flokksins þverðfugt við það, sem vér álitum það vera, koll- varpaðist þessi flokkseiningarskoðun gersamlega. Alþ.bl. segir, að Framsókn rflokkur- inn sé sams.ettur af mörgum andstæð- um, þó tvö öfl séu þar aðallega ráð- andi og um Tímann segir það, að hann sé sjálfum sér sundurþykkur og í hon- um berjist tvær andstæður. »Annars vegar fordómslaus og frjálslyndur hugs- unarháttur hins andlega leiðtoga blaðs- ins, Jónasar rkólastjóra Jónssonar,. .. hinsvegar köld og eigingjörn pólitík hrokafullra stórbænda«, og blaðið bæt- ir við: »Pessi tvö öfl geta ekki sam- rýmst.* — »Alþýðuflokkurinn« — segir blaðið — »sé fús td þess að styrkja hinn frjálslynda hluta flokksins, Jónas- ar-brofið, en vílji ekki eiga neitt sam- eiginlegl með stórbændakiíkunni*. Með öðrum orðum: Sameignarmennirnir telja Hriflumanninn sér svo uákominn og þá, sem honum fylgja, að yfir þá er lögð blessun flokksins, c-n við bænd- urna, aðalkjarna Framsóknarflokksins, vilja þeir, Sameignarmennimir, ekkert hafa saman að sælda. Fn hvnð segja nú bændurnir um lýsinguna á sér og öll þessi boðorð. Höfuðórar. Kunningi vor, sem skrifar undir nafninu »Verkamaður< í tvö síðustu tbl. »Vm.« um síltarsðltunarkaupið, er sýni- lega ekki heilbrigður. í fyrra skrifi sínu hnjóðar hann í ísl. fyrir að hafa flutt auglýsingu um kaupgjaldið, en drepur ekki á það með eiriu orði, að bæði »Dagur* og »Vm.« fluttu sams- konar auglýsingar, og er honuin var hógværlega bent á þetta, veður hann uppi með skammir og skæting. Rifstj. ísl. hefir ekki með einu orði látið álit sitt í Ijósi hvoit honum fndist lækkun kauptaxtans sanngjörn eða ekki, og fyrir það eitt að flytja auglýsinguna á hann sannarlega ekki frekar skammir skilið en hinir ritstjórarnir. Kitstj. fsl. ann síldarstúlkum og öðru verkafólki eins mikils kaupgjalds og framleiðslan sem unnið er að þolir, en með sí- versnandi sölu á síldinni og öðrum afurðum vorum, er óhugsanlegt, að hið sama háa kaupgjald geti haldist og meðan alt lék i Iyndi fyrir fram- leiðendunum. Dýrtíðin fer og smátt og smátt þverrandi og gerir fólki því kleift að komast af með minna kaup- gjald en áður var. Þetta ætti hver meðalgreindur maður að geta skilið. Pá gengur þessi nafnlausi verkamaður furðu langt í ósvífninni, er hann segir að síldarstúlkurnar og annað verka- fólk vinni fyrir vinnuveitendunum. Hingað til hefir það verið skoðað ábyrgðarinesta hlutverkið að vera at- vinnurekandi, áhyggjurnar, stríðið, um- sjónin og framkvæmdirnar eru á hans herðum, hann er höfuðið, ;em öllu stjórnar og eins og máltækið segir »dauður er höíuðlaus her«, eins liggur hungurdauði eða hrtppuriun fyrir verkaíó kinu, dragi atvinnurekandinn að sér hetidina og neiti um vinnuna. Að honum verði það bagalegt er til lengdar lætur, er vafalítið og getur jafnvel riðið honum að fullu, en hann gelur að öllu jöfnu fleytt sjer m kið lengur en vinnulausi verkamaðurinn. Svona svig- urmæli sem þessa »verkamanns« ættu ekki að eiga sér slað. Góð samvinna milli vinnuveitanda og vinnuþiggjanda er báðum fyrir bezlu, því hvorugur getur án hins verið og það eru óheilla- menn, sem blása þar að ófriðarkolum. Kærleiksheimilið. (Aðs.n). Fiamkvæmdaistj. Kaupíélags Verka- manr.a, lierra Erlingur Friðjónsson, hefir nýlega látið bæjarfógeta gefa út inilli 20 og 30 stefnur á viðst'ftavini Kaupfélagsins, flestar fyrir smáskuldir, en þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á kaupfélagsstjóranum eru menr, scm honum hafa verið andstæðir í Verka- mannafélagi Akureyrar. Náðarsól hins mikla manns nær ekki að skína á þá rétttiúuðu, hinum skal kastað útí fiin yztu myrkur. .Svona er bróðurástin á þessu kærleiksheimilinu. Meðl Kaupfél. Verkamanna. cc ♦ Islandslýsing. Nokkrir enskir kvikmyndaleikendur dvö'du í Reykjavík í fyrra sumar. Áttu þeir að leika og kvikmynda ýmsa þætti úr skáldrögu Hal! Cains: »Týudi son- urinn* er gerist hér á landi, bæði á Pingvöllum og viðar. Pegar þeir komu heim aftur til Englands voru þeir eins og gengur spurðir tíðinda af blaðamönnum. Mr. Arthur Gook var svo vænn að sýna tnjer úiklippur úr »Daily Express*, þar sem þessir herrar leysa frá skjóð- unni og segja fiá, hvernig þeim leizt á land voit. Pó frambiirður þeirra minni nokk- uð á yfirlýsingar Hraínaflóka, eða Ketils hængs og Karla þræls Ingólfs, en síð- ur á loftungu Pórólfs smjörs — skal eg leyfa mér að hafa orð þeirra eftir, (þótt þau auðvitað séu alls ekki haf- andi eftir). Einn þeirra, Mr. Henry, segir: »Vel! — ísland getur orðið nógu gott land þegar fram líða stundir. Hver veit? Pað er undir því komið, að einhverjum mætti lánast að sam- ræma eiginleika þess. Pað sem þó mest af öllu ríður á, er að finna að- ferð til að nota eldfjallahitann til þess að bræða alla jöklana. Að vísu væri þá eftir þrautin þyngri, að leysa úr þeim vanda, hvað gera skuli við öll hraunin. Flvern skrambann á til bragðs að tak við þessa hraunbreiðu, þar sem ekki finst stingandi strá og ekkert get- ur gróið? Satt er það reyndar, að alveg trjá- laust er landið ekki. Við töldum þó nokkur t'é. Rað gerir maður að gamni sínu þarna norður frá, Ef einhver ís- lendingur er beðinn að sýna útlend- ingi eitthvað séistaklega markvert, þá sýnir hann honum tré.« Annar kvikmyndaleikarinn (éða rétt- ara kvikindið), Mr. Coleby, er þar næT krufinn sagna. »Vel!« — segir Mr. Coleby og er þungbrýnn og seinmæltur, »!sland er horngrýtið sjálft. — Eg tek svo Ijótt orð í munn af því, að eg þykist hafa fulla kirkjulega heimild til þess. I Reykjavík kyntumst við af hendingu biskupi nokkrum, sern mælti á enska tungu, og héldum við fyrst að hann væri búsettur í landinu og dáðumst að þreki hans og dugnaði. Hann bandaði frá sér með hendinni og eg spurði hann þá: »Eigið þér ekki heima á íslandi?* Biskupinn staldraði við, hugsaði sig um og sagði síðan: »Ef mér væri sagt, að eg ætli æfilangt að búa á ís- landi, þá mundi eg óðara fara fram í fordyii, taka byssuna mína ofan af snaga og skjóta mig rakleitt gegn iim höfuðið.* Mr. Coleby bætti síðan við fiá eig- in brjósti: Jule Verne lét eina af söguhetjum sínum leita sér lífsþæginda á Islandi með því að fara ofan í eldgíg. Hvað sjálfan mig snertir, þá reyndi eg að klæða mig þannig, að inst var eg í tvennum nærfatnaði, þar næst ullar- peysu, síðan vesti, þar utan yfir tví- hnept. in vaðmálsjakka og yzt þykkum loðfeldi. Allur þessi klæðnaður gat þó ekki varið mig innkulsi og ofkæl- ingu. Sannast að segja finst mér ísland vanta nokkur skilyrði til að geta dreg- ið að sér ferðamenn með álíka miklu aðdráttarafli og strai.d'engjan við Nissa og Genúa.» Sígr. M. þýddi. GO Úr heimahögum. Gagnfrœðaskólinn. Skólanum var sagt upp 30. f. m. 133 nemendur gengu undir próf að þessu sinni, þat af 17 undir inn- tökupróf og stóðust 14 prófið. 42 nemend- ur gengu undir gagnfræðapróf og stóðust það allir. Þeir sem útskrifuðust voru: Stig. Aðalsteinn Jónsson S. Þ. 78’Zo Arnþór Jensen S. M. 62— Ásgeir Guðjohnsen S. Þ. 76'/s Ásgeir Jónsson Ak. 62 Bárður ísleifsson Ak. 80 Bergur Björnsson Sk. 75 Bjarni Pálsson E. 67a/s Björn Bjarnason Hv. 77 Einar Gultormsson M. 75 Erlendur Blandon Hv. 69- Fanney Jónsdóttir Rv. 58 - Finnbogi Jónsson Hv. 83 Finnbogi R. Valdemarsson ísaf. 79 Gísli Ásmundsson S. Þ. 74'/» Gunnar Kaaber Rv. 65’/» Halldór Olafsson Str. 58— Hannes Þórðarson S. M. 59— Ingólfur Árnason ísaf. 71 '/8 Ingólfur Gíslason S. M. 71— Jóhann Fr. Frímannsson Hv. 68— Jóhann Ó. Haraldsson E. 81 — Jóhann Sigvaldason Ak. 50 Jóhann Þorkelsson Sgf. 7i_ Jón Jónsson E. 78> Jón Stefánsson Ak. 75_ Jósef Einarsson D. g2— Júlíus Sigurjónsson E. 82 Kristinn Stefánsson S. M 531/,, Leo Maronsson Ak. 73 Marianna Baldvinsdóttir Ak. 71'/» Ólafur Halldórsson V. 70 Sigurmon Hartmannsson Sk. 51 — Stefán Björnsson S. Þ. 50 Stefán Thorarensen E. 86a/» Steingrímur Sigurðsson Sk. 69— Teodór Mathiasen Hf. 48— Stig. ’Viggó Ólafsson E. 68- Þorsteinn Símonarson Sk. 74- Utanskóla. Einar Sturlungsson Str. 73 Ingólfur Guðmundsson Rv. 73— Ólafur Halldórsson Hf. 55'/s Pétur Valtýsson Rv. 64 Til þess að ná 1. einkun þarf 82 stig, annari einkun 54 stig og til að standast próf þarf 45 stig. Til þess að komast í lærdómsdeild mentaskólans þatf 68 stig. Hæstu einkunn að þessu sinni hlaut Stefán Thorarensen frá Lönguhlíð í Hörgárdal 86a/» stig. Heimavistargjaldið fyrir skólaveruna nam kr. 558,43 á neinanda eða kr. 2,39 á dag, þar í falið fæði, húsnæöi, hiti, Ijós og þjónusta. Er þetta mjög ódýrt og stórum mun lægra en verið hefir hin síðari árin og er hin góða útkoma þökkuð sérstak- lega duglegri og ráðdeildarsamri stjóin forstöðukonunnar, frú Júliönu Björnsson. „Akureyrar Bíó". Hið nýja kvikmynda- hús Hallgr. Kristjánssonar, Ragnars Ólafs- sonar 8t Co. er nú fullgert. Vigslusýning fór fram á þriðjudagskvöldið og höfðu eigendur boðið fjölda fólks. Bauð Ragn- ar gestina velkomna með nokkrum vel völdum orðum og Valdemar Steffensen læknir flutti erindi uin kvikmyndir. Næst var sýnd mjög hrífandi og falleg mynd, • Litla stúlkan hans«, leikin af nafnkpnnum amerískum leikendum. Pá söng »Geysir« nokkur lög, og sýndi það sig strax, að húsið er sérlega vel fallið til söngs og konserta. Húsið er hið veglegasta, rúm- gott og með nýtízku sniði. Rafmagns- loftræsting er í húsinu, sem stöðugt end- urnýjar loftið. Er húsið í heild sinni bæði eigendunum og bænum til sóma. Augnlœknirinn, Helgi Skúlason, dvelur hér í bænum dagana frá 8,- 23. ágúst. Skipakomur. »Annaho« er nýlega kom- in með kol til Ásgeirs Péturssonar. Enn- frenrur »Svalen«, þrímöstruð skonnorta, með trjávið til Kaupfél. Eyf. Þá kom skip til »Ægis« í Krossanesi með kolafarm frá Spitzbergen. Munu það fyrstu kolin, sem þaðan hafa komið hingað til lands. Konsert Kurt Haesers á sunnudagskvöld- ið var vel SÓtlur og höfðu áheyrendurnir hina mestu unun að hinum frábæra piano- leik þessa listamanns. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú Alfa Pétursdóttir, héðan af Akureyri, og Eiríkur Einarsson banka- stjóri og alþingismaður frá Hæli. Fiskafli er orðinn góður úli fyrir. Hafa mótorbátar af Siglufirði aflað frá 5000— 7000 pd. af málsfiski á dag. Mannalát. Nýlega er látinn í Reykja- vík Einar Viðar kaupmaður, sonur Indriða Einarssonar leikritaskálds. Hann var kvænt- ur Katrínu dóttur Jóns sál. Norðmanns. — Látinn er á Húsavík úr taugaveiki Aðal- steinn Jónsson, sonur Jóns ísfjörðs skó- smiðs hér í bæ. Maður á bezta aldri. Rússneskur kvenmaður, Ljuba Friedland að nafni, kemur hingað um rniðjau mán- uðinn. Ætlar hún að flytja hér fyrirlestra um ástandið í Rússlandi og verður Stgr. læknir Matthíasson túlkur hennar. Einnig mun hún flytja erindi í Músíkfélaginu um rússneska sönglist. Hún talar á dönsku. 77. júni. Eins og að undanförnu ætlar U. M. F. A. að gangast fyrir því, að fæð- ingardagur Jóns Sigurðssonar verði hald- inn hátíðlegur hér í bænum með skrúð- göngu, ræðuhöldum, hornablæstri, söng og íþróttasýningum. Seldar verða veitingar og hátíðamerki til ágóða fyrir Heilsuhælis- sjóð Norðurlands. Er vonandi, að bæjar- búar sýni áhuga sinn fyrir þessu þarfa heilsuhælismáli með því að styðja féiagið til fjársöfnunar þennan dag og með því að kaupa merki, sem seld verða. * Há fyrsta einkunn. Vantar einkunnir fyrir 2 námsgreinar, ritleikni og teiknun, sem nemandinn gat ekki tekið þátt í vegna þess, að hann er fatlaður á höndum. Þjóðvinafélagsbækurnar 1924 komnar í bókaverzlun Porst. M. Jónssonar. Mjólk fæst daglega og alt árið ef óskað er hjá Jóni Helgasyni Eyrarlandi.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.